Dagblaðið - 17.01.1977, Page 32
Mikil loðnuveiði og fitumagnið enn hátt:
37 ÞUSUND TONNA
FORSKOT A VERTIDINA
fyrstu loðnunni var landað 17. jan. ífyrra
Síðan loðnuvertíðin hófst, nú
milli jóla og nýárs, hafa veiðst um
37 þús. tonn af loðnu en í fyrra
hófst loðnuvertíðin um 17. jan-
úar, þannig að allgott forskot er
nú fengið miðað við það ár.
Forskotið er meira en tonnatal-
an segir til um því loðnan sem nú
hefur veiðzt er mun fitumeiri en
loðna sem veiðist síðar á vertíð-
inni og þannig getur verðmæti
loðnunnar nú verið allt að helm-
ingi meira en í lok vertíðarinnar,
miðað við sama magn.
Um miðjan dag í gær höfðu 23
bátar tilkynnt Loðnunefnd um
afla upp á 9.400 tonn frá miðnætti
áður og var búizt við að þeir lönd-
uðu þeirri loðnu á Seyðisfirði og
Neskaupstað en vegna veðurs var
ekki hægt að landa á Vopnafirði.
2 þús. tonnum átti að landa á
Raufarhöfn og eitt þúsund á
Siglufirði.
Nú er loðnan út af na horni
landsins og aðeins byrjuð að
beygja til suðurs með Austfjörð-
um. Fara landanir því að aukast á
Austfjörðum.
Sigurður RE var í gær á leið
til Vestmannaeyja með 1100 tonn
en skipið sækir þangað nýja nót í
leiðinni. Fitumagn síðustu sýna
er um 13%.
-G.S.
LISTAFÓLK SKAUTAR UM
MELAVÖLUNN í
GLAMPANDIJANÚARSÖL
Suðurnes:
Lögreglumenn lýsa stuðn-
ingi við Hauk Guðmundsson
Lögreglumannafélag Suður-
nesja gerði á föstudagskvöldið
ályktun þar sem lýst er yfir
stuðningi við llauk (iuðmunds-
son rannsóknarlögreglumann,
sem vikið hefur verið frá
störfum og sviptur hálfum
launum sínum.Samþykktiner á
leið til fjölmiðla en hafði ekki
borizt í mo'gun. I simtali við
Skarphéðin Njálsson. formann
félgsins. fékk Dagblaðið þær
upplýsingar að í yfirlýsingunni
væri vísað til laga félagsins og
markmiðs þess, sem er að
styðja við bakið á félagsmönn-
uni meðan ekki sannast sök
þeirra eða eitthvað það sem
gerir lögreglumann brotlegan i
starfi.
þúsund króna mánaðarkaupi.
Og það er illa farið með mann
eða jafnvel mjög illa ef sök
hans sannast ekki og hann er
slíkum aðferðum beittum.
-ASt.
Jafnframt er lýst yfir andúð
á öllum ólögmætum vinnuað-
ferðum. hvar sem þær koma
fram.
Skarphéðinn kvað það álit
meirihluta félags'manna að
aðferðir þær sem beitt hefði
verið gegn Hauki hefðu ekki
verið tiðkaðar. Enginn lifir á 53
Það var ekki amalegt veðrið i
gærdag á höfuðborgarsvæðinu.
Landslagið glóði i janúarsól loga-
gyllt, töfrandi og seiðandi. Fólk
fann hjá sér hvöt til að bregða sér
úr húsi, enda þótt ,,hita“mælar
sýndu nokkurt frost. Umferð var
mikil um Reykjavíkursvæðið og
sumir héldu til fjalla í leit að
skíðasnjó, en því miður er lítið
um hann enn sem komið er. Á
skautasvellum sem Reykjavíkur-
borg útbýr var mikið fjölmenni.
Ungir og gamlir léku þar listir
sínar. Athyglisvert var að sjá
vestur á Melavelli, hvað eldra
fólkið kann fyrir sér af skauta-
listum. Guðmundur Rósmundsson
(litla myndin til vinstri) er Vest-
firðingur og sýndi miklar kúnstir.
Og að gömlum og góðum sið
skautuðu þau saman í Ijúfum
dansi þessi tvö á myndinni til
hægri.
Og ekki þarf að taka fram að
skautalistin er fyrir alla fjölskyld-
una. Á stóru myndinnl eru
mæður að kenna börnum sínum
fyrstu, og erfiðustu, sporin í
skautaíþrótt. (DB-mynd Bjarn-
leifur).
Krafla:
Skjálftunum hef ur ekki fjölgað
— einn mældist 3 stig ígær
Kl. 10 í morgun höfðu 70
skjálftar mælzt síðan kl. 15 í gær,
eða álíka margir og sólarhringinn
áður, þannig að útlit er fyrir,
a.m.k. í bili, að skjálftum sé hætt
að fjölga þótt þeir séu mjög marg-
ir. Þeir eru einnig heldur smærri
nú og mældust 12 skjálftar frá
miðjum degi í gær fram á morgun
nú á styrkleikabilinu 2 til 2,3 stig.
Er það álíka fjöldi skjálfta yfir
tvö stig og sólarhringinn á undan,
en laust fyrir hádegið í gær mæld-
ist einn skjálftanna 3 stig og
fundu menn í starfsmannabúðun-
um við Kröflu hann greinilega.
Hjörtur á skjálftavaktinni vildi
engu spá um hvort skjálftavirkn-
in væri eitthvað í rénun , skjálft-
arnir kæmu í hrinum og þannig
gæti þeim fjölgað verulega á
skömmum tíma.
Nú eru aðeins um 30 manns á
vinnusvæðinu, þar sem helgarfrí
var um helgina, en á morgun
verður mannskapurinn væntan-
lega orðinn 170 manns.
-G.S.
m
frjálst, úháð daghlað
„Ég fer ekki í
Sölunefndina”
segír Magniís
Bjarnfreðsson
Magnús Bjarnfreðsson biður
þess getið, að hann sé ekki meðal
umsækjenda um stöðu forstjóra
Sölunefndar varnarliðseigna.
Kveðst hann ekki koma til álita
við ráðningu í það starf.
Tilefni þessarar athugasemdar
ft'agnúsar Bjarnfreðssonar er frá-
si gn DB sl. laugardag þar sem
srigt er að vegna þeirrar leyndar
sem hvíli yfir því hverjir sæki um
: ðurgreint starf, séu á lofti get-
í átur um hver það muni hljóta.
Var þess og getið, að margir teldu
iMagnús nú líklegastan til að
verða hinn útvalda.
BS.
Hiísavík:
Menn gripu
skíðin og
fóru fyrir
húshornið
Húsavíkurlögreglan átti rólega
helgi og Húsvíkingar sinntu frem-
ur rólegum skemmtunum og
hollri útivist en ærslum og ófriði.
Sunnukvöld var haldið í félags-
heimilinu á laugardagskvöld, með
tilheyrandi grisaáti. Þar fór allt
vel fram.
I gær þyrptust Húsvíkingar
tugum eða hundruðum saman í
skíðabrekkurnar i Húsavíkur-
fjalli. Þeir þurfa heldur ekki
langt að fara. Fyrsta skíðalyftan
er innan við 200 metra frá hótel-
inu. Ágætis veður var og nutu
menn útiverunnar og ágætis
skíðafæris.
-ASt.
Skárustog
mörðust í bílveltu
Bílvelta varð I gærkvöldi upp
úr klukkan tíu á Reykjanesbraut,
rétt sunnan við Vogaafleggjar-
ann. Tvær konur sem í bílnum
vor« slösuðust nokkuð, bæði
mörðust og skárust. Voru þær
fluttar í sjúkrahús.
Bíllinn fór mjög illa, hefur
sennilega farið fleiri en eina
veltu og lenti í stórgrýtisurð. Er
hann talinn gjörónýtur. Var hér
um að ræða Cortinu-bifreið af
eldri gerð.
-ASt.
Haukur Guðmundsson.
Rætt við Friðrik Ólafsson á Hoogoven-mötinu \Wijk aan Zee:
Geller efstur eftir þrjár umferdir
— Stórmeistarajafntefli hja FriðriK — tap hjá Guðmundi
,,Eg hefi kannski verið með
aðeins skárra tafl á móti Kura-
jica en augljós uppskipti fram-
undan leiddu til þess, að við
sömdurn um jafntefli eftir 17
leiki," sagði Friðrik Olafsson í
viðtali við DB eftir þriðju um-
ferðina i gær.
..Það fór eiginlega illa hjá
Guðmundi, að hann skyldi tapa
f.vrir NikOlac," sagði Friðrik.
Hann kvað Guðmund hafa fórn-
að og átt jafnfefli í skákinni
þegar hann laldi sig s.já eitt-
hvað betra. ..Það revndisl tál-
sýn." sagði Friðrik.
Aðrar skákir úr þriðju um-
ferð fóru þannig:
Geller—Barczay:l-0
Kavalek—Timman: 'h-'A
Miles—Böhm: Biðskák. Böhm á
peð yfir og a.m.k. jafntefli.
Sosonko—Ligterink: Biðskák.
Liklegur vinningur hjá Sos-
onko.
Staðan í Hoogovens-mótinu i
Wijk aan Zee í Horiandi eftir
þrjár umferðir er þannig:
1. Geller. Sovét.: 24 vinning.
2. Kurajica, Júgóslavía,: 2 vinn-
ingar.
3. -4. Sosonko og Böhm,
Hollandi: 14 vinningur og bið-
skák.
5.-6. Friðrik og Timman.
Hollandi: 1'4 vinning.
7. Miles, Bretland: 1 vinningur
og biðskák.
8.-10. Guðmundur, Kavalek,
Bandar., Nikolac, Júgósl.: 1
vinningur.
11. Ligterink, Hollandi: 4 vinn-
ingur og biðskák.
12. Barczay. Ungverjal.: 4 vinn-
ingur.
í- dag, mánudag, eiga kepp-
endur frt. Á morgun,
þriðjudag, teflir Friðrik
(svart) við Nikolac og Guð-
mundur (svart) viðTimman.
í fyrstu umferðinni áttust
þeir við Friðrik og Guðmundur
og gerðu jafntefli. í annarri
umferð varð jafntefli hjá Frið-
rik og Böhm og einnig hjá Guð-
mundi og Kurajica. BS
MÁNUDAGUR 17. JANUAR 1977.
>;-4
ÁA3
V
A
Æ
&
W
A