Dagblaðið - 13.12.1978, Síða 16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978
Tekur Karl stefnu á
Belgíu eða Holland?
m m jr w W ■ ■ W ■ ■ ■ - ■ w ■ ■ ■ *
— Landsleikir við Dani
á sunnudag og mánudag
„Þeir eru ekki á heppilegum tima fyrir
okkur landsleikirnir við Dani á sunnu-
dag pg mánudag — en því varð ekki
breytt. En þvi lofa ég að strákarnir munu
leggja sig alla fram til að sigra Dani —
það er alltaf mikill metnaður íslenzkra
landsliðsmanna að sigra Dani,” sagði
Jóhann Ingi Gunnarsson, landsliðsþjálf-
ari, á blaðamannafundi HSÍ i gær.
Valsmenn leika við Dynamo Búkarest
í þessari viku í Rúmeníu — og koma heim
aftur á laugardag. Axel Axelsson og
Ólafur H. Jónsson, sem leíka í ísl. liðinu,
eiga erfiðan leik með Dankersen gegn
Gummersbach á laugardag og koma heim
þremur klukkustundumfyrir fyrri leikinn
við Dani, sem verður á sunnudagskvöld
kl. 21.00 i Laugardalshöllinni. Vikingur
leikur þá i Ystad i Evrópukeppninni —
og landsliðsmenn félagsins koma heim á
mánudag í síðari leikinn, sem verður á
mánudagskvöld kl. 21.00.
Danir urðu í fjórða sæti í siðustu
heimsmeistarakeppninni og koma með
alla sina beztu leikmenn — eins og áður
hefur verið skýrt frá í DB — nema þá
Anders-Dahl Nielsen og Michael Berg.
Það er lítið miðað við þau forföll, sem
orðið hafa hjá okkur, og að ýmsu leyti
nýtt landslið með þekktum nöfnum, sem
Jóhann Ingi valdi í landsleikina við
Dani. Einn nýliði er í liðinu, Atli Hilm-
arsson, hinn bráðefnilegi leikmaður í
Fram. Þrír „útlendingar” verða í lands-
liðinu, auk Axels og Ólafs, Gunnar
Einarsson, markvörður hjá Aarhus-
KFUM, sem talinn er í hópi beztu mark-
varða i 1. deildinni dönsku.
Fyrri leikurinn verður á sunnudags-
kvöld í Laugardalshöll og þá verða þessir
leikmenn i baráttunni gegn Dönum:
Jens Einarsson, ÍR, 6
Gunnar Einarsson, KFUM, 54
StefánGunnarsson, Val, 47
Þorbjörn Jensson, Val, 14
Bjarni Guðmundsson, Val, 34
Þorbjörn Guðmundsson, Val, 39
Steindór Gunnarsson, Val, 16
Gústaf Björnsson, Fram, I
Atli Hilmarsson, Fram, 0
Axel Axelsson, Dankersen, 70
Ólafur H. Jónsson, Dankers., 104
Hörður Harðarson, Haukum, 3
Stefán Gunnarsson verður fyrirliöi
fyrri leiknum, en í síðari leiknum Árni
Indriðason, sem verður fyrirliði lands-
liðsins i vetur. í síðari leikinn bætast
þessir fimm leikmenn við:
Árni Indriðason, Viking, 45
Páll Björgvinsson, Víking, 31
Ólafur Jónsson, Víking, 8
Viggó Sigurðsson, Viking, 36
Ólafur Benediktsson, Val, 81
Mikið stendur til framundan hjá is-
lenzka landsliðinu og landsleikirnir við
Dani fyrstu leikirnir i miklu æfingapró-
grammi fyrir B-keppni á Spáni síðast í
febrúar — forkeppni ólympíuleikanna i
Moskvu 1980.
Landsleikir verða við Bandaríkja-
menn 28. og 29. desember næstkomandi
hér heima. 6. og 7. janúar verða lands-
leikir við Pólverja í Laugardalshöll. Þá
tekur ísland þátt í Baltic-bikarkeppninni
9.—14. janúar. Þeir Axel Axelsson og
Ólafur H. Jónsson munu ef að líkum
lætur leika þar með islenzka landsliðinu
svo og í leikjunum gegn Bandarikjunum
og Póllandi. Hafa fengið leyfi frá
Dankersen. Axel á að vísu við meiðsli nú
að stríða — en sem betur fer er það ekki
eins alvarlegt og talið var. Blóð i ökkla-
— Karl Þórðarson ræðir við Heiman, stjóra La Louviere í dag
„Já, ég er aö fara með Akraborginni „Það er ýmislegt að ske — ég þarf að Excelsior, sem einnig er i Rotterdam og í
núna til Reykjavíkur og ég mun ræöa hugsa málió og athuga hvað er bezt,” nánu sambandi við Feyenoord. Gylfi
viö Heiman, framkvæmdastjóra La sagði Karl ennfremur. Hann var á ætlar að ræða betur við Stephan vegna
Louviere í Reykjavík I dag,” sagöi Karl Keflavíkurflugvelli í gærdag og tók þar á þeirrar breyttu stöðu, sem er komin upp
Þóröarson, landsliðskappinn snjalli I móti Gylfa Þórðarsyni, formanni Knatt- — og það verður fljótlega,” sagði Karl
knattspyrnunni, þegar DB ræddi við spyrnuráðs Akraness, sem var að koma ennfremur. Karl fer upp á Akranes aftur
hann á Akranesi í morgun. Eins og áöur frá Hollandi með viðkomu í London. í kvöld — en hvort stefnan verður tekin
hefur komið fram hér i blaðinu hefur „Gylfi kom með tilboð frá Stephan, á Belgíu eða Holland eftir það kemur
Karl fengið tilboð frá La Louviere um að framkvæmdastjóra Feyenoord, til mín væntanlega í ljós, þegar líður á daginn.
gerast þar atvinnumaður — mjög girni- — en það er ekki í sambandi við Feyen- „Þú hefur í hendi þér að gerast at-
legt tilboð af þvi er DB hefur frétt. oord heldur annað hollenzkt félag, vinnumaður í knattspyrnu — ekki satt?”
Karl Þórðarson
spurðum við Karl í morgun. „Jú, það er
rétt — og þetta er allt saman ákaflega
spennandi,” sagði Karl en vildi skiljan-
lega ekki úttala sig um málið. „Bezt —
ég þarf að athuga vel hvað er bezt í þess-
um málum,” sagi Karl að lokum.
Man. City féll
í Southampton
Southampton sló Man. City út í enska
deildabikarnum í gær og er því komið i
undanúrslit keppninnar. Þeir Phil Boyer
og Evans skoruðu fyrir Dýrlingana —
mark i hvorum hálfleik, en eina mark
Man. City var sjálfsmark Chris Nicholl.
(Jrslit á Englandi i gærkvöld:
Deildabikarinn
Southampton—Man. City 2—1
2. deild
MESTA ÚRVAL AF BARBIE VÖRUM FÁIÐ ÞÉR í
Iþróttir
Iþróttir
1 ÍV- “ i
f pp* ■ ■ * já ádmik. '
Lt L L
LEIKFANGABÚÐINNI LAUGAVEG111 OG 72
SÍMAR15395 OG 26045. SENDUM Í PÓSTKRÖFU UM ALLT LAND
Preston—Charlton 6—1
Ensk-skozki bikarinn
Burnley—Oldham 0—1
Þetta var siðari leikur liðanna i úrsiit-
um. Burnley vann samanlagt 4—2.