Dagblaðið - 05.03.1979, Síða 5
5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. MARZ 1979.
Eiga skattborgarar að
greiða skemmdu gaffal-
bitana í Rússiandi
Þær endurteknu yfirlýsingar for
ráðamanna Sölustofnunar lagmetisá
ilslandi að flytja eigi heim skemmdu
gaffalbitana frá Sovétríkjunum og
Iselja þá á öðrum mörkuðum sem 2
flokks vöru, hafa vakið furðu og
umtal sérfróðra manna í sjávarútvegi
og leikmanna. Einn háttsettur maður
innan sjávarútvegsins fullyrti við DB
að verið væri að leita að einhverri
opinberri stofnun og forráðamaður
eða forráðamenn hennar ættu að
taka á sig sökina varðandi gaffalbita-
framleiðsluna til þess að ríkissjóður
bæri það 300 milljón króna tjón sem
af skemmdri útflutningsvöru hefði
hlotizt ásamt þeim birgðum af
skemmdri síld sem eftir væru vegna
of lítils salts í 13000 tunnum af síld
sem saltaðar voru fyrir K. Jónsson &
Co. á Akureyri á Hornafirði 1977, en
þar ákváðu forsvarsmenn fyrir-
tækisins á Akureyri saltmagnið og
var það nokkuð undir þeim mörkum
sem lágmark telst.
Fullyrt hefur verið við DB að
hvergi sé stafkrók að finna í lögum
að Framleiðslueftirlit sjávarafurða
eigi að fylgjast með framleiðslu eins
og gaffalbitum. Hins vegar sé það í
lögum varðandi Sölustofnun lagmetis
að annastslikt.
Bent hefur verið á nýjar
reglugerðir sem gætu hugsanlega
breytt málunum í þessum efnum, en
lögfræðingar segja, að ekki sé hægt
að gefa út reglugerðir nema þær séu
innan ramma laga sem í gildi séu.
Nýjar reglugerðir varðandi þetta mál
séu þvi lögleysa.
Sölustofnun lagmetis hefur á und-
anfömum ámm fengið digra sjóði til
meðferðar. Um fimm ára skeið, í
byrjun, fékk stofnunin fast framlag
sem talið er samsvara allt aö milljarði
á ári nú. Stofnunin hefur fengið út-
flutningsgjöld af allri sinni sölu til
eigin ráðstöfunar, hún hefur fengið
útfiutningsgjöld af grá-
sleppuhrognum til eigin meðferðar
og nú síðast hefur hún fengið út-
flutningsgjöld af sykurhrognum til
eigin meðferðar.
Af þessu sést að stofnunin ætti að
ráða yfir nokkru fé til skakkafalla og
ekki þurfa að hengja saklausa fyrir
þau mistök sem hafa orðið í lag-
metisiðnaðinum. Mætti þó jafnvel
enn fleira til nefna sem fallið hefur til
Sölustofnunar lagmetisins, eins og
t.d. gengishagnað.
Komið hefur fram í blöðunum að
fyrirtækið Triton hefur selt lagmeti
fyrir um 250 milljónir króna það sem
af er árinu og geri selt enn meira. Hjá
þvi fyrirtæki starfa tveir og hálfur
starfskraftur.
Hjá lagmetinu starfa að því er
fullyrt er 14 menn. Salan er lítil sem
engin og markaðurinn að mestu
bundinn við Rússland. Nú er honum
stefnt í voða með skemmdri vöru og
kann að verða úr sögunni.
-ASt.
Hnífaslagur í heimahúsi stöðvaður f tíma
— mikið um akstur undir áhrifum áfengis um helgina
Slagsmál i heimahúsi í Reykjavik,
þar sem gripið var til hnífa, urðu
stærsta mál lögreglunnar um helgina.
Svo skjótt var sá leikur skakkáður að
ekki kom til stórmeiðsla en tveir menn
voru teknir í vörzlu lögreglunnar á
laugardagsnótt og sleppt er af þeim var
bráð.
Eftrirleikur málsins var lítill sem
enginn, annar en sá að allir voru
reynslunni ríkari.
Töluvert kvabb var á Reykjavíkur-
lögreglunni um helgina vegna áfengis-
neyzlu en fyrsta helgi hvers mánaðar er
oftast litrikust í þeim efnum, því þá er
buddan fyllst.
Allmikið var um akstur undir
áhrifum áfengis á öllu Stór-Reykja-
víkursvæðinu og verður sá þáttur mála
ýmsum dýr og eftirminnilegur. Var t.d.
um 7 tilfelli að ræða hjá Hafnar-
fjarðarlögreglu, en það nálgast met.
Á Hallærisplani varð allmikill sam-
söfnuður unglinga og margir teknir úr
umferð. Annars hamlaði ófærð fólki
frá þátttöku í leikjum helgarinnar svo
sennilega hafa margir kosið „heima-
völl” um helgina. -ASt.
Umferðavika JC
Reykjavík:
Vangeta
gagnvart
nýjum tækni-
viðhorfum
Félagið Junior Chamber í Reykja-
vík gengst fyrir umferðarviku í
Reykjavík um þessar mundir. Hún
hófst í gær og stendur næstu sex daga
eða til 10. marz. Á dagskránni þessa
daga verður alls kyns fræðsla uppi
höfð í fjölmiðlum og áróðurs-
spjöldum dreift. Þá hefur Junior
Chamber einnig gengizt fyrir rit-
gerðasamkeppni i 9. bekk
grunnskólanna í Reykjavík, þar sem
nemendum gefst kostur á að skrifa
um þrjú efni tengd umferðinni.
Meðal þeirrar fræðslu sem félagið
gengst fyrir, er norsk sjónvarpskvik-
mynd um það hvernig umferðar-
merkin urðu til. Þá verða hugleiðing-
ar um málefni tengd umferðinni í
dagblöðum, svo og auglýsingar í út-
varpi og blöðum. Þá verða áróðurs-
spjöld á strætisvögnum Reykjavíkur
og Kópavogs tengd umferðarvikunni
út allan marzmánuð og einnig hefur
áróðursspjöldum verið dreift í
verzlanir og opinberar stofnanir í
Reykjavík.
í greinargerð frá Junior Chamber
í Reykjavík segir meðal annars að
umferðaröryggi sé sá málaflokkur,
sem nú á dögum sé orðinn verulegur
þáttur í daglegu lífi okkar. „Tækni-
framfarir og fjöldi farartækja gera
það að verkum að umferðin verður
stöðugt flóknari og umfangsmeiri.
Vegalengdir hafa aukizt í öfugu hlut-
falli við tímann, sem menn telja sig
hafa til að sinna erindum sínum.
Vangeta okkar gagnvart þessum m
nýju tækniviðhorfum speglast í
óhugnanlegum slysa- og dánartölum.
Þessar staðreyndir hrópa á nauðsyn
þess að umferðaröryggismálum sé
veitt stöðugt athygli ogumræða ”-XT.