Dagblaðið - 05.03.1979, Page 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. MARZ 1979.
OUUUTFLUTNINGURINN
HAFINN A NYIIRAN
Olía flaeðir nú á nýjan leik frá
íran, sem var áður en byltingin hófst
annað mesta oliuútflutningsriki ver-
aldar. Olían, sem er svo mikilvæg
vestrænu ríkjunum, hefur ekki verið
flutt út í tíu vikur.
Olíuútflutningurinn hefst á ný á
12. ártíð Mohammad Mossadegh,
sem þjóðnýtti oliulindir írans árið
1953 er hann varö forsætisráðherra.
Við valdatöku hans varð íranskeisari
að fara í stutta útlegð.
íransstjórn þjóðnýtir nú olíuna á
nýjan leik og hefur tilkynnt að hún
muni ekki lengur skipta við þá
vestrænu samsteypu, sem sá um mest
allan oliuútflutninginn áður.
Nú er útflutningurinn 1.6 milljón
tunna af olíu á dag, en það er tæplega
fjórðungur þess, sem var er mest var
flutt út, en áður en verkföll í olíu-
iðnaðinum hófust voru fluttar út um
6.5 mUljónir tunna af olíu á dag.
íran sleit öll stjórnmálatengsl við
— nemur nu um
fjórðungiaf
þvíeráðurvar
Suður-Afríku í gær og bað s-afríska
ræðismanninn í íran að yfirgefa
landið. Suður-Afríka keypti 90% af
allri sinni olíu í Iran.
Skiðamaðurínn er óbanginn þótt flugið virðist nokkuð hrikalegt. Myndin er
tekin í Jackon Hole i Wyoming i Bandarikjunum, en þar eru skiðabrekkur
hvað haestar og lengstar i Bandarfkjunum.
Noregur:
103 ára á skíöum
Hann lætur ekki háan aldur aftra sér frá því að fara á skíði. Það er Thomas
Juell sem hér spennir á sig skíðin sin, en hann er Norðmaður og 103 ára að
aldrí. Það hefur viðrað vel til skíðaiðkana í Noregi i vetur og Thomas gamli
hefur því oft getað dregið fram skíðin og rennt sér bunu, ungur í anda.
Skiðin eru orðin gömul rétt eins og eigandinn en duga vel. Thomas ber
sjálfur skiðin sin upp í brekku og kærir sig ekki um aðstoð þeirra er yngri eru.
NÝJAR TILLÖGUR CARTERS
Carter gerði síðustu tilraun í gær til
þess að koma nýjum friðarviðræðum
ísraels og Egypta af stað á nýjan leik.
Á síðasta degi viðræðna sinna við
Begin forsætisráðherra ísraels lagði
Bandaríkjaforseti fram nýjar tillögur.
Begin sendi hinar nýju tillögur þegar
til umsagnar ísraelska þingsins og biður
um ákvörðun þess á fimmtudag. Begin
hefur lofað Bandaríkjaforseta að
kanna hinar nýju tillögur vandlega, en
hann vildi ekki segja álit sitt á þeim að
svo stöddu.
ísraelskir embættismenn segja að
þessar tillögur sé nokkuð frábrugðnar
þeim er Bandaríkjaforseti lagði til í
upphafi viðræðna þeirra, sem hófust
fyrir fjórum dögum. Einn embættis-
mannanna sagði þessar tillögur
stefna í mun betri átt.
Carter hafði þegar að loknum
viðræðum við Begin samband við
Sadat Egyptalandsforseta og greindi
honum frá efni tillagnanna, en þær
verða ekki lagðar formlega fyrir
Egypta, nema ísraelsmenn samþykki
tillögurnar að nýjum samningi.
Portúgal:
Soares endurkjörínn
formaður sósíalista
Mario Soares fv. forsætisráðherra
Portúgals var endurkjörinn formaður
Sósíalistaflokksins í Lissabon í gær-
kvöldi með miklum meirihluta at-
kvæða.
Forseti Portúgals Antonio Ramalho
setti Soares af sem forsætisráðherra í
júlí sl. Soraes var eini frambjóðandinn
í formannskjörinu i gær. Hann fékk
920 af 966 greiddum atkvæðum á
flokksþinginu.
Flokksþingið markaði mikla stefnu-
breytingu með því að samþykkja að
flokkurinn geti gengið til samstarfs við
aðra stjómmálaflokka eftir næstu
kosningar árið 1980.
Þegar Sósíalistaflokkurinn varð
stærsti flokkurinn í kosningunum
1976, fyrstu lýðræðislegu kosningun- stjórna án aðstoðar annarra flokka,
um í Portúgal i hálfa öld, tilkynnti jafnvel þótt flokkur hans hefði ekki
Soares að hann krefðist þess að fá að náð meirihluta á þingi.
Marío Soares leiðtogi sósíalista.
Tékkneskur andófsmaður:
„FÆ EKKIAÐ KAUPA MAT”
Tékkneska andófsmanninum Vaclav
Havel hefur tekizt að smygla út bréfi úr
stofufangelsi sínu, þar sem hann kvart-
ar yfir því aö aöstæður sínar hafi allar
versnað til muna og sé honum nú t.d.
meinað aö kaupa sér matvæli.
Havel er félagi í baráttuhreyfingunni
77 sem berst fyrir auknum mannrétt-
indum, en hann hefur verið í stofufang-
elsi frá því 8. desember sl.
í opnu bréfi til innanríkisráðherrans
dr. Jaromir Obzina, segir Havel að
stofufangelsisvistin verði stöðugt verri.
Hann segir m.a.: „Þar til nýlega var
mér t.d. leyft, þrátt fyrir erfiðleika og
lögreglufylgd, að kaupa til heimilis-
ins”. Bréfið var skrifað í íbúð hans í
Pragsl. laugardag.
Havel segir að frá 2. marz sl. hafi
hann ekki fengið aö kaupa mat og lög-
reglumennirnir sem gæta hans hafa lýst
því yfir að hann megi þeirra vegna
svelta til bana og muni þeir glaðir
smíða kistu utan um hann.
Merkur dagur í geimf erðasögunni:
Voyager 1. fer fram
hjá Júpiter í dag
Bandaríska geimskipið Voyager 1.
mun fljúga fram hjá reikistjömunni
Júpiter í dag. Geimskipið er i góðu
lagi og sendir frábærar myndir frá
gufuhvolfi Júpiters, að þvi er dr. Ray
Heacock yfirmaður áædunarinnar
sagði i Pasadena í Californíu.
Geimfarið er 816 kg ómannað far
og flýgur fram hjá Júpiter í 172.750
mílna fjarlægð. Geimskipið hefur þá
farið um 400 milljóna milna vega-
lengd frá jörðu. Voyager 1. fer fram
hjá Júpiter með feikilegum hraða
eöa 81 þúsund mílna hraða á klukku-
stund. Geimfariö sjónvarpar
myndum frá reikistjörnunni um leið
og það fer fram hjá, en Júpiter er 317
sinnum stærri en jörðin.
Vísindamenn vonast til þess að
Voyager 1. veiti mikilsverðar upplýs-
ingar um gufuhvolf Júpiters og
hinar miklu skýjamyndanir og ofsa-
fengnu rafmagnsstrauma umhverfis
hnöttinn. Þá er einnig vonazt til þess
að skýringar fáist á hinum rauða eða
rauðbrúna lit, sem einkennt hefur
myndir frá Júpiter.
Á blaðamannafundi, sem haldinn
var í gær vegna ferðar Voyager 1.
sagði vísindamaöurínn Laurence
Soderblom að dagurinn í dag gætí
orðið einn hinn merkastí i allrí geim-
ferðasögunni.
Annað far, Voyager 2.er einnig á
sömu leið og Voyager 1., en um 50
milljónum milna á eftir. Búizt er við
að Voyager 2. fljúgi fram hjá Júpiter
i júlí nk., en báðar flaugarnar eru á
leiö til Satúrnusar.