Dagblaðið - 05.03.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. MARZ 1979.
15
N
Loikfólag Grindavikur:
Fjalla-Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson.
Leikstjóri: Höskuldur Skagfjörö.
Fjalla-Eyvindur er margslungið
leikrit. Trúlegt er að höfundurinn
hafi nálgast verkefnið í upphafi með
rómantískar hugmyndir en er líða
tekur á það hverfa þær og við tekur
nöturleg lýsing á lifi útlaganna.
Niðurstaðan virðist sú sama og hjá
Tolstoj í önnu Karenínu: móðir sem
missir barn eða börn sín missir um
leið fótfestu i lífinu. Jóhann Sigur-
jónsson var maður andstæðnanna.
Fjalla-Eyvindur er hans höfuðverk.
Guðveig Sigurðardóttir og Ástbjörn
Egilsson. Þótt Halla eigi að vera eldri
en Eyvindur þá finnst ntér aldurs-
munur þeirra fullmikill. Framan af er
leikur þeirra Guðveigar og Ástbjarn-
ar í daufara lagi, sérstaklega fannst
mér skorta hita í ástarsenurnar.
örbirgð og sturlun
En þetta fór batnandi í öðrum
þætti og þriðji og síðasti þátturinn
fannst mér dágóður. Ástbjörn hefur
örugga sviðsframkomu. Guðveig var
góð í átökunum vjð Arnes og i
síðasta þættinum, þegar örbirgð og
sturlun eru að gera út af við hana, fer
hún á kostum. Arnes leikur Lúðvík
Jóelsson. Hann er reyndastur leikara
i Grindavík og sýndi mjög góðan
leik. Svipað má segja um Sigmar
Sævaldsson sem holdsveika mann-
inn. Einnig var umtalsverð frammi-
staða Valgerðar Þorvaldsdóttur i
hlutverki Guðfinnu. Hreppstjórinn,
leikinn af Hauki Guðjónssyni, var
hressilegur. Smalinn, ungur piltur,
Eiríkur Dagbjartsson, vakti ætíð at-
hygli og Gunnar Tómasson sem
sýslumaðurinn var raddsterkur. Leik-
tjöld og búningar voru smekklegir.
Ég vil óska Leikfélagi Grindavikur til
hamingju. Það er gleðilegt, þegar
tekist er á við erfið verkefni. Á
Hilmar Jónsson
Suðurnesjum starfa nú fjögur leikfé-
lög og öll eru með sýningar i undir-
búningi. Grindvíkingar voru fyrstir.
Ég vona að þeir hljóti umbun fyrir
sitterfiöi. Hilmar Jónsson.
Úr sýningu Fjalla-Eyvindar í Grindavík. Hópatriði I öðrum þætti.
Djúpt, Ijóðrænt og hrikalegt. Það er
eitt af hátindunum i leikbókmenntum
heimsins. Það er mikið í ráðist hjá
áhugaleikhúsi að færa það á svið.
Það hafa Grindvikingar glímt við nú
um sinn undir stjórn Höskuldar
Skagfjörð. Frumsýningin var á laug-
ardaginn í samkomuhúsi Kvenfélags-
ins. Leikfélag Grindavíkur hefur
starfað af allmiklum krafti hin síðari
ár. Flest verkefni þess hafa verið af
léttara taginu. Hér er því sótt á bratt-
ann. Vonandi kunna Suðurnesja-
menn að meta þá viðleitni. Aðalhlut-
verkin, Höllu og Eyvind, leika
|A
Arngrímur holdsveiki (Sigmar Sævaldsson), Halla (Guðveig Slgurðardóttir) og
Kári (Ástbjörn Egilsson).
Ertu farinn að hugsa hlýtt til
sumarsins? Hvað á að gera í
fríinu? Hvertskal halda? Verður
farið til útlanda með fjölskylduna?
Á að taka bílinn með til
Norðurlanda eða fljúga suður til
sólarstranda?
Sjaldnast eru auraráðin of mikil ef
ætlunin er að gera góða reisu. En
nú er orðið auðvelt að bæta úr því.
Það gera IB-lánin.
Með reglubundnum mánaðar-
legum sparnaði og IB-láni
geturðu tryggt þér umtalsvert
ráðstöfunarfé. Og ef makinn er
með - tvöfaldast möguleikarnir.
Er þettaekki lausn sem þér líkar?
Leitið upplýsinga um IB-lán,
fáið bækling
Banki þeirra sem hyggja að framtíðinni
* Iðnaðarbankinn
Vantar lán í
Land og syni
,,Málið er enn óljóst, það er ekki
ljóst hvort bankar eru til með að lána
svona fuglum," sagði Indriði G, Þor-
steinsson rithöfundur í viðtali við Dag-
blaðið, en fyrirtækið ísfilm sf. hefur
undanfarið kannað möguleikana á því
að kvikmynda skáldsögu Indriða, Land
Indriði G. Þorstcinsson rithöfundur.
og sy ni.
„Ágúst Guðmundsson kvikmynda-
gerðarmaður hefurgert prýðilegt hand-
rit, en hann og við Jón Hermannsson
stöndum að þessu fyrirtæki,” sagði
Indriði ennfremur. „Samkvæmt áætl-
un myndi kvikmynd þessi kosta um
40—50 milljónir og eins og ég sagði er
framhaldið á málinu algjörlega háð þvt
að við fáum einhver lán.” -HP.
SÓn A BRATTANN
Leiklist
Gleðilegtsumar,
gott er nú blessað
veðrið!!
Bæklingur til um
„Multiple sclerosis”
Heimilislæknir DB vildi koma þvi Ti| er |itiu bæklingur um MS, þar
á framfæri vegna svars við spurningu sem bjegt er að fá allar upplýsingar
um sjúkdóminn MS i DB si. föstu- um sjúkdóminn. Hann fæst hjá
dag, að til er félag MS sjúkiinga. MS ólöfu Ríkarðsdóttur Hátúni 12 eða í
er skammstöfun á heitinu „Multiple bóksölustúdentaogerókeypis.
sclerosis” eða mænusiggi.