Dagblaðið - 05.03.1979, Page 20

Dagblaðið - 05.03.1979, Page 20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. MARZ 1979. Iþróttir gþróttir Týr heldur sínu striki — Í3. deild karla Týr heldur áfram sigurgöngu sinni í 3. deild karla í handknattleik. Um helgina sigraði Týr lið Dalvíkinga 23— 20 eftir að hafa haft yfir i leikhléi 11— 7. Týr hafði ávallt undirtökin og verð- skuldaði sigur. AC Mflanó með fjögurra stiga forustu á Ítalíu AC Mílanó hefur nú fjögurra stiga forustu á Ítalíu eftir 3—2 sigur í Fior- cntina. Af efstu iiðum sigraði aðeins Perugia, 1—0 gegn Aveelino. Inter Mílanó og Tórínó mættust i Mílanó og þar varð markalaust jafntefli, 0—0. Juventus og Bolognía skildu jöfn, 1—1 í Tórínó. Staðan á ítaliu er nú: ACMílanó 20 14- 4 2 34-12 32 Perugia 20 8 12 0 22-10 28 Tórínó 20 9 9 2 29-14 27 Inter Mílanó 20 7 12 1 29-14 26 Juventus 20 8 9 3 23-14 25 I Björn Borg — fékk morðhólun frá Rauðu herdeildinni á Ítalíu. Borghótað lífláti — af Rauðu herdeildinni á Ítalíu Kauða herdeildin á Ítalíu hefur ,,dæmt” Sviann Björn Borg til dauða. Á dreifimiðum, sem útbýtt var í Sví- þjóð var Birni Borg hótað lífláti þegar hann leikur á Ítalíu í næsta mánuði, tekur þar þátt í tennismóti í Ramazz- otti. En Bjöm Borg hefur ekki óskað verndar lögreglu og ítalskir sérfræðing- ar i skæruhernaði borgarskæruliða telja að ekki beri að taka mark á bréf- unum, sem send voru. Þau voru skrif- uð á sænsku og ensku og send út i Sví- þjóð. Ástæðan fyrir „dóminum” var, að myndir birtust í sænskum blöðum af Borg í ísraelskum hermannabúningi þegar hann heimsótti ísrael síðastliðið haust. í Memphis, Bandaríkjunum sigraði helzti keppinautur Jimmy Connors á miklu tennismóti þar. Hann sigraði Arthur Ashe í úrslitum bandaríska meistaramótsins í tennis innanhúss. Þar með varð Connors annar maðurinn í langri sögu meistaramótsins til að sigra fimm sinnum, hinn var C. Grant en hann sigraðj á árunum 1903—1912. Jón Sig. meiddist og KR beið skipbrot f Njarðvík —Jón Sigurðsson meiddist í upphitun og Njarðvíkingar sigruðu KR í úrvalsdeildinni Jón Sigurðsson, snillingur íslenzks körfuknattleiks varð fyrir þvi óláni að meiðast i upphitun fyrir leik Njarðvik- inga og KR-inga suður í Njarðvíkum. ,,Eg fékk sting í bakið og gat ekld beygt mig. Fékk svipað í fyrra og þetta leiðír frá hrygg út í brjóstkassann,” sagaði Jón Sigurðsson. KR-ingar reyndu mjög að fá Jón í gagnið og Þorseinn Geir- harðsson nuddaði hann en allt kom fyrir ekki. Jón gat ekki beygt sig og Njarðvíkingar unnu sigur á KR í úr- valsdeildinni, 93—84. Þar meö hafa Njarðvíkingar tapað tveimur stigum meir en KR ásamt Vals- mönnum. Það var mikil stemming suð- ur í Njarðvíkum, fjöldi KR-inga fór suður með sjó en heldur lækkaði í þeim hljóðið þegar ljóst varð að Jón lék ekki með meisturum KR. Njarðvíkingar mættu ákveðnir til leiks og komust í 6—0 en eftir það náðu KR-ingar upp góðri baráttu og voru betri í fyrri hálf- leik. Flest gekk upp hjá KR á meðan flest gekk á afturfótunum hjá UMFN, utan það að John Hudson gekk erfið- lega að finna leiðina i körfuna með nokkur skota sinna. En KR-ingar höfðu undirtökin og í leikhléi var staðan43—39. i En leikurinn breyttist í siðari hálf- leik. Njarðvíkingar tóku nú leikinn í sínar hendur, flest gekk upp hjá þeim á meðan sóknarleikur KR-inga beið skip- brot — þar söknuðu KR-ingar stjóra síiisi, Jóns. Njarðvíkingar jöfnuðu fljótt og komust yfir. Þeir létu síðan ekki af þessari forustu og sigruðu örugglega, 93 —84. Það var greinilegt að þegar á móti blés þá brotnuðu KR- ingar, eins og þeir tryðu ekki á sigur án Jóns. En það var líka eins og úthald KR-inga brysti á meðan Njarðvíkingar efldust með hverri mínútu. Bandarikjamennirnir tveir — John Hudson og Ted Bee voru óvenjuóhittn- ir í Njarðvikum á laugardag. Gekk erfiðlega að ftnna leiðina i körfuna með skotum sínum en Ted hafði legið í flensu og ef til vill hefur það háð honum. En Ted Bee var engu að síður stigahæstur Njarðvíkinga, skoraði 20 stig. Jónas Jóhannsson átti mjög góðan leik, sterkur í vörn þar sem hann tók fjölda frákasta. Gunnar Þorvarðarson átti góða spretti, skoraði 15 stig, Guð- steinn var og mjög góður, baráttu- maður bæði í vörn og sókn. Þá voru ungu strákarnir mjög góðir, Júlíus og Árni. John Hudson skoraði langmest KR- inga 32 stig og var þeirra beztur en Garðar Jóhannsson sýndi einnig mjög góðan leik og skoraði 19 stig. Þá er vert að geta Birgis Guðbjörnssonar og Áma Guðmundssonar en aðrir féllu niður í leik sínum og Einar Bollason var alveg heillum horfinn, skoraði aðeins 2 stig. H. Halls. Þ0R FALLINN — eftir ósigur gegn Stúdentum norðuráAkureyri Staða Þórs er nú vonlaus i úrvals- deildinni í körfu eftir ósigur gegn Stúdentum norður á Akureyri í gær, 99—85. Þórsarar hafa einfaldlega ekki verið nógu góðir í körfunni í vetur og ávalit átt á brattann að sækja um að halda sæti sínu i úrvalsdeildinni. Stúdentar voru betri norður á Akur- eyri og verðskulduðu sigur. Þeir höfðu yfir í leikhléi, 47—40. Með þá Trent Smock og Bjarna Gunnar sem beztu menn sigruðu þeir siðan örugglega, 99—85. Mark Christiansen var stiga- hæstur Þórsara að venju með 34 stig og Eiríkur Sigurðsson skoraði 20 stig. St.Á. íþróttir Hneyksli í Hagaskóla — Valsmenn biðu þar lægri hlut gegn ÍR eftir að stigataf lan hafði sýnt Valssigur, 81-80. Valsmenn héldu knettinum síðustu 49 sekúndurnar og f ögnuðu sigri. En þegar skýrslan var skoðuð kom í Ijós að ÍR hafði sigrað 82-81 Hneyksli — svivirða voru orð sem ómuðu víða um iþróttahús Hagaskóla i gær þegar íR sigraði Reykjavíkurmeist- ara Vals 82—81 í úrvalsdeildinni. Og var furða þó menn væru hneykslaðir, því þegar 49 sekúndur voru til leiksloka stóö á töflunni 81—80 Val í vil. Vals- menn höfðu með öðrum orðum stig yfir og lögöu þvi allt kapp á að halda knettinum. Það tókst þeim. ÍR-ingar gerðu örvæntingarfullar tilraunir til að ná knettinum en allt kom fyrir ekki. Valsmenn léku af skynsemi og sekúnd- urnar tifuðu hver af annarri. Og svo gall flauta tímavarðar — leikurinn var búinn. Valsmenn fögnuðu innilega. Þeir höfðu sigrað — tvö dýrmæt sti{> til Vals eftir harðan og jafnan leik við IR. Síðan fóru dómarar, þeir Erlendur Eysteinsson og Þráinn Skúlason að at- huga leikskýrslu. Og þá kom i Ijós að ÍR-ingum höfðu verið vanreiknuð tvö stig — þeir voru því sigurvegarar. í kjölfarið fylgdi mikil rekistefna þar sem féllu stór orð og jafnvel slagsmái en þar voru áhangendur Vals, sem áttu erfitt að sætta sig við úrslitin. „Það er vart hægt að reikna okkur sigur,” sagði Jón Jörundsson ÍR-ingur. En ekki þýðir að deila við leikskýrsluna. Þar stóð svart á hvitu að ÍR-ingar höfðu sigrað með einu stigi þegar betur var að gáð — Valsmenn skrifuðu ekki undir skýrsluna og hyggjast kæra. Sjálfsagt kemur ekkert út úr þeirri kæru og vonbrigði Valsmanna skiljan- leg. Þetta er ekki í fyrsta sinn að slíkt mál kemur upp í vetur. Óreyndir ungl- ingar settir í erfið störf, sem eru tíma- varzla og að fylla út leikskýrslur. Það er alls ekki hægt að setja út á störf þeirra í sjálfu sér, eða kenna þeim um. Þeir reyna sitt bezta — það er hneykslanlegt að unglingar skuli settir í jafn ábyrgð- armikil og erfið störf. Já, þetta er ekki i fyrsta sinn. Þegar betur var að gáð í skýrslu eftir leik KR og Njarðvíkinga þá kom í ljós að Njarðvíkingum hafði verið vanreiknað eitt stig. Eftir venjulegan leiktíma stóð á ljósatöflu 103—103 og KR sigraði í framlengingu. En þá hefði átt að standa 104—103 Njarðvíkingum í vil. Og nú standa KR-ingar í þeirri óskemmtilegu stöðu að andstæðingum þeirra hafa verið vanreiknuð stig. Val tvö, Njarðvíkingum tvö — og KR-ing- um ofreiknuð tvö stig. Svo eru menn að leggja.hart að sér við æfingar, eyða miklu fé aðeins til að slíkt sé lagt í rúst af klaufaskap. „Mannleg mistök,” var sagt eftir leik KR og UMFN, og einn af forystumönnum í körfunni sagði það sama eftir leikinn. Það er ekki einleikið hvað þessi „mannlegu mistök” henda oft. Hér er heldur um að ræða skipu- lagsleysi, og skipulagsleysið er nú körfuknattleiknum fjötur um fót á ís- landi í dag. í sjálfu sér er fátt að segja um viður- eign ÍR og Vals. Slakur leikur, lítill hraði og leikurinn einkenndist meir af því hve Bandaríkjamennirnir í liöunum reyndu mikið upp á eigin spýtur, jafn- vel svo að íslendingarnir virkuðu sumir hverjir sem statistar. ÍR hafði yfir í leikhléi, 48—40 en Valsmenn byrjuðu síðari hálfleik af miklum krafti og það var ekki fyrr en á þriðju mínútu að ÍR skoraði sína fyrstu körfu, 50—47 ÍR í vil. Skömmu síðar hentu mistökin — á ljósatöflunni stóð 54—52 Val í vil en átti að vera 54—54. Áfram hélt leikur- inn og á 17. mínútu háfði Valur náð 5 stiga forustu, 79—74. Og þegar ein mínúta var eftir skildi aðeins eitt stig, 81—80 Val í vil — eða svo héldu allir. Valsmenn fengu knöttinn þegar 49 sekúndur voru eftir og lögðu allt kapp á að halda knettinum. Það tókst þeim — en þegar þrjár sekúndur voru eftir fékk Þórir Magnússon knöttinn frír, skammt frá körfunni. Skaut en hitti ekki, Valsmaður fékk knöttinn aleinn undir körfunni en þá gall flautan og Valsmenn fögnuðu — en fögnuður þeirra átti eftir að breytast í vonbrigði. í sjálfu sér má segja að hefði Þórir hitt, eins og hann hefði gert í 90% tilvika þá hefði ekki komið að sök. En auðvitað er ekki hægt að setja dæmið þannig upp — Þórir hélt auðvitað að sigur væri i höfn. Stigahæstur IR-ingur var Paul Stew- art með 36 stig, Kristinn Jörundsson 25. Hjá Val var Tim Dwyer efstur með 27 stig, Kristján Ágústsson skoraði 20 stig. H.Halls. Stenmark vann í Lake Placid — í heimsbikarnum í stórsvigi en Peter Luscher hef ur nánast tryggt sér titilinn eftir að hafa hafnað í þriðja sæti Sviinn Ingcmar Stenmark sigraöi í stórsvigi í Lake Placid í Bandaríkjun- um í gær — varö næstum tveimur sekúndum á undan næsta manni, Hans Enn frá Austurriki. Þetta var sjöundi sigur Stenmark í stórsviginu — heíur unnið allar stórsvigskeppninar í vetur. En þrátt fyrir sigur á Stenmark engan möguleika á sigri í heimsbikarnum — Peter Luscher, Sviss nánast tryggði sér titilinn en hann varð þriðji í Lake Placid. „Þegar Stenmark er í svona stuði er vonlaust að sigra hann,” sagði Luscher eftir stórsvigið í Lake Placid en hann hafði forustu eftir fyrri umferðina. í siðari umferðinni sýndi Stenmark allar sínar beztu hliðar og sigraði með yfír- burðum. Hann fór fyrri umferðina á 1:19.42 og síðari á 1:19.51 — saman- lagt 2:28.93. Enn varð annar á 2:41.01 og þriðji varð Peter Luscher á 2:41.10. Þessi árangur nánast tryggði honum sigur í heimsbikarnum vegna reglna sem vakið hafa mikla furðu. Það sem gerði útslagið í Lake Placid var að annar maðurinn í stigakeppninni um heimsbikarinn, Bandaríkjamaðurinn Phil Mahre féll illa og fótbrotnaði, rakst illa á hlið. Staðan í stigakeppni heimsbikarsins er nú: Peter Luscher Sviss 184 Phil Mahre USA 155 Andreas Wenzel, Lichterstein 153 Ingemar Stenmark, Svíþjóð 149 L. Stock, Austurríki 137 Pierr Gros, Ítalíu 117 í Lake Placid fór fram á föstudag keppni í bruni og þar sigraði Peter Wrinsberger, Austurríki á 1:42.88. Annar varö Peter Muller, þriðji David Murray og fjórði Leonard Stock. Hinn átján ára gamli ítali, Leonardo David er vakið hefur mikla athygli í vetur féll illa, kastaðist um 100 metra niður brekkuna og yfir marklínuna. Hann reyndi að standa á fætur en féll niður, meðvitundarlaus.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.