Dagblaðið - 07.05.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. MAl 1979.
5
Bakdyramegin og bindislaus
Jæja, hann hefur ætlað að komast inn hússins við Nóatún. Mun hann hafa
bakdyramegin og bindislaus, sagði ein ekið á umferðarskilti við Nóatúnið og
starfskona veitingahússins Þórskaffis, við það misst vald á bifreiðinni, sem
þegar hún sá hver lokin höfðu orðið á fór i gegnum járngirðingu og fram af
ökuferð manns nokkurs, sem endaði steyptri brúninni. Bakkus var talinn
ofan í gryfju við austurhlið veitinga- hafa verið með í för. DB-mynd Sv. Þ.
r ' "
Steingrímur Hermannsson
landbúnaðarráðherra:
„Ég hef ekki
bakkað með
neitf'...
„Það er ekkert annað en tómur
misskilningur, að ég sé búinn að
„bakka” með stóran hluta landbún-
aðarfrumvarpsins, eins og Dagblaðið
hefur haldið fram,” sagði
Steingrímur Hermannsson landbún-
aðarráðherra í viðtali við DB fyrir
helgi. í dag verður lagt fram á
Alþingi frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum nr. 101 frá 1966 um
Framleiðsluráð landbúnaðarins.
Heildarútgáfa laganna, landbúnaðar-
laganna, sem verið hafa til umræðu í
vetur, var 60 greinar en frumvarpið í
dag er aðeins fjórar greinar og er þar
aðeins gert ráð fyrir breytingum á
skipun Sexmannanefndar þannig, að
ríkisstjórnin tilnefni þrjá menn í hana
í stað samtaka launþega, eins og gert
er ráð fyrir í gildandi lögum.
Það var skipuð ráðherranefnd
sem vinna skyldi að gerð þessara laga
i samræmi við samstarfsyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar,” sagði Steingrím-
ur. „Eftir 2ja mánaða vinnu við gerð
þeirra vildu alþýðuflokksmenn alls
ekki samþykkja stóran hluta þessa
frumvarps, sem þeir voru þóbúnir að
taka þátt í að semja. Þeir skipuðu þá
tíu manna nefnd til þess að ræða
frumvarpið. Þegar ég fór á fund til
þeirra fyrir tíu dögum kom í ljós, að
þeir höfðu ekki kynnt sér málið neitt
af viti og skildu ekki allt , sem i því
stendur. Því var horfið til þess ráðs
að fresta gildistöku ýmissa ákvæða
þess, svo að þeir geti áttað sig á þessu
yfir sumarið. En að ég sé búinn að
,,bakka” með nokkurn skapaðan
hlut þarna er misskilningur. Ég hef
barizt fyrir því að fá útflutnings-
bætur lagðar niður eftir 5 ár og fékk
samþykki fyrir því, með semingi þó,
á aukafundi Stéttarsambandsins.
Þær verða því ennþá við lýði vegna
þessarar frestunar.”
Beinir samningar
,,Ég legg á það höfuðáherzlu, að
samkomulag hefur orðið um að
koma á beinum samningum milli
ríkisvalds og bænda um samdrátt i
landbúnaðarframleiðslunni.
Alls kyns tæknileg atriði um
hvernig því verður háttað hef ég eftir-
látið bændum sjálfum og vil í því
-
sambandi minna á, að Samband
eggjaframleiðenda fór fram á það í
bréfi, að stjórn Stéttarsambands
bænda kannaði, hvernig koma mætti
skipulagi á sölumálin á eggjamarkað-
inum.
Því er alls ekki rétt, að ég
eða rikisstjórnin sé að koma á fót ein-
hverju einkasölukerfi. Ég vil einnig
minna á það, að egg eru seld án eftir-
lits í stigagöngum. Þess vegna, m.a.,
getum við ekki selt egg á Kefiavíkur-
flugvelli, því Bandaríkjamenn gera
miklu str’angari heilbrigðiseftirlits-
kröfur um egg en við.
Landbúnaðarlögin eru sum hver
frá þvi 1932,” sagði Steingrímur.
,,Við erum að vinna að heildarendur-
skoðun á þeim og bætum inn í þau
ýmsum nýmælum. Að hér sé verið að
efia eða koma á fót nýjum miðstjórn-
arstofnunum er alls ekki rétt. Ég er
þess fullviss, að ef þeir menn, sem
hæst hafa látið um landbúnaðarmál,
meina eitthvað með því að ná land-
búnaðarframleiðslunni niður og
komaskipulagi á þessi mál, muni þeir
samþykkja lögin í þeirri mynd að
mestu leyti, sem þau voru lögð fyrir í
vetur,” sagði Steingrímur að lokum.
-HP