Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 24
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
25
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Barcelona
tapaði stigi
— Atletico Madrid jafnaði í
16-16 úrvítakasti 10
sek. fyrir leikslok
„Þetta er mesta spenna, sem ég hef kynnzt í
handknattleik og hrópin frá áhorfendasvæðunum
alveg gífurleg. Þar voru tíu þúsund áhorfendur eða
eins þéttskipafl og frekast er hægt. Spánar-
meisturum Atletico Madrid tókst að jafna í 16—16
úr vítakasti, þegar tiu sekúndur voru eftir — víta-
kasti, sem orkaði tvimælis. Það var slæmt að tapa
stigi í þessum leik en það er fyrsta stigið sem
Barcelona tapar í fyrstu níu umferðunum,” sagði
Viggó Sigurðsson, þegar DB ræddi við hann í
morgun.
Stórleik Barcelona og Atletico lauk því með
jafntefli — og spenna hefur sjaldan verið eins mikil í
Iþróttahöllinni miklu í Barcelona. Það var mikið
jafnræði framan af. Allar jafnteflistölur í S—5, en
síðan komst Barcelona í 8—5. Atletico tókst að
jafna í 8—8 fyrir hálfleik. Sama spennan var í s.h.
og hámarkið á lokamínútunni, Barcelona marki yfir
— en svo kom vítakastið, sem Atletico jafnaði úr.
Mikil harka í leiknum. Viggó var tekinn ómjúkum
höndum — með varnarmann á sér allan timann —
og með marbletti víða. Hann skoraði tvö mörk t
leiknum. Mörkin skiptust mjög á leikmenn
Barcelona — hornamaðurinn hjá Viggó, Serano, var
markhæstur leikmana Barcelona með 3 mörk. Jafn-
teflið varð hinum fjölmörgu áhorfendum mikil
vonbrigði — það er allt á suðupunkti i Barcelona,
þegar Madrid-búar eru annars vegar. Næstum hatur
milli ibúa þessara borga.
Barcelona er efst í 1. deildinni með 17 stig af 18
mögulegum. Síðan kemur Calpisa með 16 stig og
Atletico Madrid í þriðja sæti með 15 stig. Það stefnir
þvi í gífurlega keppni milli þessara þriggja liða.
Barcealona hefur leikið báða heimaleiki sína gegn
hinum tveimur, en þau hafa enn ekki leikið
innbyröis.
Leikmönnum
pesetum hverjum
sigur í Barcelona.
Atletico var heitið 40 þúsund
— 260 þúsund ísl. krónum — fyrir
-hsím.
Laugdælir
halda strikinu
— Tveir Víkingssigrar á
ÍSíblakinu ígær
íslandsmeistarar Laugdæla halda sínu striki í 1.
deildinni i blakinu. Á laugardag fengu þeir Stúdenta
í heimsókn og sigruðu 3—1 (15—3, 15—9, 9—15 og
15—9). Öruggur sigur. Þróttur átti að leika fyrir
norðan á laugardag bæði i karla- og kvennaflokki og
leikmenn félagsins komust ekki norður. Ekki flug-
veður.
Tveir leikir voru í Hagaskóla i gærkvöld. Víkingur
sigraöi Stúdenta þá í hörku-spennandi leikjum bæði
í 1. deild karla og kvcnna. 3—2 í báðum leikjunum.
Karlaleikurinn var mjög tvísýnn — Víkingur sigraði
15—12, 15—10, 11—15, 8—15 og 16—14. í loka-
hrinunni komst Vikingur í 11—3 en þá hrökk allt í
baklás. ÍS komst í 13—11 en það nægöi Stúdentum
ekki. Víkingar náðu sér aftur á strik og sigruðu.
Staðan í 1. deild karla er nú þannig.
Laugdælir 4 4 0 12—2 8
Þróttur 3 2 1 6—5 4
Víkingur 4 2 2 8—8 4
Stúdentar 413 6—10 2
UMSE 3 0 3 2—9 0
í kvennaleiknum sigraði Vikingur IS 3—2 eða
10—15, 15—12, 9—15, 15—13 og 15—10 en í loka-
hrinunni komst ÍS í 8—3 — en fékk aöeins tvö stig
eftir það. Einn leikur var í 2. deild karla á Húsavík á
föstudag. Völsungursigraði Fram 3—1.
ítalir sigruðu Sviss
ítalir sigruðu Sviss í landsleik í knattspyrnu í
Udine á Ítalíu 2—0 á laugardag. Þeir Francesco
Graziani og Marco Tardclli skoruðu mörk Italíu í'
fyrri hálfleik — á 25. mín. og 39. min. ítalska liðið
sýndi frábæra knattspymu framan af en var lélegt í
þeim síðari. Sviss átti þó aldrei möguleika á að
jafna. Áhorfendur voru 32 þúsund og voru allt
annað en ánægðir með þaö hvernig leikurinn
þróaðist.
Paraquay-liðið
sigraði Maímö
Suður-amerísku meistararnir í knattspyrnu,
Atletico Olimpia frá Paraquay, virðast stefna í
öruggan sigur í heimsmeistarakeppni félagsliða í
knattspyrnu eftir sigur á Malmö FF 1—0 á laugar-
dag. Leikið var í Malmö og hiti við frostmark. Það’
háði Paraquay-mönnum mjög en þeim tókst þó að
sigra sænska liðið í heldur slökum leik. Malmö, sem
komst í þessa keppni þar sem Nottingham Forest
hafði ekki áhuga, var án margra sinna beztu leik-1
manna. Evaristo Isasi skoraði eina mark leiksins á
41. mín. — náði knettinum af Magnus Andersson
um miðju vallarins. Lék upp allan völl og á marga;
varnarmenn áður en hann spyrnti knettinum íj
markið framhjá Jan Möller. Síðari leikur liðanna ij
keppninni verður 5. marz i Paraquay. i
„Þetta er tviheilagt hjá okkur,” sagöi Magnús Óskarsson, formaður Þróttar á
laugardag, þegar Þróttur hélt upp á 30 ára afmæli sitt og jafnframt var nýtt félags-
heimili vigt á Þróttarsvæöinu við Sæviðarsund. Glæsilegt stórhýsi — tvær hæðir,
fjögur hundruð fermetrar hvor hæð. Myndin að ofan er af félagsheimilinu. Nánar
verður sagt frá þvi og afmælishátið Þróttar á morgun.
DB-mynd Bjarnieifur.
„VK> ÞURFUM AÐ HALDA
ÞESSU F0RMI í MÁNUД
—sagði Bogdan Kowalczyk, þjálfari Víkings, eftir að lið hans hafði unnið öruggan
sigur á Haukum í 1. deild karla, 25-17, í gærkvöld
„Ég er ánægður með leik minna
jmanna — og nú þurfum við að halda
þessu formi i mánuð,” sagði Bogdan
j Kowalczyk, þjálfari Vikings, eftir að
llið hans sigraði Hauka örugglega i 1.
deildinni i handknattleiknum í Laugar-
dalshöll í gær. Lokatölur Víkingur 25
— Haukar 17 og sá sigur hefði getað
orðið stærri ef Víkingar hefðu keyrt á
fullu til loka. Haukar áttu ekkert svar
við stórleik Víkingsliðsins — eri
greiniiegt að Víkingsþjálfarinn var
farinn að huga að Evrópuleikjum
Víkings gegn sænska liðinu Heim í
byrjun næsta mánaðar.
„Varnarleikurinn var góður hjá
okkur — ég er ánægður með hann,
þrátt fyrir þetta mörg mörk — en það
var of mikið um mistök í sókninni,”
sagði Viðar Símonarson, þjálfari
Hauka, eftir leikinn og bar sig vel þótt
lið hans hefði verið yfirspilað af
Víkingum.
Það var mikið fjör i leiknum oft á
tíðum og fyrir brá stórgóðum hand-
knattleik á köflum, einkum af hálfu
Víkings í síðari hálfleiknum en Haukar
áttu einnig sinn góða þátt í því að
leikurinn varð skemmtilegur fyrir um
800 áhorfendur. Góð aðsókn það ofan
á alla kosningafundina í gær og Víking-
ar, sem sáu um framkvæmd leiksins,
fengu Jón Ásgeirsson fréttamann til að
lífga upp á hlutina. Það tókst vel.
Talsverð spenna var í fyrri hálf-
leiknum — lítill munur á liðunum.
Talsvet kom þó á óvart hvað leikmenn
áttu á stundum erfitt með að grípa
knöttinn — kannski kuldinn í Höllinni
í fyrstu hafi átt einhvern þátt í því. f
síðari hálfleiknum náðu Vikingar stór-
leik — sinum bezta leik í haust — og
það var meira en Haukar réðu við. Um
miðjan hálfleikinn var orðinn átta
marka munur og stefndi í stórsigur
Vikings. Hins vegar var ekki keyrt á
fullu til loka — öllum leikmönnum
liðsins gefið færi á að leika og Haukar
héldu í við Víking lokakafla leiksins.
Hraði var oft gríðarmikill í leiknum —
fallegar fléttur sáust og það hjá báðum
liðum. Víkingsliðið er orðin geysilega
sterk liðsheild — og það réð úrslitum i
gær.
Víkingsliðið byrjaði með miklum
krafti og eftir aðeins rúmar þrjár
mínútur var staðan orðin 3—0. Haukar
gáfust þó ekki upp við þessi ósköp og
Andrés Kristjánsson, bezti maður
liðsins, skoraði fyrsta mark Hauka á
fjórðu mín. Mikill hraði og tiu mörk
skoruð fyrstu 10 mínúturnar 6—4 fyrir
Víking. Þá varði Ólafur Guðjónsson,
markvörður Hauka, víti frá Páli Björg-
Víkingur-Haukar 25-17 (11-9)
íslandsmótið i handknattleik, 1. deild karia, Vfkingur Haukar 25:17 (11—
9) i Laugardalshöll sunnudaginn 18. nóvember.
Beztu leikmenn. Steinar Birgisson, Vikingi, 7, Árni Indriðason, Vikingi, 7,
Þorbergur Aðalsteinsson, Vikingi 7, Andrés Kristjánsson, Haukum, 6, Páli
Björgvinsson, Vfkingi, 6.
Vikingur. Jens Einarsson, Krístján Sigmundsson, Páli Björgvinsson, Árni
Indríðason, Steinar Birgisson, Ólafur Jónsson, Guðmundur Guðmundsson,
Sigurður Gunnarsson, Þorbergur Aðalsteinsson, Erlendur Hermannsson,
Guðmundur Skúli Stefánsson.
Haukar. Gunnar Einarsson, Ólafur Guðjónsson, Þorgeir Haraldsson, Ingi-
mar Haraldsson, Guðmundur Haraldsson, Sigurgeir Marteinsson, Stefán
Jónsson, Andrés Krístjánsson, Árni Sverrisson, Árni Hermannsson, Hörður
Harðarson, Lárus Ingason.
Dómarar Árni Tómasson og Jón Fríðsteinsson. Haukar fengu sjö vitaköst
— nýttu 4. Krístján varði tvívegis frá Herði, Jens einu sinni. Vikingar fengu 7
vitaköst. Nýttu fimm. Ólafur varði frá Páli — Þorbergur átti vitaskot i stöng.
Sex Vikingum var vikið af velli i tvær min. hverjum, Ólafi, Árna, Páli,
Steinarí, Þorbergi og Skúla. Tveimur Haukum, Stefáni og Herði. Áhorfendur
800.
vinssyni — Haukar brunuðu upp og
Sigurgeir Marteinsson skoraði.
Víkingar misstu mann út af en tókst
samt að auka muninn í 7—5. En
Hátikar.jöfnuðu í 7—7 á 23. mín. og
rétt á eftir höfðu þeir tækifæri til að
komast yfir. Fengu vítakast en Jens
Einarsson varði frá Herði Hárðarsyni.
Ólafur Jónsson kom Viking yfir en þó
Haukar misstu mann út af tókst þeim
íþróttir
Tf— PSHl
1
hallur SÍMONARSON ^
að jafna í 8—8. Það var í síðasta skipti,
sem jafnt var hjá liðunum. Vikingur
skoraði næstu tvö mörk — staðan í
hálfleik 11—9.
Víkingur skoraði tvö fyrstu mörkin í
s.h. strax í byrjun, 14—10 — en misstu
svo tvo menn út af með stuttu millibili
og Þorbergur Aðalsteinsson átti skot úr
vítakasti i stöng Hauka-marksins. Ekki
tókst Haukum að minnka muninn
nema um tvö mörk á þessum kafia —
og síðan voru bæði lið með fullan
mannskap. Víkingar léku frábærleg vel
í sókn og vörn næstu minúturnar og
gerðu alveg út um leikinn. Skoruðu 7
mörk gegn einu á sex. mín. leikkafla
um miðjan hálfleikinn. Staðan 21—35
eftir 15. mín. og Víkings-sigur í höfn.
Lokakaflann skoraði hvort lið fjögur
mörk — og þá gerði Kristján Sig-
mundsson sér lítið fyrir og varði tvö
vítaköst frá Herði.
Haukar lögðu mikla áherzlu á að
klippa hornamenn Víkings frá og það
varð til þess, að Víkingar fengu aukið
rúm á miðjunni. Það nýttu þeir vel
Steinar Birgisson og Þorbergur Aðal-
steinsson og skoruðu grimmt. Einnig
losnaði um Árna Indriðason á línunni
— og hann fékk góðar línusendingar
frá Páli. Ekki bar mikið á Páli í marka-
skoruninni að þessu sinni — það er
einkennandi, þegar vel gengur hjá
Víking. Hann lætur aðra um skotin.
Markvarzlan var nú góð hjá Víking og
sama er að segja um markvörzlu Ólafs
Guðjónssonar hjá Haukum. Varnar-1
leikur beggja liða var nokkuð góður.
Hjá Haukum bar langmest á Andrési
— stórskemmtilegur leikmaður en
nokkrir kunnir leikmenn Iiðsins léku
ekki með eins og Þórir Gíslason og
Júlíus Pálsson. Hauka-liðið hefur ekki
byrjað eins vel í mótinu og reiknað
hafði verið með. Það þarf þó ekki að
kyíða — hefur miklu mannvali á að
skipa.
Mörk Víkings Steinar 7, Arni 6/4,
Þorbergur 4/1, Páll 3, Ólafur 2,
Erlendur, Sigurður og Guðmundur
Guðmundsson eitt hver. Mörk Hauka.
Hörður 6/4, Andrés 2, Árni Sverrisson
2, Sigurgeir 2, Stefán 2, Þorgeir, Árni
Hermannsson og Ingimar eitt hver.
Sigurkarfa Njarðvíkinga dæmd
gild eftir tuttugu mínútur
— UMFNsigraf...........................................
Körfuknattleikur, Úrvatedeild,
UMFN—Valur, 88-87 (41-48)
„Ég hugsaði um það eitt að losa
mig sem fyrst við knöttinn og senda
hann í körfuna, áður en tíminn rynni
út. Þarna var um sekúnduspursmál að
ræða. Tækist mér að skora taldi ég mig
vera að jafna metin og tryggja fram
lengingu, en í ákafanum hafði mig mis-
minnt. Þegar knötturinn fór rétta
boðleið í gegnum körfuhringinn, stigu
félagar minir stríðsdans og áhorfendur
lustu flestir upp fagnaðarópi, þegar
tölurnar 88—87, birtust á Ijósa-
töflunni,” sagði Gunnar Þorvarðar-
son, UMFN, sem skoraði einhverja
sögulegustu körfu sem um getur
íslenzkum körfuknattleik í viðureign
UMFN og Vals í Njarðvík á laugar
daginn, „en skyndilega sló þögn á
hópinn. Annar dómarinn, Sigurður
Valur, dæmdi körfuna ógilda, en hinn
Þráinn Skúlason, var á öndverðum
meiði. Hann taldi að ég hefði verið
búinn að losa mig við knöttinn, áður en
tíminn rann út og það er rétt. Tíma
merkið gall við um leið og knötturinn
small í spjaldinu og í körfuna,” sagði
Gunnar ennfremur.
En hvort var úrskurður Sigurðar
Vals, aðaldómara, eða Þráins Skúla-
sonar, þyngri á metunum? Um það
körpuðu bæði Njarðvikingar og
Valsmenn, en áhorfendur, fullt hús að
vanda, biðu í óþreyju eftir niður-
stöðunum og mændu ýmist að starfs-
mannaborðinu, þar sem dómarar báru
saman bækur sínar eða á ljósatöfluna,
sem aftur sýndi 86—87 fyrir Val. Eftir
nokkurt þref yfirgáfu dómarar salinn
og lokuðu sig inni í kjallaraherbergi, á-
samt tímavörðum og ritara.
Stemmningin á áhorfendapöllunum var
svipuð og þegar verið er að telja utan-
kjörstaðaatkvæði, sem ráðið geta
úrslitum um hver vinnur tvísýna
kosningu. Eftir rúmar 20 minútur
opnuðust dyrnar og Sigurður Valur
birtist í gættinni með hlutleysissvip og
mælti; „Karfan var gild.”
Njarðvikingar föðmuðu hver
annan, en Valsmenn voru þungbúnir á
svip. Torfi Magnússon fyrirliði ætlaði í
fyrstu að neita að undirrita leik-
skýrsluna, en þegar honum var bent á
að þar með missti hann kæruréttinn,
undirritaði hann með fyrirvara og
ætlaði svo sannarlega að kæra.
„Ég vildi ekki taka á mig þá á-
byrgð,” sagði Sigurður Valur aðal-
dómari „að úrskurða körfuna ógilda
og neytti því heimildar i reglunum að
veðja til starfsmenn leiksins, sem voru
samdóma um að karfan væri löglega
skoruð, þótt mér sýndist annað.”
Þráinn Skúlason dómari sagðist hafa
verið í mjög góðri aðstöðu til að
fylgjast með umdeildu atviki og því
strax viss um að Gunnar skoraði lög-
lega körfu.
Sigurkarfa UMFN kom á elleftu
stundu og var sannarlega heppniskarfa
og segja má að lánið hafi að þessu sinni
leikið við UMFN, eins og óheppnin elti
þá í fyrsta leiknum í haust gegn ÍR,
þegar þeir töpuðu leiknum á seinustu
sekúndum. En kannski var það fijót-
Jón Ásgeirsson, fréttamaðurinn vinsæli,
hann við hljóðnemann f Laugardalshöll.
áhorfendum — og gat helztu atvika, sem
hátt að venju.
er kominn heim frá Kanada og I gær var
Kynnti leikmenn Vikings og Hauka fyrir
skeðu i leiknum. Það gerði Jón á röggsaman
DB-mynd Bjarnleifur.
Þungbúnir Valsmenn kríngum annan dómarann eftir ieikinn.
færni Valsmanna í æsispennandi loka-
kafla sem færði heimamönnunt
sigurinn. Gestirnir höfðu Ieitt svo til
allan leikinn, að nokkrum mínútum
Sá rúmenski
vill til USA
Rúmenski knattspyrnumaðurinn
Alexander Satmareanu, bezti varnar-
maður Rúmeniu síðustu árin, sem bað
um pólitískt hæli í Vestur-Þýzkalandi
eftir Evrópuleik Eintrackt Frankfurt og
Dinamo Bukarest, sagði í Giessen í gær
að hann gerði sér vonir um að leika sem
atvinnumaður í Bandarikjunum á
næsta leiktímabili.
Satmareanu æfir nú með TSV
Giessen-Kleinlinden í V-Þýzkalandi.
Hann er 28 ára gamall og lék 30 lands-
leiki fyrír Rúmeníu. Ósk hans um að fá
að dvelja í Vestur-Þýzkalandi sem
pólitiskur flóttamaður hefur enn ekki
verið opinberlega tekin til greina.
undanskildum, þegar UMFN, náði 4
stiga forustu, 16—12, sem Valsmenn
sneru sér fljótlega í hag, og höfðu yfir í
hálfleik 46—41.
Strax í upphafi seinni hálfleiks juku
Valsmenn muninn í I3 stig, 60—47,
Njarðvikingum tókst með seiglunni að
jafna metin, 78—78, þegar tæpar þrjár
mínútur voru til leiksloka, en þá var
Dwyer farinn af velli með sínar fimm
villur (sumir sögðu sex). Valsmenn léku
það samt ekki á sig fá og tóku fjörkipp
og skoruðu fjórar körfur en UMFN gat
svarað með tveimur, 86—82. Úrslitin
virtust svo ráðin þegar Ted Bee,
þjálfari UMFN, fór sömu leið og
„kollegi” hans í Val, út af með fimm
villur. En hvað skeði? í staðinn fyrir
að velja vítaskot, lætur Dwyer Torfa
Magnússon, sem hafði yfir 90% víta-
hittni í leiknum, heldur taka innkast.
Sóknarlotan bregzt og UMFN skorar,
86—87. Vonarneisti kviknaði hjá
heimamönnum og Guðsteinn og
Gunnar „pressa” Valsmenn út fyrir
hliðarlinu. UMFN fær knöttinn, þegar
Þórs stelpurnar komust ekki
Tveimur Ieikjum í 1. deild íslands-
mótsins í handknattleik kvenna var
frestað um helgina.
Þór frá Akureyri átti að leika gegn
KR á laugardaginn var. Ófært var frá
Akureyri og Þórsstelpurnar komust
þess vegna ekki. Einnig áttu stelpurnar
frá Akureyri að leika í Grindavík í gær
en fresta varð þeim leik líka vegna flug-
erfiðleika frá Akureyri.
-HJ.
DB-mynd emm.
um 20sek„ eru eftir. Brynjar Sigmunds
„dripplar” knettinum óhæfilega lengi,
að áhorfendum finnst, en sendir síðan
á Jónas Jóhannesson, sem reynir
körfuskot sem misheppnast en Gunnar
Þorvarðarson náði frákastinu með
þeim eftirköstum sem í upphafi er lýst.
Njarðvíkingar geta þakkað þeim
Gunnari Þorvarðarsyni, sem átti af-
burðaleik í vörn og sókn, Guðsteini •
Ingimarssyni fyrir góða vörn og spil, og
Ted Bee þjálfara, sem stjórnaði liðinu
vel, sigurinn. Ekki má heldur gleyma
Jónasi Jóhannessyni, sem var sá eini
sem stóð Valsmönnum framar í frá-
köstunum.
Kristján Ágústsson og Torfi Magnús-
son voru beztu menn Vals-liðsins.
Skoruðu oft snilldarlega ásamt Dwyer
Mikil spenna
Sjaldan eða aldrej hefur verið meiri
spenna í 1. deildinni í knattspyrnunni í
Júgóslavíu en nú í hausl. Eftir 16
umferðir voru fjögur lið efst og jöfn
með 21 stig — Radnicki, Rauða
stjarnan, Belgrad, Sarajevo og Hadjuk
Split. Radnicki hefur langmesta marka-
muninn. Hefur skorað 25 mörk en
aðeins fengið á sig níu. í 5.-6. sæti eru
Velez og Napredak með 19 stig. í 16.
umferðinni i gær sigraði Hadjuk Split
Sarejevo 1—0 — Rauða stjarnan
sigraði Partizan 2—0, Radnicki sigraði
Napredak 2—0.
þjálfara. Jóhannes Magnússon og
Rikharður Hrafnkelsson stóðu þeint
lítt að baki. Annars var Valsvörnin
mjög sterk, en í sóknaraðgerðum voru
þeir slappari, það gerði gæfumuninn.
Stigin. UMFN: Ted Bee 33, Gunnar
Þorvarðarson 22, Guðsteinn Ingimars-
son 18, Brynjar Sigmundsson 6, Jón
Viðar 5, Jónas Jóhannesson 2 og Valui
Ingimarsson 2.
Valur: Kristján Ágústson 30, Torfi
Magnússon 21, Dwyer 12, Jóhannes
•Magnússon 10, Rikharður Hrafnkels-
son 8 og Sigurður Hjörleifsson 6.
Dómararnir, þeir Sigurður Valur og
Þráinn sluppu vel frá erfiðum leik.
-emm.
Rúmenía vann
Kýpur
Rúmenía sigraði Kýpur 2—0 í
Búkarest í gær í 3. riðli Evrópukeppni
landsliða í knattspyrnu. Leikurinn
hafði engin áhrif um úrslit i riðlunum
— hvorugt landið á þar nokkra
möguleika lengur. Þeir Multescu og
Raducanu skoruðu mörk Rúmeniu.
Áhorfendur voru 10 þúsund.
Staðan í riðlinum er nú þannig:
Júgóslavía 6 4 0 2 14—6 8
Spánn 5 3 11 10—4 7
Rúmenía 6 2 2 2 9—8 6
Kýpur 5 0 14 1 — 16 1
Spánn á eftir að leika á Kýpur og
verður að sigra í þeim leik til að komast
í úrslitakeppnina á ítaliu næsta sumar.
Guðjón Þorsteinsson. DB-mynd. emm.
Meiðslin kostuðu þriðja hluta
af hnéskelinni og 8300 dollara
„Ég get valið um þrjá skóla í
USA,” sagði Guðjón Þorsteinsson,
unglingalandsliðsmaður og íslands-
meistari með 2. flokki UMFN í
körfuknattleik, en er nú genginn i KR.
Guðjón kom heim frá Bandaríkjunum,
í fyrradag þar sem hann stundaði nám i
félags- og sálarfræði við menntaskóla í
Chicago, ásamt því að hann æfði og lék
með liði skólans, Main South. „Hvort
ég held vestur aftur get ég ekki sagt á
þessu stigi málsins, því ég meiddist á
hné í æfingaleik sem kostaði mig einn
þriðja af hnéskelinni og 8300 dollara í
— Guðjón Þorsteinsson kominn heim f rá USA og genginn í KR
læknishjálp og endurhæfingu,” sagði
Guðjón og sýndi okkur stórt ör á
vinstra hné.
Hann er samt óðum að ná sér og
vonast til að geta hafið æfingar innan
tíðar með KR. Tilboðin, sem Guðjón
fékk hljóða upp á frí skólagjöld og
uppihald. en í skólaliðin komast ekki
aðrir en þeir sem hafa yfir meðal-
einkunnir.
Guðjón æfði fjóra klukkutíma á
dag fyrir vestan. Fyrsta mánuðinn voru
hlaupnir 10 km á dag. Síðan var
áherzla lögð á 100 og 200 metra spretti,
næsta mánuðinn. Þá var tekið til við
leikkerfi og skotæfingar ásamt sál-
fræðilegum atriðum.sem mikið er lagt
upp úr.
Miklar kröfur eru gerðar til leik-
manna, bæði utan sem innan æfinga og
keppni. Leikmenn mega ekki vera i
öðrum peysum en skólans þegar það á
við. „Við fáum 100 blaðsíðna bók um
hvernig við eigum að haga okkur og
verðum að geta svarað út úr því sem
þar stendur, þegar við erum spurðir, en
segja má að allt kapp sé lagt á að leika
sem beztan körfuknattleik.”
Viðurgerningur hlýtur að hafa verið
allur mjög góður þar vestra, því
Guðjón hefur hækkað um fimm
sentimetra, er nú 2 m og því urðinn
nokkru hærri en stóri bróðirinnGeir,
sem nú verður því að lita upp til „litla”
bróður. Vonandi fær Guðjón að njóta
„viðaukans” sem fyrst í körfuknatt-
leiknum, en það er allt undir því komið
hvernig batinn í hnénu gengur á næstu
dögum og vikum.
-emm.