Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
Sjálfstæðisframbjóðendur
skemmta sér og öðrum
í gærdag voru sjálfstæðis-
menn í Reykjavík með
skemmtanir á þremur stöðum
í Reykjavík. Einn frambjóð-
andi var á hverjum stað. í
Sjálfstæðishúsinu Valhöll við
Háaleitisbraut var Ragn-
hildur Helgadóttir, Ellert
Schram var í Glæsibæ og Al-
bert Guðmundsson á Hótel
Sögu.
Á þessum þremur stöðum
var boðið upp á skemmtanir
með Halla, Ladda og
Jörundi, Brúðuleikhúsinu,
Magnúsi Jónssyni, Guðrúnu
Á. Símonar og Gunnari
Björnssyni sem söng
við undirleik Birgis ísleifs
Gunnarssonar. Á meðfylgj-
andi myndum má sjá
stemmninguna á skemmtun-
unum en þar var mætt fólk á
öllum aldri. - ELA
Albert Guömundsson kynnti gestum á Hótel Sttgu þrjá'mcð Gunnar, Albert og Davfð, það vantaði bara Geir. Hann
frambjóðendur sína, þí Gunnar Thoroddsen, Ernu Ragnars- hefur sjálfsagt verið að troða upp annars staðar.
dóttur og Jónas Bjamason.
„Ég leyfi mér að kynna nýju plötuna mina hér sem er að koma út. Mér finnst sjálf-
sagt að sjálfstæðismenn kaupi hana annars hætti ég við að styrkja þá með minu
atkvæði,” sagði Guðrún Á. Simonar sem var f léttum dúr og moll i Glæsibæ.
Ellert Schram mætti í Glæsibæ og var þar margt um manninn eins og sjá má á myndinni. Hinrik Bjarnason, forstöðumaður
lista- og skemmtideildar sjónvarpsins, situr þaraa við sama borð.
DB-mydnir Höróur.
..1
Það var ekki af verra^taginu, veizluborð þeirra sjálfstæðiskvenna, enda tekur
Ragnhildur Helgadóttir sér kökusneið með bros á vör.
var röddin á bak við fiðrið.