Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 33

Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 33
UM HELGINA DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979. Langsum og þversum Nýlcga kom út hjá bókaútgáfunni Bjöllunni bókin Langsum og þvcrsum sem eru krossgátur og mynda- gátur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur rithöfund og kennara. Sigurbjörn Helgason hefur myndskreytt bók- ina. Gáturnar eru ætlaðar til móðurmálskennslu í. grunnskólum. 1 formála segir höfundur m.a.: „Við gerð þeirra hugsaði ég um það fyrst og fremst, að þær væru skemmtilegar og örvuðu börnin til skapandi leikja að orðum og myndum. Myndaþrautirnar eru hafðar margs konar til þess að börnin geti lært af þeim að ráða hinar ýmsu gerðir þess háttar getrauna og þær _ verði þeim hvatning til að búa sjálf til sams konar gátur. Loks reyni ég að koma að einföldum málfræði- reglum og nota málfræðileg hciti. þegar þaðer hægt. án þess þó að um itroðslu sé að ræóa." í Langsum og þversum eru 25 gátur á lausum blöðum og verður verkið einungis selt skólum fyrst um sinn. Prentstofa G. Benediktssonar annaðist setningu og prentun. Hin týnda borg Inkanna Út er komið hjá Bókaútgáfunni örn og örlygur fjórða og siðasta bindið i bókaflokknum t leit aö horfnum heimi og nefnist það Hin týnda borg Inkanna. Loftur Guðmundsson þýddi. Áður voru komnar út bækurnar Leyndardómar Faraóanna, Fall og eyðing Troju og Hin sagnfrægu ævintýri vikinganna. Þetta eru rikulega myndskreyttar bækur með spennandi lesefni sem jafnframt er ætlað að veita börnum og unglingum innsýn í horfið menningarlif fyrri kynslóöa. Búálfamir Bókaútgáfan öm og örlygur hefur sent frá sér bamabókina BÚÁLFARNIR eftir Valdísi Óskars- dóttur með tcikningum eftir Katrínu Jónsdóttur. Búálfamir eru eins og nafnið bendir til alislenzk saga um íslenzka búálfa sem eiga heima i veggjum húsanna okkar og lifa þar sinu mjög svo sjálfstæða og sérstæöa lífi. Það vissi raunar enginn um tilvist þeirra þar til hann Svenni komst á snoðir um þá fyrir algera tilviljun. Bjarni Jónsson vann kápuna upp úr myndum Katrínar Jónsdóttur og reyndist honum mjög örðugt því að álfarnir fengust ekki til þess að sitja kyrrir meðan hann var að reyna að stilla þeim upp. J LEITAÐHORFNUM Hhn týnda bors Inkanna Árás f dögun, ný stríðs- saga eftir Brian Callison Hjá Iðunni er út komin skáldsagan Árás í dögun eftir brezka höfundinn Brian Callison. Þetta er þriðja striðssagan sem út kemur eftir hann á islenzku. Hinar voru Hin feigu skip og Banvænn farmur. Árás í dögun lýsir strandhöggi brezkra víkingasveita I norskum smábæ þar sem þýzka hernárasliöið hafði herskipalægi. Þótt hér sé um skáldsögu að ræða á hún sér allnákvæmar hliöstæður i árásum brezku vikinga sveitanna á St. Nazaire, Lofoten og Dieppc á styrjald- arárunum. Árás í dögun er 254 blaðsíðna bók. Andrés Kristjánsson þýddi söguna. Hún er prentuð af Prent- rúnsf. BRIAN CALLISON ÁRÁSÍDÖGUN Ný blanda úr Borgarfirði Borgfirzk blanda III Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent frá sér nýja blöndu af borgfirzku efni. Eins og í fyrri bókunum er leitazt við aö hafa efnið sem fjölbreyttast. Það skiptist í þjóðlifsþætti, persónuþætti, t.d. er þáttur um Sigga ha sem þekktur var í Borgarfiröi, sagnaþættir ýmiss konar, frásagnir af slysförum, m.a. af síðustu ferð Bjarna Ólafssonar, hins kunna aflamanns og sjósóknara, frásagnir af draumum og dulrænum at burðum, m.a. af dulrænni reynslu Júlíusar Þórðar- sonar á Akranesi, gamanmál, t.d. sögur af Kristófer á Hamri i Borgarhreppi, Vísur ólafs Kristjánssonar i Mýrarhúsum o. fl. Fjöldi mynda er i bókinni, m.a. teikningar eftir sr. Jón M. Guðjónsson af 32 sveita- bæjum sunnan Skarðsheiðar. Borgfirzk blanda III er 240 bs. i stóru broti. Prent- verk Akraness hf. annaðist prentun og bókband. Káputeikning er eftir Ragnar Lár. rítSS í greipum dauðans Hjá Hörpuútgáfunni á Akranesi er nú komin út ný bók eftir enska metsöluhöfundinn Gavin Lyall. Áður eru útkomnar eftir þennan höfund bækurnar Tefit á tæpasta vað , Lifshættuleg eftirför og Viö sigrum eða deyjum . Gavin Lyall er talinn einn a 5 beztu ..thriller”höfundum sem nú eru uppi. Gavin Lyall var um tvegr ára bil fiugstjóri i brezka fiughernum. Hann Ik hlotið ..Silfur rýtinginn”, sem er vi.dlaun sambánds a»i.sagna(thriller)-höfunda. Bækur nans hafa verið þýddará 12 tungumál. Skúli Jensson þýddi bókina seni er 211 bls. Hún cr prentuö i Prentverki Akraness hf. og bundin i Arnár Bergi hf. Hilmar Þ. Heigason gerði káputeikningu. / Fallð vald ..Hcimur æðri viðskipta og alþjóðlegs leymmáU - .r lokaður hcimur. þar sem ákvarðanir fárra ut'-aidra ráða orlógum milljóna einstaklinga i öllu» . hmdum. Falið vald gefur okkur innsýn i þenna> »’ ilarfulla heim." Svo segir á kápu nýrrar bókar s m ’ >Kaúigáf an Örn og örlygur hcfur sent á bókamaj i • >g er eftir ungan Islending. Jóhannes Björn. Jóþanncs hefur að mestu verið búsettur erlendis síðustu árin og dvalið langdvölum i Sviþjóð og Englandi. Hann hefur lagt stund á félagsfræði auk náms i sundurgrciningu upf lýsinga (Data analysis) og ''ublic Rclations. Jól annes hefur einnig lagt stut á á kerfisbundnar rannsóknir á sviði stjórn og peningamála og birtast niðarstöður þeirra rannsókna ( pessari bók Ivtta er önnur bók höfundar, áður he'ir kornið út eftir hann Ijóðtbókin Blástjörnur. / Bókin er filmusett, umbrotin og prentuð i prent stofu G. Benediktssonar, bundin i Arnarfelli og l/^niimtrnrl nitrAi Prncl Rar'hmQnn í föstudagsfréttum sjónvarps tal- aði Ómar Ragnarsson um gildi mann- brodda og byrjaði á því að detta á rassinn. Það er ljótt að hlæja að óförum annarra, en þetta var samt skemmtilegasta „móment” kvölds- ins. Svona smáslys gera stofn- anir mannlegri. En þetta var annars ekki ýkja skemmtileg helgi hjá stofnuninni. Um pólitik var ekki talað nema þá óbeint í Kastljósi sama kvöld og þar komu aðeins fram fyrr- verandi stjórnmálamenn. Kannski var það þess vegna sem maður hlustaði á mál þeirra með athygli — og vissulega var málefnið brýnt. í sama þætti var einnig rætt um búferlaflutninga íslendinga til annarra landa og lúbarðar konur. Kannski eru einhver tengsl þarna á milli. Marmarahúsið lét lítið yfir sér sem kvikmynd en hafði þó til að bera mannlega vídd sem ekki má forsóma. Laugardagssjónvarp var bærilegt, en ekki meir. Þeirri yfirlýsingu fylgir samt eitt neyðaróp: Losið landslýð við Leyndardóm prófessorins, þér ráðamenn. . Leitt er að Flugur skulu á enda, eða „öllum lokið” eins og glaðbeitt- ur kynnir þeirra sagði. í þeim þáttum reyndu aðstandendur að gefa hverju lagi umgjörð við hæfi, rómantíska, fáránlega eða eilítið sjúklega, allt eftir efnum og ástæðum. Sumt fór fyrir ofan garð og neðan hjá mér í þessum þáttum, t.d. ástarsöngur í hjólastól og karlapartí í gróðrarstöð, en óneitanlega reis maður upp við dogg við uppákomuna á skerminum, a.m.k. þar sem hundahald er leyft (áhrif Brandarabankans. . .). Ég er orðinn hálfsmeykur við þessi stóru tónlistar-,,sjó” á laugardags- kvöldum, en um fyrri helgi upplifði ég eitt það versta sem hér hefur verið, frá Berlín. En ELO var ekki þess eðlis, takk fyrir það, — en býsna ómerkileg hljómsveit samt. Ekki tókst mér að greina snefil af sérstakri tónlistargáfu i piltunum eður skapandi afl, heldur eru þeir eins konar hlutlaus sambræðingur af Beatles, Beach Boys, Motown o.fl. með miklum gný til viðbótar. Man at the top er um gamalkunnugt efni, lítt uppbyggileg eða aðlaðandi mynd nema vegna kvenfólksins sem er oft nakið. Einu sinni datt nokkrum póli- tíkusum í hug að íslenzkt mál væri sjónvarpsefni, kannski vegna þess að þeir töldu að æskan hlustaði ekki á ágæta íslenzkuþætti í útvarpi. Ég verð að hryggja þá með því að lítil likindi eru til að æskan unga meðtaki boðskap efnisins á sjónvarpsskermi, sérstaklega þar sem sjónræn atriði samanstanda af drengstaula i báta- leik, rollum og konu að strokka. Ég sé fyrir mér unga frændur mína: ,,Vá, mar, kona að strokka. . .". Því ekki að byggja þessa þætti upp gagn- gert fyrir þennan miðil, eða fræða óbeint með því að búa til getrauna- þætti með orð og orðaleiki? Vísir var að slíku i keppni dagblaðanna hér um árið og fylgdist þá alþjóð með og tók þátt i leiknum. Auk þess búa Bretar til góða þætti af þessu tagi og fyrst Bretar gera þetta, nú, þá er auðvitað sjálfsagtaðprófa þetta hér. . . KONA AÐ STROKKA Fyllingarefni - Gróðurmold Heimkeyrt fyllingarefni og gróðurmold á hagstæðasta verði. Tökum að okkur jarðvegsskipti og húsgrunna. KAMBUR Hafnarbraut 10, Kóp., simi 43922. Heimasími 81793 og 40086. ER GEYMIRINN I OLAGI ? HLÖDUM ENDURBYGGJUM GEYMA GóA þjónusta - sanngjarnt veró 1 Kvöld og helgarþ|ónusta s 51271 -51030 RAFHIEDSIAN sf Húseigendur - Húsbyggjendur Húsgagna- og byggingameistari getur bætt við sig verkefnum. Vinnum alla trésmiöavinnu, svo sem mótauppslátt, glerísetningar, glugga- og hurðasmlði, innréttingar, klæðningar og milliveggi og annað sem tilheyrir byggingunni. Önnumst einnig raflögn, pipulögn og múrverk. Vönduð vinna, vanir fagmenn. Simi 82923. Geymið auglýsinguna.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.