Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979. ER RIBUVEIKT SAUBFÉ HÆFT TIL MANNELDIS? Grandvar skrifar: í fréttum hefur annað veifið verið sagt frá því að skera hefði þurft fé bænda vegna riðuveiki. Nú í vikunni var sagt frá bæ í Dölum vestur, þar sem allur bústofn tveggja bænda var skorinn vegna „hættu” á þessari veiki. Þó höfðu ekki fundizt veikar kindur hjá bændum þessum síðan í Raddir lesenda GUNNLAUGUR A. JÓNSSON fyrra, og þá aðeins tvær! Það væri þvi ekki úr vegi að einhverjir ábyrgir aðilar lýstu því fyrir fólki hvað um er að vera og hvort kjöt það sem fæst þegar heill bústofn er skorinn niður er sett á neytendamarkað. í einu dagblaðanna hér var t.d. sagt: „Er þessi pest ólæknandi enn sem komið er, og raunar lítið um hana vitað, svo segja má, að baráttan gegn henni sé í blindþoku.” Að boði Sauðfjárveikivarnarnefndar (ekki vantar nú nafnið!) er öllu fé bænda slátrað ef riðuveiki kemur upp í bústofninum, jafnvel þótt ekki finnist sú veiki nema i 1—2 kindum eins og áður er getið. Nú segir fréttin að í fyrra hafi fundist tvær kindur með einkenni riðuveiki. Því er spurt: Hversvegna var ekki ákveðið að skera bústofninn niður þá? Hver getur gefið skýringu á þessu? Annars eru það tvær megin spurningar sem ég tel að Dagblaðið ætti að upplýsa, úr því það hefur nú tekið þetta mál fyrir. Sú fyrri er þessi: Hversvegna er kjöt af riðuveiku fé sent á almennan markað með kjöti af öðru heilbrigðu fé og hver ákveður slíkt? Síðari spurningin er þessi: Hvaða aðili hérlendis vill ábyrgjast að kjöl af riðuveiku fé sé heilbrigð neyzlu- „Úr þvl að enginn veit neitt um þessa veiki, þá er sömuleiðis ekki hægt að sanna eða afsanna að kjöt af þessu veika fé sé hæft til manneldis,” segir bréfritari. vara? Þessu verður almenningur að fá svarað. Ætli fólk myndi t.d. ekki velja kjöt af heilbrigðu fé fremur en af því riðu- veika þegar það kaupir kjöt í heilum skrokkum ef það ætti kost á að velja um slíkt? Það er þessvegna ekki hægt að sniðganga fólk með því einu að segja: „Enginn veit neitt um veikina”. Og úr því enginn veit neitt um þessa veiki, þá er sömuleiðis ekkert hægt að sanna eða afsanna að kjöt af þessu veika fé sé hæft til manneldis. Almenningur hlýtur að krefjast þess að slíkt kjöt sé ekki sett á markað á meðan riðuveikin er flokkuð undir hiðóþekkta. Spurning dagsins Hvaða bók ertu að lesa? F.gill Örn Egilsson: Enga. Ég rnan ckki hvaða bók ég las síðast. Stundum lcs ég líka skólabækurnar. Styrmir Sigurösson: Enga. Ég lcs ol't myndabækur, Astcrix og svoleiðis. Jón Sólnes, efsti maður á S-listanum Framboð L.S.D. R. hringdi: Þessi vísa varð til eftir framboðs ræður stjórnmálaflokkanna í sjón varpinu: Það væri að fara úr ösku í eld, ýmsir telja að myndi skc, yrði þjóðin ofurseld áhangendum L, S, D. Eigin lög? S.G.Þ. Vestmannaeyjum skrifar: Þannig er mál með vexti að ég keypti þurrkurofa í bíl minn, sem er Mazda 818 árgerð 1978, hjá Bílaborg h/f þann I. þ.m. Þegar til kom þurfti ég ekki að nota rofann en þar sem ég bý i Vestmannaeyjum bað ég mágkonu mína að skila rofanum fyrir mig en hún býr í Reykjavik. Þegar hún kom með rofann aftur mánudaginn 6. þ.m. var hún spurð, hvort hún væri ekki læs, því að á nótunni stóð, að varahlutir væru ekki teknir aftur eftir 48 klst. frá því þeir væru keyptir og rafmagnsvörur alls ekki. Endaði þetta þjark með því að þeir tóku rofann aftur með 10% af- föllum. Ég spyr: Eru þetta lög sem þeir setja sér sjálfir eða eru þetta þau liðlegheit sem þeir kjósa helzt að sýna viðskiptavinum sínum? Einnig langar mig að spyrja þessa liðlegu verzlunarmenn hvort þeir treysti sér að koma fljótar til skila hlutum, sem sendir eru milli lands og Eyja. ^jóölöa ^Tö^tir V Al^ ' FOlK'SONcs nr "" ---NGS OF icelANd 1 1 • K \ ISLENZK ÞJOÐLÖG Sungin af Guðrúnu Tómasdóttur við píanóundir- leik Olafs Vignis Albertssonar. Þessi hljómplata tveggja af fremstu tónlistar- manna okkar er án efa ein merkasta þjóðlaga- plata sem út hefur komið hérlendis. I einstaklega vönduðu umslagi plötunnar er að finna skýringar og Ijóð prentuð bæði á íslenzku og ensku. Þetta er hljómplata sem á erindi til allra tónlistar- unnenda, áhugamanna um íslenzka menningar- arfleifð og er jafnfamt tilvalin gjöf til vina og kunningja erlendis. Heildsölubirgðir fyrirliggjandi. Suðurlandsbraut 8 — Sími 84670 Vesturveri Laugarvegi 24 — Sími 18670 Sími 12110 5 i zS €> Helgi Hjálmarsson arkitekl: Hún hcilir Eálækt fólk eftirTryggva Emilsson. Margrét Stefánsdótlir skrifstofumaö- ur: Ameríska sögu eftir Harold Robins. Ég les mesl erlendar vasabroisbækur. Helga Kristjánsdóttir: Enga sem stendur. Guörún Helga Guöbjörnsdóttir: Beverley Grey. Mér finnst hún skemmtileg.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.