Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 22
22 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979. Iþróttir Fram-vélin bræddi úr sér í lokin —og Valur sigraði Fram 19-16 í 1. deild íslandsmótsins íhandknattleik íslandsmeistarar Vals voru lengi að ná sér á strik gegn Fram í 1. deildinni í handknattleiknum á laugardag. Lcngi vel virtist stefna í annan ósigur þeirra — Fram náði fjögurra marka forskoti — cn það varð þó ekki. Fram-liðið féll Öruggt hjá Ár- manni og Fylki Tveir leikir voru háðir í 2. deild íslandsmótsins i handknattlcik um helgina. Að Varmá léku Afturelding og Fylkir. Fylkismenn sigruðu örugglega 24—17. Þá léku í Laugardalshöllinni Ármann og Þór frá Vestmannaeyjum. Það varð leikur kattarins að músinni og Ármann vann yfirburðasigur, 31—15. Best til Hibernian Georges Best, fyrrum leikmaður Man. Uld. og Norður-írlands, hefur gert samning við skozka félagið Hibernian sem er í neðsta sæti í úrvals- dcildinni skozku. Hibernian keypti samning hans við Fulham fyrir 50 þús- und sterlingspund þó svo Best hafi ekki lcikiö með Fulham í tvö ár. Hann var skráður leikmaður hjá félaginu. Reiknað er með að Best hefji fljótlega að lcika með Hibernian og þá á sér- samningi fyrir hvern leik. Edinborgar- liðið mun greiða honum 2000 pund fyrir lcik — 1,8 milljónir isl. króna. alveg saman lokakafla leiksins, skoraði aðeins þrjú mörk siðustu 12 mínúturn- ar. Slíkt dugar ekki gegn jafn leik- reyndu liði og Vals. Valsmenn unnu upp muninn og vel það Stóðu uppi í leikslok sem sigurvegarar 19—16 og skoruðu níu mörk gegn fjórum síðustu 18 minúturnar. I heild var leikurinn heldur slakur og víst er að bæði lið geta sýnt miklu bctri leik. Tveir menn björguðu Val öðrum fremur, — Jón frambjóðandi Karls- son, sem skoraði llest mörkin, og ungur piltur, Brynjar Harðarson. Þegar hann loks kom inn á skoraði hann fjögur ntörk i röð. Erfitt er að skilgreina slaka frammistöðu Frant þegar á leikinn leið. Það var ckki aðeins að sóknarloturnar misfærust flestar heldur varð og vörnin slök. Það var ekki nógu gott eftir góðan leik framan af. Þorbjörn Guðmundsson skoraði fyrsta niark leiksins fyrir Val úr vita- kasti en síðan tók Fram við og skoraði næstu þrjú mörk, Atli Hilmarsson, Sigurbergur Sigsteinsson og Andrés Bridde úr víti. JónKarlsson minnkaði muninn fyrir Val cn Andrés svaraði með vitaksti. 4—2 fyrir Fram og róleg var markaskorunin. 16 mínútur af leik. Val tókst að minnka muninn í eitt mark cn þá kom góður kafli hjá Fram. Liðið skoraði fjögur mörk gegn einu Vals og flestir í Laugardalshöllinni voru nú farnir að reikna mcð sigri Frarn. Staðan 8—4 og sex mínútur eftir af hálfleiknum. Valur minnkaði aðéins muninn fyrir leikhléið. Staðan í hálf- leik 10—7 fyrir Fram. Sami munur hélzt fyrstu 12 mínút- Egill Jóhannesson, ungi leikmaðurinn hjá Fram brýzt inn á linu og skorar. Bjarni og Steindór, Val, og Andrés fylgjast með. DB-mynd Bjarnleifur. urnar í síðari hálfleik. Brynjar skoraði þrjú fyrstu mörk Vals í hálfleiknum en Andrés svaraði jafnharðan fyrir Frant, skoraði þrjú fyrstu mörk Fram úr víta- köstum í hálfleiknum. 13—10 og staðan ekki beint glæsileg hjá Val. Bjarna Guðmundssyni vikið af velli. Þá varði Sigurður Þórarinsson, mark- vörður Frani, vítakast frá Brynjari. En Valur fékk aftur viti og úr þvi skoraði Þorbjörn Guðmundsson. Stefán Hall- dórsson, vitaskytta Vals, brákaðist á fingri í leiknum við FH og leikur ekki með Val næstu vikurnar. •Eii^inmitt þegar neyðin var stærst var 'hjalpin næst Valsmönnum. Leik- nienn Fram stöðnuðu algjörlega, tókst ekki að skora, en á sama tima var Jón Karlsson drjúgur fyrir Val. Valur komst yfir, 15—14, þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka. Áfram héldu Valsmenn að skora meðan sóknarmenn Fram hikstuðu meir og meir. Valsmenn komust meira að segja fjórum mörkum yftr, 19—15, en Birgir Jóhannsson skoraði síðasta mark leiks- ins fyrir Fram. Það er mikið rann- sóknarefni fyrir þjálfara Fram, Karl Benediktsson, hvers vegna leikntenn hans missa svo þráðinn lokakafla leikj- anna. Fyrst i Hafnarfirði gegn Haukum og nú gegn Val. Mörk Vals í leiknum skoruðu Jón H. Karlsson 6, Þorbjörn Guðmundsson 5/3, Brynjar 4/1 , Steindór 2, Bjarni 1 og Björn Björnsson 1. Mörk Fram skoruðu Andrés 7/7, Atli 3, Egill 2, Theódór, Sigurbergur og Birgir citt hver. - HJ Fram-Valur 16-19 (10-7) Islandsmótið, 1. dolld karla. Valur — Fram 19—16 (7—10), LaugardabhöN 17. nóvambar. Baztu laikmann (haata ainkunn 10), Bryi^ar Harðarson, Val, 7, Jón H. Kadsson, Val, 6, Atli Hilmarsson, Fram, 6, Stafán Gunarsson, Val, 5, Stalndór Gunnarsson, Val, 5. Vakjr Brynfar Kvaran, Bjami Guömundsson, Jón H. KaHsson, Þorhjöm Guðmundsson, Þor- bjöm Jansson, Stafán Gurmaraaon, Staindór Gurmarsson, Bjðm Bjömsson, Ólafur Benadikts son, Brynfar Harðarson, Gunnar Lúðvfksson og Hörður HHmarsson. Fram: Sigurbargur Sigstainsson, Atti HHmarsson, Gissur Agústsson, Sigurður Þórarinsson, Birglr Jóharmsson, Theodór Guðfinnsson, Rúnar Guðiaugsson, Gústaf BJÖmsson, EgHI Jóhanrv asson, Eriandur Davfðsson, András Bridda og Hannas Letfsson. Dómarar Gunnar KJartansson og ólafur Staingrfmsson. Valsmann fangu 6 vftaköst I laiknum — mlsnotuðu 2. Fram fákk 7 vftf — skoraði úr öllum. Áhorf andur voru um 300. Olga í Firðinum þegar FH vann —FH sigraði HK 23-17 í 1. deild karla í handknattleiknum Þaó var mikil ólga lokaminúturnar í leik FH og HK i 1. deild karla á íslandsmótinu í handknattleik í Hafnarfirrti á laugardag — jafnt á áhorfendasværtunum scm á leikvellin- um. Mikil spenna mertal hafnfirzku áhorfendanna, sem voru í meirihluta, og vildu beinlinis art FH „slátrarti” Kópavogslirtinu. Þart sinitarti út frá sér — formartur HK og formartur hand- knattleiksdeildar FH voru farnir að ýta hvor virt örtrum og þart alls ekki í górtu. Beint fyrir framan nefirt á blartamönn- um. FH vann öruggan sigur — sex marka munur í lokin 23—17. Æsingur varð þegar Kristján Þór Gunnarsson einn bezti leikmaður HK, var borinn af velli á böruni vegna meiðsla sem hann hlaut í samstuði við samherja en áhorfcndur gerðu sér al- niennt ekki grein fyrir því. Einn leik- manna HK var meðal þeirra scnt báru börurnar og leikurinn hófst án þess hann væri aftur kominn inn á. FH skoraði og HK-menn voru alls ekki sáttir við þann gang mála. Það cndaði með.því að Óli Olsen dómari vísaði Hilmari Sigurgíslasyni af bekknum til búningsherbergja. Aganefnd HSÍ mun taka mál hans fyrir og Hilmar á ef til vill yfir höfði sér leikbann. Áhorf- endur, sem voru talsvert á þriðja hundrað, fengu því talsvert fyrir pen- inga sína í þeim ólgusjó sem rikti loka- kaflann. Leikurinn í heild var hins vegar aldrei vel leikinn eða sérlega spennandi. Kópavogs-strákarnir komu þó á óvart i byrjun og skoruðu tvö fyrstu mörk leiksins, 0—2, og höfðu tvívegis eftir það tveggja marka forustu, 1—3 og 2— 4. FH jafnaði hins vegar i 4—4 og komst síðan yfir 7—5. Eflir það má segja aðt sigur FH hafi aldrei verið í hættu. Leikur liðsins var þó mun lakari en i sigurleiknum gegn Val á dögunum — Geir Hallsteinsson lék litið með og var tekinn úr umferð þann tíma sem Styrkiö og fegríð líkamann Dömur og herrar! Ný 3ja vikna námskeið hefjast 26. nóvember. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu. Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt jóga og megrandi æfingum. Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar i baki eða þjást af vöðvabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — ljós — gufuböð — kaffi — nudd , Innritun og upplýsingar alla virka daga frá kl. 13—22 í síma 83295. Júdódeild Ármanns Ármúla 321 hann var inná — og auk þess var mark- varzlan i molum hjá FH í fyrri hálfleik. Tveggja marka munur FH í vil i hálf- lcik, 11—9. FH-ingar juku þann mun i fjögur ntörk strax í byrjun síðari hálfleiks og lengi vel hélzt sá munur, þó svo HK minnkaði tvivegis í þrjú mörk. En um miðjan hálfleikinn náðu FH-strákarnir að hrista HK alveg af sér — komust í 20—14 eftir 15 min. Lokakaflann skoraði hvort lið aðeins þrjú mörk hvort. Timinn fór þá mest í alls konar pústra og var mikið um tafir. Leikurinn var aldrei mikilla sæva en þó brá fyrir fallegum köflum — einkum var Pétur Ingólfsson góður hjá FH og Hafnfirðingar hafa þar fengið góðan liðsauka. Þá var golfmaðurinn kunni, Ragnar Ólafsson, mjögöruggur í vítaköstum fyrir lið sitt — en það at- riði varð HK einmrtt að fallli i fyrsta leik sínum á mótinu, gegn ÍR. Þjálfari FH, Geir Hallsteinsson, vildi greinilega fylgjast með leikmönnum sinum frá bekknum — og var þvi litið inná enda þurfti hans ekki við til að sigur ynnist. Hann sá þar að ýmislegt má laga i lcik sinna ungu leikmanna. Veturinn verður erfiður hjá HK- liðinu og vafasamt það fái stig í I. deildinni. Það hefur orðið fyrir miklum áföllum —aðalmarkaskorarinn á siðasta leiktimabili, Stefán Halldórs- son, genginn í Val og Karl Jóhannsson hefur lagt skóna á hilluna. Þeirra skörð verða vandfyllt fyrir HK — þrátt fyrir nýja menn á liðið langl i að ná sama styrklcika og áður. Mörk FH skoruðu Pétur 5, Kristján Arason 5/3, Valgarður 3, Guðmundur Magnússon 3, Geir 2, Sæmundur 2, Eyjólfur Bragason, Magnús Teitsson og Hafsteinn Pétursson eitt hver. Mörk HK skoruðu Ragnar 8/6, Hilmar 3, Kristján Þór 3, Kristinn Ólafsson 2 og Bergsvcinn Þórarinsson eitt. - hsim. FH-HK 23-17 (11-9) IslancUmótSö i 1. ctold karia. FH — HK 23-17 (11-9) i 9>róttahúsinu i Hafnarflröi 17. nóvamber. Baztu laNcmann: Pétur Ingólfaaon FH, 6, Ragnar Ólafaaon HK, 6, Guðmundur Magnúaaon FH, 5, Kriatjén Araaon FH, 5, Kriatján Þór Gunnaraaon HK, 6. FH: Bvainn Krtatínaaon, Guömundur Magnúaaon, Kriatján Araaon, 8aamundur Stafánaaon, EyJÓKur Bragaaon, Ami B. Amaaon, Pétur Ingólfaaon, Valgaröur Vaigaröaaon, Magnúa Tahaaon, Gair Haftatainaaon, Hafatainn Péturaaon, Birgir Flnnbogaaon. HK: Elnar Þorvaröaraon, Ragnar ólafaaon, Hilmar Sigurgialaaon, Magnúa Guðfinnaaon, Eriing Siguröaaon, Friöjón Jónaaon, Kriatján Þór Gunnarsaon, Bsrgsvainn Þórarinaaon, Kriatínn ólafa- aon, Giaaur Krtatínaaon, Már Bjömaaon, öm Jónaaon. Dómarar BJÖm Kriatjánaaon og ÓU Otaan. Tvaimur FH-ingumvar viklð af vaUi, Pétri tvivagia, og GuÖmundi MagnúaaynL Einum HK-manni, HUmari, — brottvflcning af bakknum. HK fékk aax vftaköat - ÖN nýtt. FH þrjú- Ahorfandur 260.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.