Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
—síðari hluta f lugsins lýkur 5. desember
Flugleiðir fluttu alls 15.620 píla-
gríma í fyrri hluta pílagrímaflugsins.
Frá Alsír flutti DC 8 þota félagsins
6.500 pílagríma í 26 ferðum til
Jeddah á tímabilinu frá 3. til 22. okt.
Þá tók við skoðun í Luxemborg og
nokkrir dagar í áætlunarflugi á
Atlantshafsflugleiðum Flugleiða. Frá
30. okt. til 4. nóv. var vélin i áætl-
unarflugi innanlands og til Evrópu
fyrir Air Algerie, en síðari hluti píla-
grímaflugsins hófst 5. nóvember og
stendur til 24. nóv. nk. Þá á Air
Algerie aftur kost á að leigja vélina í
nokkra daga til áætlunarflugs og
síðan kemur vélin inn í flugáætlun
Flugleiða undir mánaðamót.
DC 10 þotan er í flutningum píla-
gríma ntilli Surabaya og Jeddah.
Farnar voru 24 ferðir á 26 dögunt og
flutti þotan 9.120* indónesíska píla-
gríma í þessum ferðum. Flugtíminn í
hverri ferð er 22 tímar fram og til
baka með millilendingu.
Síðari áfangi pilagrímaflugs tíunn-
ar hófst 7. nóvember og stendur til 5.
desember. Daginn eftir er áætlað að
þotan verði komin til Luxemborgar.
Þar fer fram skoðun á henni og síðan
fer hún inn á áætlunarflugleiðir Flug-
leiða. - JH
DC 10 breiðþota Flugleiða er drjúg I piiagrímafluginu og flutti 9120 farþega i 26
ferðum.
FLUGLEIÐIR FLUTTU NÆR16
ÞÚSUND FARÞEGA í FYRRI
ÁFANGA PÍLAGRÍMAFLUGS
Kosningar byrjaðar á mörgum
vinnustöðum um allt land
í skoðanakönnun, sem fram fór
nýlega í Skipasmíðastöð Þorgeirs og
Ellerts á Akranesi, féllu atkvæði
þannig milli flokka: Alþýðuflokkur
10, Framsóknarflokkur 7, Sjálf-
stæðisflokkur 22 og Alþýðubandalag
7.
Skoðanakannanir eru nú vinsælar
á vinnustöðum víðs vegar um land.
Óvíst er hversu áreiðanlegar slíkar at-
kvæðagreiðslur eru, þótt leynilegar
séu. Þó er það mál manna, að þær
gefi ótvíræða vísbendingu um fylgi
flokka þegar margar eru skoðaðar í
sömu kjördæmum.
Þær eru að minnsta kosti meinlaus
skemmtun og áreiðanlegar fregnir af
vel gerðum leynilegum atkvæða-
greiðslum eru eins frásagnarverðar
og ýmislegt annað.
- BS
Kaupgaróur
auglýsir
Höfum lokað verslun okkar að Smiðjuvegi 9.
HÖFUM OPNAÐ
matvöruverslun í nýju ogglœsilegu verslunarhúsnœði
v/Engihjalla í Kópavogi.
Bijreiðastœði eru norðan við húsið — Ekið frú
Nýbýlavegi norðan bensínstöðvar ESSO.
Nú sem fyrr leggjum við áherslu á lágt vöruverð og
góða þjónustu. Gjörið svo vel og reynið viðskiptin.
Munið að Kaupgarðsverð
er kjarabót
Kaupgardur
V/ENGIHJALLA
— / leiðinni heim —
H/F
Hliðarspor Unuhúss
Unuhús, aðsetur bókaútgáfunnar Helgafells, hefur nú brugðið undir sig betrí fætinum
og flutt sig um set. Ekki er þó um langt ferðalag hússins að ræða, og raunar væri nær
sanni að tala um hliðarspor hússins, þvi það flyzt aðeins innar i lóðina þzr sem það fær
nýjar og væntanlega traustari undirstöður.
Er ekki að efa að bókaútgáfan á sér langa framtið fyrir höndum þar sem undirstaða
hennar hefur nú verið treyst.
-GAJ/DB-mynd Hörður.
Lét reiðina
bitnaá
húsgögnunum
íbúa einum við Nóatún sinnaðist
eitthvað við sjálfan sig síðastliðið
laugardagskvöld. Lét hann reiðina
bitna á húsgögnum sínum og tók að
henda þeim út um gluggann á íbúð
sinni og út á Nóatúnið. Vakti þetta
framferði mannsins athygli lögreglunn-
ar, sem taldi hér um óeðlilegan flutning
húsgagna að ræða, jafnframt því sem
bilaumferð kynni að stafa hætta af
þessum sendingum sem bárust út um
gluggann á umræddu húsi.
Tókst lögreglunni að fá manninn
ofan af þessu tiltæki en hann hafði þá
þegar eyðilagt talsverðan hluta af inn-
anstokksmunum sínunt. Maðurinn
mun hafa verið undir áhrifum áfengis.
-GAJ
Veturinn hefur óneitanlega sfnar failegu hliðar. Þessi hlið er ein þeirra, fallegur snjór
á húsþaki og trjám. Slikar myndir minna óneitanlega á komu jólanna i næsta mánuði.
DB-mynd Hörður.
Rækjan í Axarfirði
ekki til skiptanna
Rækjuveiðar hófust frá Kópaskeri 2.
okótber og var allgóð veiði fyrstu dag-
ana en síðan hefur hallað undan fæti.
Er nú svo komið að 'áfli er kominn
langt niður fyrir 100 kg á togtima.
Lítur ekki út fyrir að veiðanlegt magn
hér úr flóanum á þessari vertíð verði
lifibrauð fyrir mörg byggðarlög.
Heilsufar hefur verið hér gott og
menn reyna að bera sig vel þótt á móti
blási.
- A.B. Kópaskeri.
Kosningamáí Hins flokksins:
Frumvarpsþjónusta
Komi Hinn flokkurinn manni að í al-
þingiskosningunum, sem þeir félagar
telja næsta víst, þá verður eitt aðalmál
þeirra að koma á fót Frumvarpsþjón-
ustunni hf. Telja jreir það vera ekki
minna mál en þegar vinstri stjórnin
kom á Framkvæmdastofnun í upphafi
þessa áratuga.
Frumvarpsþjónustan á að tryggja
lýðræðið. Geta minnihlutahópar
komið þar skoðunum sinum á fram-
færi og skiptir innihald frumvarpanna
þáekki meginmáli.
- JH