Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979. Um f ramkomu gagnvart geðveikum: Farísealykt af málinu Einn með erfðasyndina (n. 1934— 8717) skrifar: Þann 5. þ.m., birtist í Dagbl. grein, undirrituð af 8 starfsmönnum á Kleppsspítalanum, þar sem lýst er vítaverðri framkomu sjoppueigand- ans á Kleppsvegi 150. Er sú grein mjög vel orðuð og stóryrðalaus. En þann 12 þ.m. birtist svo grein eftir K. J. til varnar sjoppuhaldaranum. Sú grein er dæmigerð tilraun til að fara kringum kjarna málsins. Þar er snúið út úr og misskilið viljandi. Kjarni málsins er sá, hvort fram- koma sjoppuhaldarans hafi verið afsakanleg eins og á stóð. Við skulum nú athuga stöðu hans: Hann hefur í mörg ár selt geðsjúklingum varning sinn. Þeir eiga því drjúgan þátt í vel- gengni hans. Ekki veit ég til þess að sjúkling- arnir hafi valdið skaða eða haft uppi óspektir í þessum innkaupaferðum sinum enda er þess vandlega gætt að gæzlumaður eða gæzlumenn, eftir ástæðum, fari með sjúklingunum ef minnsti grunur er um að „slegið geti út í” fyrir viðkomandi sjúklingum. Sem sagt: Annaðhvort fá sjúkl- ingar að fara einir, þeir sem eru það hressir að geta það, eða í fylgd með gæzlumanni ef þeim er ekki fyllilega treystandi. Ég er viss um að sjoppu- eigandanum fyndist skarð fyrir skildi ef allar sjoppuferðir frá Klepps- spítala yrðu lagðar niður, svo mikið veit ég eftir meiri og minni Klepps- spítalavist síðastliðin 20 ár. Það er svo annað mál, að má vera að illa hafi staðið í bæli sjoppueig- andans og honum því orðið á þessi mistök í fljótfærni, og það er fyrir- gefanlegt, þótt erfítt sé þegar sjúkl- ingar eru annars vegar. En að neita að taka sönsum þegar honum gafst tækifæri til þess að halda mannlegri reisn sinni, það er of langt gengið og mjög svo ámælisvert. Mér finnst vera „farísealykt” af þessu máli af hálfu manns sem er því vanur að umgangast geðveika. Auð- vitað gerir maður meiri kröfur til skilnings slíkra manna. Ekki vildi ég vera í sporum sjoppu- haldarans þegar hann að loknu dags- verki telur saman gróða sinn af okkur og þakkar Guði sínum gjafir Hans, meðan hann neitar að viðurkenna „mistök” sin gegn okkur í þessu máli. AÐLEIKA JÓLASVEINA Jóhanna Gísladóttir skrifar: Mér finnst meginspurningin, sem kjósendur verða að svara i þessum kosningum, vera þessi: Eiga ríkis- stjórnir að leika jólasveina og gefa öllum allt, eins og vinstri flokkarnir virðast boða? Því er stundum gleymt í þeim herbúðum að þessar gjafir eru, þegar öllu er á botninn hvolft, keyptar fyrir fé alls almennings. Ríkissjóður er fjármagnaður með tillögum okkar venjulegra manna i landinu. Og han'n er ekki ótæmandi uppspretta lífsgæða. Þetta benda Sjálfstæðismenn á með sinni nýju frjálshyggjustefnu. Ríkisstjórnin verður að hætta að gefa jólagjafir og leika jólasveina á kostnað al- mennings. Við skattborgararnir krefjumst skattalækkana. Við ráð- stöfum fé okkar betur en stjórnmála- mennirnir. En eini stjórnmála- flokkurinn sem lofar skattalækkun- um er Sjálfstæðisflokkurinn. Ein sem finnst nóg komið af skatt- álögum. Ólafur Jóhannesson. HARTOPPAR FYRIR KARLMENN Sérfrœðingur frá hinu heims- fræga TRENDMAN hártoppa- fyrirtæki verður til viðtals á rakarastofu minni laugard., 24., sunnud. 25., og mánud., 26. nóv. Pantið tíma í síma 21575 eða 42415. Komið, skoðið ogathugið verð og gæði. Verið ungir og glœsilegir eins lengi og hægt er. VILLI RAKAFtl MIKLUBRAUT 68 Arnheiður Sigurðardóttir skrifar: Það leynir sér ekki á skrifum Þjóð- viljans og Morgunblaðsins að bæði kommar og íhald óttast framboð Ólafs Jóhannessonar í Reykjavík enda mega þeir það vissulega. Ólafur hefur borið höfuð og herðar yfir alla aðra stjórnmálafor- ingja síðustu árin og áunnið sér bæði traust og virðingu landsmanna án tillits til pölitískra skoðana. Sé viðrinisstjórn kratanna, sem nú situr, ekki talin með hafa þrjár rikis- stjórnir verið við völd á íslandi frá 1971. Allar þessar ríkisstjórnir hefur Ólafur Jóhannésson myndað og meira að segja tvær hinar síðari eftir að aðrir flokksformenn höfðu gefizt upp við stjórnarmyndun. Að sjálf- sögðu er það Ólafi hagstætt að foringjar hinna flokkanna eru ekki miklir bógar, svo sem margoft hefur sýnt sig. Benedikt Gröndal er enginn Jón Baldvinsson, Geir Hallgrímsson enginn'• Ólafur Thors né Ragnar Arnalds nokkur Einar Olgeirsson. Allt eru þetta sjálfsagt beztu menn en engir pólitískir leiðtogar. Ég tel að á Alþingi vanti trausta, heiðarlega, lífsreynda og hyggna menn. 'Vissulega á þetta allt við um Ólaf Jóhannesson. Því er það fagnaðarefni að hann hefur boðið sig framaðnýju. Hringið ísíma 27022 millikl. 13 og 15, eða skrifið Fred Flintstone i jólaskapi með fjölskyldunni. E.t.v. birtist hann á sjónvarps- skerminum um jólin. Flintstone fyriryngstu áhorfenduma Móðir í vesturbænum hringdi: Það hafa orðið talsverðar umræð- ur á lesendasíðu Dagblaðsins og víðar um Stundina okkar. Mig langar að segja það, að mér finnst Bryndís Schram sérstaklega góður stjórnandi þessa þáttar. Um leið verð ég að segja það, að mér finnst al- mennt of lítið af efni fyrir yngstu börnin i sjónvarpinu. Þar mundi hjálpa mikið upp á sakirnar að hefja sýningar aftur á hinum vinsælu teiknimyndum af Fred Flintstone og félögum sem voru upp á sitt bezta á frumskeiði íslenzka sjónvarpsins. Það er mjög skemmtilegt efni fyrir yngstu áhorfendurna. Eins og er hafa þeir lítið við að vera annað en Barba- papa. Dagblöðin hlífa litilmótlegum ofbeldismönnum: Nöf n og myndir af ofbeldisseggjum — til að hægt sé að vara sig á þeim Herdís Hermóðsdóttir, Eskifirði, skrifar: Tilefnið að ég hef nú samband við Dagblaðið er forsíðufrétt á mánu- daginn (12. nóv.) um níðingslega árás tveggja ungra manna, ef menn skyldi kalla, á 14 ára ungling. Þriðja „hetjan” horfði á hinn ójafna leik og hló að. Sögur af þvílíkum „hetjudáð- um” ungra manna eru að verða ærið algengar. Lyddur og ærulaus lítilmenni ráðast í flokkum á lítilmagnann, svo sem gamalt fólk, og nú þennan ungling án svo mikið sem eitt for- dæmandi orð sé látið falla um þennan óþverraverknað í fréttaflutn- ingi. Það stóð ekki á fordæmingu fréttamanna er kettlingar voru aflif- aðir með gasi fyrir nokkru, svo ætla má að fréttamenn hefðu tekið öðruvísi á málinu ef drengurinn hefði verið hundur og hlotið þessa meðferð. En því miður höfum við lesendur dagblaðanna alltof margra hiið- stæðra dæma að minnast. Ég spyr: Hvers vegna? Er verið að ala upp hér á landi óþokka, sem geta skákað í því skjólinu að þeim sé alltaf hlift, sama hvað þeir geri? Nöfn svona litilmenna á að birta og sömuleiðis myndir af þeim svo fólk geti í það minnsta varað sig á þeim. Þeir yrðu þá ef til vill líka færri, sem legðu slík óþverraverk fyrir sig. — Flugeldasýningar G. B. skrifar: Ég, sem gamall kjósandi Alþýðu- flokksins, get ekki lengur orða bundizt yfir allri þessari auglýsinga- starfsemi ráðherranna okkar. í stað þess að standa fyrir öllum þessum flugeldasýningum, eins og Ragnar Arnalds orðaði það um daginn, ættu þeir að snúa sér að því að móta ákveðna stefnu í landsmálunum. Það má þó blessað íhaldið eiga að þeir hafa þó lagt fram ítarlega stefnuskrá í efnahagsmálum. Þar er þó að finna upplýsingar um hvað þeir ætla að gera ef þeir komast í stjórn. Almenningur er orðinn leiður á þessu sífellda rifrildi um liðna tíð og vill nú frekar en nokkru sinni áður taka hreinskilnislega afstöðu til málefna. Eitt er víst, það þýðir ekki að nota nein vettlingatök lengur. í tuttugu ár er búið að staglast á verðbólgunni án þess að gera nokkuð raunhæft. Hættið þið nú þessu auglýsinga- skrumi, ágætu Alþýðuflokksráð- herrar, og snúið ykkur að þvi að kynna okkur kjósendunum hvað þið ætlið að gera!

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.