Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 43
43
N
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
séra
Guörún Tómasdóttir syngur á plötu sinni 26 islenzk þjöölög, flest úr safni
Bjarna Þorsteinssonar.
Tvær nýjar plötur frá Fálkanum
RÓBERTSYNGUR
GYLFA OG GUÐRÚN
ÍSLENZK ÞJÓÐLÖG
Hljómplötudeild Fálkans sendi í
síðustu viku tvær hljómplötur á
markaðinn. Sú fyrri nefnist Lestin
brunar. Á henni syngur Róbert Arn-
finnsson leikari lög eftir Gylfa Þ.
Gíslason við ljóð margra helztu
skálda þjóðarinnar.
Lestin brunar er önnur plata
Róberts með lögum eftir Gylfa. Sú
fyrri kom út fyrir nokkrum árum.
Undirleik á nýju plötunni annast
hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Stjórnandi er Jón
Sigurðsson.
Hin platan sem Fálkinn sendi frá
sér í siðustu viku hefur aðgeyma safn
af íslenzkum þjóðlögum. Það er
Guðrún Tómasdóttir sópransöng-
kona sem flytur þau við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar. Umslag
plötunnar er sérlega vandað. Það
hefur að geyma texta þjóðlaganna og
skýringar á ensku og íslenzku.
Flest lögin á plötu Guðrúnar og
Ólafs eru úr þjóðlagasafni séra
Bjarna Þorsteinssonar. Platan var
hljóðrituði Útvarpssal. -ÁT-
Róbert Arnfinnsson er enn í ferðinni
með lög eftir Gylfa Þ. Gislason
prófessor.
ÍBÚAR SEUAHVERFIS
Hef opnað fiskbúð að Tindaseli 3 (sama húsi og verzlunin Ásgeir). Opið
daglega kl. 9—12 og 4—6.
Býð meðal annars nýja linuýsu, ýsuhakk og ýsufars.
GJÖRHD SVO VEL OG
REYNIÐ VIÐSKIPTIN
HUSAVIÐGERDIR - BREYTINGAR
VANIR FAGMENN. - TILBOÐ EÐA
TÍMAVINNA - -
■ UPPL. I SIMA 71796.
FATASAUMUR
STARFSÞ JÁLFARAR
Iðntæknistofnun íslands vill ráða 2 starfs-
menn með starfsreynslu við saumaskap
eða á skyldum sviðum vegna hagræðingar-
verkefnis í fataiðnaði.
Starfsmennirnir munu fá þjálfun erlendis
og aðstoða síðan finnska sérfræðinga við
starfsþjálfun í fataverksmiðju.
Nánari uppl. veitir Sigurður Guðmunds-
son, Iðntæknistofnun fslands Skipholti 37,
sími 81533.
Eríc Clapton á hljómleikum í Póllandi:
s
Aðdáendurvoru dregn-
Fyrsta heimsókn Eric Claptons austur
fyrir járntjald verður væntanlega einnig
hans síðasta. Hann kom fram, ásamt hljóm-
sveit sinni, á tvennum hljómleikum í Varsjá,
höfuðborg Póllands, og hélt að því búnu til
Katowice í sama landi. Þar áttu að verða
tvennir tónleikar en þeim seinni var aflýst
eftir að allt hafði farið upp i loft í fyrra
skiptið.
Hljómleikarnir fóru vel af stað. En þegar
nokkuð var á þá liðið þusti skari ákafra
aðdáenda að sviðinu. Þeir fengu hins vegar
varmar viðtökur pólskra öryggisvarða sem
gengu hart eftir því að koma fólkinu í sæti
sín aftur. Nokkrir voru þó fjarlægðir úr
hljómleikahöllinni, sumir meira að segja
dregnir út á hárinu.
Um tíma var svo fjandsamlegt andrúms-
loft í salnum milli öryggisvarðanna, áheyr-
enda og sviðsmanna Claptons, að óttazt var
að til uppþots kæmi. Ekki batnaði ástandið
þegar öll Ijós í salnum voru kveikt.
Eftir að hljómsveitin lauk flutningi sínum
fór allt upp í loft milli starfsmanna Claptons
og pólskra yfirvalda. Framkvæmdastjóri
Calptons, Roger Forrester, ásakaði Pólverja
um óþarft ofbeldi en hinir neituðu staðfast-
legaöllum ásökunum. Deilan endaði með því
að Forrester heimtaði að á síðari hljómleik-
unum kæmi ekki til neinna átaka.annars
yrðu þeir felldir niður.
Eftir nokkurt japl og jaml kváðust Pól-
verjar ekki geta ábyrgzt neitt slíkt. Forrester
aflýsti þvi konsertinum og sagði að aðdá-
endur Eric Clapton verðskulduðu betri
meðferð en þá sem þeir höfðu sætt fyrr um
kvöldið.
Eric sjálfur hafði á orði að hann myndi
ekki aftur sækja Pólverja heim. „Ég kom
hingað vegna þess að ég hef gaman af að
prófa eitthvað nýtt, — leika fyrir fólk sem ég
hef ekki hitt áður,” sagði hann ,,En fram-
koma pólsku öryggisvarðanna fór alveg með
löngun mína til að hafa frekari kynni af Pól-
verjum. Hvernig getur nokkur maður spilað
á meðan aðdáendur hans eru meðhöndlaðir
verr en nokkrar skepnur?” Hljómsveit sú
sem Eric Clapton hefur með sér núna er sögð
sú albezta sem leikið hefur með honum síðan
hann hóf að koma fram fyrir sextán árum.
Úr MELODY MAKER
irútáhárinu
ERIC CLAPTON — Fékk sig fullsaddan af fyrstu heimsókn sinni austur
fyrir jámtjald.
DB-mynd: Hallgrimur Björgólfsson.
CO
O
N.'
kimelka
Hinir sívinsælu AKKJA kuldajakkar
frá Melka eru komnir aftur. Jakkarnir eru
vatteraðir og með hettu í kraganum.
Margir litir.
Nú er Melkavetur í Herrahúsinu.
BANKASTRÆTI 7
AÐALSTRÆTI4