Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 48
_____----------
Samþykktir f iskiþings:
Takmarkanir á þorsk-
veiði á vetrarvertíð
— verði ekki meiri en 50% af áætlaðri ársveiðinni. Sala veiðileyfa og kvótaskipting felld á þinginu
Fiskiþing, sem lauk í gær, hafnaði
tillögum um kvótaskiptingu veiða á
einstök veiðiskip og einnig sölu
veiðileyfa til takmörkunar á þorsk-
veiðum. Miklar og heitar umræður
voru um málið og voru haldnar
rúmlega fjörutíu ræður um skipulag
fiskveiða á þinginu. Umræðurnar voru
lokaðar fjölmiðlum, samkvæmt sam-
þykkt þingsins.
Athyglisverðasta samþykkt þingsins
þykir að líkindum sú, að þorskveiði
fyrstu fimm mánuði ársins fari ekki
upp fyrir helming af áætlaðri veiði
ársins. Miðað við aflatölur í ár mundi
þetta tákna nærri þrjátíu þúsund
tonna samdrátt á vertiðarafla. Svarar
það til þess að engar veiðar yrðu í
maímánuði en í ár komu 25 þúsund
tonn af þorski á land í þeim mánuði.
Fiskiþing telur að ókostir og
annmarkar á sölu veiðileyfa með
svonefndri verðlagsaðferð séu of miklir
til að það komi til greina.
Þingið vill að þegar sé sagt upp
öllum samningum við erlendar þjóðir
um veiðar innan íslenzkrar
fiskveiðilögsögu.
Einnig að veiðitakmarkanir hvers
árs verði ákveðnar fyrir ársbyrjun
hvers árs og síðan haft stöðugt sam-
band við hagsnunaaðila á sviði
fiskveiða.
Fiskiþing leggur til að algjört
þorskveiðibann verði tiu daga um
páska og frá 20. desember til áramóta.
Einnig að togveiðiskipum verði bannað
að veiða þorsk frá 1. júlí til 10. ágúst.
Haldið verði áfram verðbótum á
karfa, ufsa og grálúðu, þegar hag-
stæðast sé að veiða þessar fisktegundir.
Takmörkunum á sérstökum
veiðisvæðum eins og frímerkinu
svokallaða verði haldið áfram. -ÓG.
Fokkervélin á Egiisstaðaflugvelli eftir óhappið. Á innfelldu myndinni sjást skemmdimar neðarlega á skrokk vélarinnar. DB-myndirRagnarTH.
Færibandavél á Egilsstaðaflugvelli:
ÓK MANNLAUS Á FOKKERINN
Talsverðar skemmdir urðu á Fokker
Friendshop, vél Flugleiða, TF-LMN á
Egilsstaðaflugvelli í gærmorgun er
færibandavél sem notuð er við af-
greiðslu á flugvellinum keyrði á hana.
Færibandavélin var i gangi á
athafnasvæði sínu er hún af ókunnum
ástæðum hrökk í gír og fór mannlaus
af stað og lenti á flugvélinni við
framhurð og skemmdi hana talsvert.
Flugvélin var nýlent á Egilsstaðaflug-
velli og var verið að vinna að afferm-
ingu á henni er óhappið varð. Vélin átti
síðan að fara til Færeyja en vegna
óhappsins var fengin vél frá Flugfélagi
Norðurlands til að hlaupa í skarðið og
flytja farþegana til Færeyja.
í gærdag var unnið að bráðabirgða-
viðgerð á flugvélinni á Egilsstaðaflug-
velli þannig að hægt yrði að fljúga
henni til Reykjavíkur þar sem frekari;
viðgerð fer fram á henni.
-GAJ.
Magnús H. Magnússon:
13£ PROSENT KAUP-
HÆKKUN TIL ALLRA
—leggur til að búvaran hækki sem nemur kauphækkun til bænda
Sennilega fá allir launþegar 13,2
prósent kauphækkun 1. desember,
að sögn Magnúsar H. Magnússonar
ráðherra í morgun.
Yrði þá valin hærri talan af þeim,
sem til greina kæmu. Kauphækkun
, hinna lægra launuðu yrði hækkuð
upp um tvö prósent, svo að hún yrði
hin sama og kauphækkun hinna
hærra launuðu.
Ríkisstjórnin mun ákveða
kauphækkunina á stjórnarfundi í
morgun.
Magnús H. Magnússon hefur lagt
til, að búvöruhækkuninni 1.
desember verði ekki algerlega frest-
að, heldur verði búvara hækkuð sem
nemur kauphækkun til bænda. Sú
kauphækkun verði i nokkru
samræmi við kauphækkun annarra
stétta. öðrum þáttum búvöru-
verðsins, sem hefðu hækkað það,
verði skotið á frest. Magnús sagði í
morgun, að það væri í samræmi við,
að öðrum hækkunum hjá at-
vinnuvegunum hefði verið frestað
síðustu vikur. Ef bændur fengju 13,2
prósent launahækkun; mundi bú-
vöruverðið hækka um 7,2 prósent,
sagði Magnús H. Magnússon.
-HH.
frfálst, úháð daghlað
MÁNUDAGUR19. NÓV. 1979,
15og20daga
gæzluvarðhald
— tveir teknir í nýju
fíkniefnamáli
Tveir liðlega tvítugir Reykvíkingar
voru handteknir á föstudagskvöldið,
grunaðir um innfíutning og dreifingu
fíkniefna, aðallega hass. Þeir voru úr-
skurðaðir í 15 og 20 daga gæzlu-
varðhald á laugardagsmorgun. Hefur
verið unnið að rannsókn máls þeirra
yfir helgina, skv. upplýsingum fikni-
efnadeildar lögreglunnar í Reykjavík.
Ekki er enn ljóst um hversu mikið
magn er að ræða en reikna má með að
það sé nokkuð, og jafnframt að
einhver fleiri efni en kannabis komi þar
tilsögu. -ÓV.
Afgreiðsla
veðbókarvottorða:
Ekki tekið við
símapöntunum
Yfirborgarfógetinn í Reykjavík
hefur skrifað fasteignasölum bréf þar
sem tilkynnt er, að frá og með deginum
i dag, 19. nóvember, verði hætt að
taka við símapöntunum á veðbóka-
vottorðum, þar sem reynsla þessa árs
hafi sýnt, að mörg hundruð slíkra
veðbókarvottorða séu hvorki sótt né
greidd.
Framkvæmdin verður því hér eftir
sú, að þeir sem þurfa á veðbókarvott-
orðum að halda verða að mæta á skrif-
stofu yfirborgarfógetans, panta og
staðgreiða. Fá þeir þá númeraða
greiðslukvittun sem þeir frámvísa þeg-
ar þeir sækja vottorðið.
Ákvörðun þessi er tekin í framhaldi
af athugun embættisins á því, hvernig
stytta megi biðtíma eftir afgreiðslu
veðbókarvottorðum, sem ýmsum hefur
þótt ærinn. -BS/GAJ.
Snorri Sigfinnsson:
Ósáttur við
stefnu Alþýðu-
bandalagsins
og sagði sig úr f lokknum
„Ég var alla tið andvígur aðild
Alþýðubandalagsins að ríkisstjórninni
og sætti mig ekki við margt það sem
flokkurinn var neyddur til að gera í
stjórnarsamstarfinu. Það er lítið sam-
ræmi á milli sósíalískrar stefnuskrár og
verka Alþýðubandalagsins. Sú er á-
stæðan fyrir úrsögn minni úr
flokknum,” sagði Snorri Sigfinnsson,
bifvélavirki á Selfossi í samtali við Dag-
blaðið i morgun.
Snorri hefur verið þekktur tals-
maður Alþýðubandalagsins á
Suðurlandi, en sagði sig úr flokknum
fyrir skömmu.
„Úrsagnarbréfið er dagsett 6
dögum fyrir fund kjördæmisráðsins,
þar sem framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins var endanlega ákveðinn. Ég vil
taka það fram að úrsögnin er að öllu
leyti óviðkomandi framboðinu, enda
álít ég það hlægilegt og smávægilegt
mál hvaða menn veljast til að rétta upp
hendur á alþingi. Ástæðan er sú að ég
er ósáttur við pólitík Alþýðubanda-
lagsins allt frá því í stjórnarmyndunar-
viðræðunum í fyrra,” sagði Snorri Sig-
finnsson. -ARH.