Dagblaðið - 24.03.1980, Qupperneq 1
rlatjMaíí
6. ÁRG. — MÁNUDAGUR 24. MARZ 1980 — 71. TBL.
RITSTJÓRN SlÐUMtlLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Enn „gat” hjá fiskvinnslunni:
ff
HELD AÐ WÐ KOMUMST
HJÁ GEN&SFBJJNGU”
—segir Tómas Amason viðskiptaráðherra
„Ég held, að komizt verði hjá
gengisfellingu þrátt fyrir vanda fisk-
vinnslunnar,” sagði Tómas Árnason
viðskiptaráðherra í viðtali við DB í
morgun.
„Gengið hefur sigið svolítið,”
sagði ráðherrann. Hann var spurður,
hvort ekki væri stórt „gat” í dæm-
inu, þar sem aðgerðir ríkisstjórnar-
innar hefðu verið metnar á 3—4
milljarða fyrir fiskvinnsluna, en fisk-
vinnslan teldi sig vanta 10—11 millj-
arða.
„Þarnaerumað ræða vanþroska
manna. Þeir taka ekki nægilegt tillit
til hagsmuna þjóðarinnar sem
heildar. Þarna er hætta á ferðum,
þegar menn gera blákalt kröfur og
segja, að gengi krónunnar þurfi því
að falla svo og svo mikið. Þetta eru
vanhugsuð vinnubrögð,” sagði
Tómas Arnason. „Þó hef ég manna
mest predikað, að atvinnuvegirnir
eigi að geta borið sig sómasamlega,
til þess að geta nýtt nýja tækni og
aukið framleiðni.”
„Það er spurningin, hvar á að
grípa inn í,” sagði ráðherrann um
kröfur um hækkað fiskverð. „Lagt
hefur verið til, að fiskverð hækki og
gengið þá látið falla. Þá verða að
koma til fleiri krónur. Það er keðju-
verkun i þessu öllu. Menn eru alltaf
að keppast við að jafna metin viðein-
hverja aðra, en einhvers staðar
verður að grípa inn.”
-HH.
Verkfalls-
togarínn
skauzt inn
ogút
— tregtfiskeríhjá
ísafjarðartogurunum
ogþeirekki
væntanlegirfyrren
um helgina
Fiskirí hefur verið fremur tregt
hjá togurum út af Vestfjörðum og er
ekki búizt við neinum Isafjarðar-
togaranna'fyrr en þeir hafa fyllt alla
þá kassa sem þeir hafa um borð.
Gæti það dregizt fram undir næstu
heigi.
Ekki var vitað til að Guðmundur
Vignir Jósefsson gjaldheimtustjóri,
sem skipaður hefur verið sáita-
semjari i deilu Sjómannafélags ísa-
fjarðar og útvegsmanna, hafi boðað
aðila á sáttafund. Vcrkfail gekk i
gildi á ísafjarðartogurunum á
fimmtudaginn var og stöðvast þeir er
þeir koma að landi ef ekkert breytist.
I Ísafirði er jafnvel gert ráð fyrir
þvi að ekkert gerist í málinu fyrr en
eftir páska.
Það vakti athygli ntanna í Bolung-
arvík sl. fimmtudagsmorgun að einn
verkfallstogarinn, Páll Pálsson frá
Ísafirði, kom inn og var talið að hann
hefði skotið manni i land. Pétur
Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða, var að þvi
spurður hvort ekki hefði átt að
stöðva togarann þarna. Hann sagöist
ekki hafa heyrt um þetta, en Bolung-
arvik væri utan þeirra umdæmis.
Öðru máli heföi gegnt ef togarinn
hefði komið til isafjarðar, þá hefði
hann verið stöðvaður. Skipið hefur
ekki fengið neina undanþágu til þess
aðkomatilhafnar. ÓG/JH.
Þrennt slasað-
ist f bflveltu
Þrennt slasaðist i bilveltu sem varð
.siðdegis á laugardag móts við bæinn
'Skeljabrekku í Borgarfirði. Var þar
reynslulítill ökumaöur á ferö og er
talið að hann hafi misst stjórn á bíln-
um er bifreiðin lenti i lausamöl 1
vegarkanti. Meiðsli fólksins voru
ekkialvarlegseðlis. . -A.St.
BUWIB
er40síðurídag
Brúðhjónin ungu uð Draghúlsi í gœr, Sigrún Ragnarsdóttir og Pjetur Hafstein Lúrusson. Lengst til hœgri er Örn Karlsson,
einn úsatrúarmannanna, og að baki honum er aiisherjargoðinn Sveinbjöm Beinteinsson, sem stjórnaði athöfninni.
DB-mynd Ragnar Th.
Sungið úr Háva-
í ásatrúarbrúðkaupi að Dragháísi igær
„Formið á þessari athöfn ræðst
mjög af þvi sem fólkið sjálft vill. Það
er nefnilega ekki vitað, hvernig þetta
gekk fyrir sig í ásatrúnni fornu. Við
fylgjum því bara lögbundnum siðum
en höfum auk þess ákveðna viðbót,”
sagði Sveinbjörn Beinteinsson, alls-
herjargoði á Draghálsi, í samtali við
Dagblaðið í gær.
Um fjögurleytið i gærdag gaf
Sveinbjörn saman í hjónaband
Sigrúnu Ragnarsdóttur og Pjetur
Hafstein Lárusson rithöfund. Er
þetta í annað skiptið sem Sveinbjörn
gefur fólk saman .í hjónaband að
Draghálsi en í tvö önnur skipti hefur
slík athöfn farið fram í Reykjavik.
Athöfnin fór fram við Þórslík-
neskið að Draghálsi. „Ég fór með
fornan eiðstaf,” sagði Sveinbjörn
aðspurður um, hvernig athöfnin
hefði gengið fyrir sig, „Einnig kvað
ég smá kafla úr Völuspá. Annars er
formið líkt hinu hefðbundna, spum-
ingar og svör. Athöfnin hefur líklega
ekki tekið nema 5—6 minútur.
Sungið var úr Hávamálum og Völu-
spá og brúðhjónin ungu lásu ljóð sem
Pjetur hafði samið sérstaklega af
þessu tilefni,” sagði Sveinbjörn.
Svaramenn voru faðir brúðar-
innar, Ragnar Björnsson skólastjóri,
og Sigurjón Magnússon, ásatrúar-
maður.
-GAJ.
Er Luxem-
borgarflugið
nauðsyn?
Af hverju halda Flugleiðir hf.
áfram að fljúga til Luxemborgar frá
Bandaríkjunum í stað þess að fljúga
milli íslands og Bandaríkjanna,
þannig að brýnustu samgönguþörf-
um okkar sé fullnægt á þessari flug-
leið?
Þetta er ein þeirra spurninga sem
Steingrimur Hermannsson sam-
gönguráðherra ræðir á fundi mcð
samgöngu- og flugmálaráðherra
Luxemborgar, sem hófst kl. 7.30 i
morgun eftir íslenzkum tima.
Um 40% ferðamanna i Luxemborg
koma með þessu Flugleiðaflugi frá
Bandaríkjunum. Um 10—12% þeirra
ferðast með fluvélum Luxemborgar-
manna til annarra áfangastaða i
Evrópu. Túristakrónan rúllar mcð
sjöföldum hraða miðað við það sem
gerist í öðrum arðbærum atvinnu-
rekstri á fcrðamannavertiðinni í
Luxemborg og raunar viðast.
Hótelrekstur, bilaútgerð og hvers
kyns þjónusta við ferðamenn er mjög
þýðingarmikil tekjulind fyrir Luxem-
borg. Verulegan þátt i velgengninni
eiga Flugleiðir með sínu viðurkennda
flugi og flugþjónustu.
Því mun haldið fram af islenzkum
stjórnvöldum, að þarlend stjórnvöld
geti með góðu móti létt ýmiss konar
skattlagniijgu af flugrekstrinum á
meðan illa gengur i honum. Þrátt
fyrir atvinnu á annað hundrað
Ísiendinga í Lusemborg við flug-
þjónustu og flugrekstur, erum við
síður en svo baggi á þeirri þjóð eins
og veriðhefur.
Talið er að Steingrímur Hermanns-
son hafi ýmis spil á hendinni í
viðræðum við ráðherra Luxemborg-
ar. Liklegt er, en þó ekki alveg vist,
að viðræðum hans Ijúki i dag. -BS.
Sinubrunafarald-
urinnaðhefjast
Sinubrunafaraldurinn er nú að
byrja og hafði slökkviliðið afskipti af
nokkrum slikum um helgina.
Ættu foreldrar nú að aðstoða
slökkviliðsmenn í að forða frá hættu
af þessum eldum, með þvi að reyna
að sjá til þess að börn þeirra séu ekki
með eldfáeri og brýna fyrir þeim
hættuna.
Er skemmst að minnsta milljóna-
tjóns af eldi í skógræktargirðingu i
Hafnarfirði sem börn kveiktu. Einnig
rýrir það öryggi borgarinnar að
slökkviliðsmenn séu út um hvippinn
og hvappinn í baráttu við sinuelda ef
önnur óhöpp koma upp.
-A.Sl.