Dagblaðið - 24.03.1980, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 24.03.1980, Blaðsíða 10
10 NÝKOMIN ÓDÝR STÍGVÉL Litur: Svart Verð: 16.350. Utur: Brúnt VerÖ:26.150. Utur: Ljósbrúnt VerO:21.500.- 3. Litur: Rauðbrúnt Verö: 18.350.- Litur: Brúnn Verð: 17.300.- LAUGAVEGI60 SÍMI21270 PÓSTSENDUM Áth. hvort viðgetum aðstoðað. ísetningar á staðnum. f|Hm SKÚLAGÖTU 26 tlMll SÍMAR 25755 0G 25780 Skrifstofustarf Viljum ráða á næstunni skrifstofumann til starfa við IBM-tölvuritun og fleira. Starfsreynsla æskileg. Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna. Umsóknum með íipplýsingum um menntun og fyrri störf þarf að skila fyrir 1. apríl nk. VEGAGERÐ RÍKISINS BORGARTÚNI7105 REYKJAVÍK pThe Shadow of Nýr bandarískur vestri, hörkuspennandi frá upphafí til enda. Myndin er i Htum og cinemascope. Aðalhlutverk: Joe Don Baker, Sondra Locke, Ted Neeley. Bönnuð innan 14 ára. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. MARZ 1980. Prem hershöfðingi er nýlega tekinn við sem forsætisráðherra i Thailandi. Leysti hann þar af annan hershöfðingja, Krangsak, sem neyddist til að segja af sér. Var ástæðan bæði sögð sú að félagar hans i hernum töldu hann ekki aðhyllast nægilega valddreifingu og einnig var mikil óánægja i landinu með þær verðhækkanir sem orðið höfðu á nauðsynjavörum að undanförnu. Á myndinni sést Prem hershöfðingi biðja stjórn sinni blessunar rétt eftir að hann tók völdin. Svíþjóð: Meirihluti fyrir kjamorku áfram fjórír af hverjum tíu vildu þó að öll kjamorkuver yrðu hætt vinnsluinnantíuára Meirihluti kjósenda i Svíþjóð vill að haldið verði áfram smíði sex nýrra kjarnorkuvera i landinu og áætlun um nýtingu kjarnorkunnar til frið- samlegra nota verði haldið áfram enn um sinn. Er þetta niðurstaða þjóðar- atkvæðagreiðslu, sem fram fór í Svi- þjóð í gær. Úrslitin urðu þau að 58% þeirra sem greiddu atkvæði vildu að kjarnorkuverin sex yrðu reist og tekin í notkun. Síðan munu þau verða nýtt í 25 til 30 ár, þegar þau verða að öllum líkindum ónýt. Þá er hins vegar mögulegt að kjarnorkuöldinni í Svíþjóð ljúki ef þá verður talið að ekki sé nægilega séð fyrir öryggi orkuveranna og úrgangi frá þeim. 39% kjósenda vildu að þau sex kjarnorkuver sem eru í notkun í Sví- þjóð verði tekin úr notkun innan tíu ára og engin ný kjarnorkuver verði reist þar i framtíðinni. Thorbjörn Fáildin forsætisráð- herra minnihlutastjórnarinnar í Sví- þjóð sagði í sjónvarpsviðtali í gær- kvöldi að hann mundi beygja sig fyrir vilja meirihlutans. Fálldin hefur verið mikill andstæðingur kjarnorkunnar i Svíþjóð á undanförnum árum. Hann sagðist þó telja að ekki væri algjör- lega hægt að ganga gegn vilja þeirra nærri 40% af kjósendunum sem and- vigir væru kjarnorkunni. Nýting kjarnorkunnar hefur verið mikið deilumál í Svíþjóð á undan- förnum árum. Hefur það til dæmis valdið því að flokkarnir til hægri við Jafnaðarmannaflokkinn hafa ekki getað staðiðsaman aðstjórn. Kosningaþátttaka var fremur lítil í Svíþjóð í gær. Aðeins 74% af 6,3 milljónum kjósenda komu á kjör- stað. Í kosningunum sl. haust var kosningaþátttaka rétt um 90%. Bandaríkln: Spá Reagan og Cart- er sigri í New York ogConnecticut Ronald Reagan fyrrum fylkis- stjóra og Jimmy Carter Bandaríkja- forseta er spáð miklum sigrum i for- kosningum, sem fram eiga að fara á morgun í New York og Connecticut. Edward Kennedy öldungadeildar- þingmaður lætur þó ekki deigan Carter síga og fullyrðir að hann sé sannfærður um að hann muni vinna útnefningu Demókrataflokksins á flokksþinginu, sem verður í New York í ágúst. Kennedy þurfti að svara mörgum spurningum á fundi fréttamanna, sem fram fór hjá NBC sjónvarps- stöðinni í gærkvöldi. Af um tuttugu spurningum sem lagðar voru fyrir hann fjölluðu tveir þriðju um það hve lengi hann ætlaði að haida áfram baráttunni fyrir útnefningu þegar hann hefði beðið ósigur í for- kosningum í öllum ríkjum nema heimafylki slnu, Massachusetts. Svaraði hann því til að hann væri aigjörlega sannfærður um að vinna sigurá flokksþinginu. Svo virðist sem gagnrýni á hegðan Edwards Kennedy i sambandi við slysið við Cappaquiddick verði honum sífellt meiri fjötur um fót í kosningabaráttunni nú. Það var árið 1969 að ung stúlka drukknaði i bifreið Kennedys eftir að hann hafði ekið henni út af afskekktri brú. Síðan tilkynnti hann ekki um slysið fyrr en níu klukkustundum éftir að það hafði orðið. Þykja skýringar hans á máli þessu allar hinar ótrúlegustu, eins og Kennedy hefur raunar viður- kennt sjálfur. í skoðanakönnun sem birt var fyrir helgina, gerði ráð fyrir þvi að Jimmy Carter mundi sigra Kennedy með tveim atkvæðum fyrir hvert eitt sem sá síðarnefndi fengi. Reagan

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.