Dagblaðið - 24.03.1980, Side 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. MARZ 1980,
■' ■ i
Sigurður og Ástdís moð Stíganda eða „Hvíting"á milli sín: Stígandi spilltist Htíð i „sumarleyfinu".
DB-mynd: Heigi Már Ha/ldórsson.
Hesturinn Hvítingur í Land 02 synir er sprelllifandi:
UPPÁHALDIÐ Á
HEIMILINU
segja eigendurnir
„Stígandi er í uppáhaldi á þessu
heimili og tekinn í hús fyrstur hest-
anna hér þegar norðangarrinn gerir
vart við sig á haustin,” sagði Ástdís
Óskarsdóttir í Syðra Holti í
Svarfaðardal.
Stígandi er einn þekktasti hestur
landsins um þessar mundir. Reyndar
undir nafninu Hvítingur. Stigandi fer
með hlutverk Hvítings i kvikmynd-
inni Land og synir. Þar horfa menn
upp á Sigurð Sigurjónsson í hlutverki
Einars áGil.'hakkaleiðaHvíting upp á,
fjall, miða byssuhólki á enni hans og
fella hann. Bíógestir hafa sumir
hverjir gripið andann á lofti þegarj
Hvítingur fellur. Einstaka maður
hefur haft samband við Dagblaðið og
lýst vanþóknun sinni á þvi að svo
fallegur hestur skuli vera látinn
glata lífinu í þágu íslenzkrar kvik-
tnyndagerðar.
En sem sagt: „Hvítingur” er
sprellifandi og er í góðu yfirlæti hjá
eigendum sínutn, Ástdísi og Sigurði
Ólafssyni í Syðra Holti.
Sigurður sagði að hesturinn hefði
lítið spillzt í „suntarleyfinu”, á
meðan á töku kvikmyndarinnar stóð.
,,Ég er ánægður með útkomuna á
honum í myndinni og þá stjórn sem
liann fékk þar.”
Sigurður tók nafna sinn Sigurjóns-
son í nokkra æfingatima og leið-
beindi honum við stjórn og meðferð
Stiganda. Þau hjón sögðust ekkert
hafa hrokkið við þegar þau sáu hest-
inn felldan í myndinni. Þau hefðu
vitað utn allt þetta fyrirfram.
Stígandi er 24 vetra klárhestur með
tölti, reistur og góður að sitja á, segja
eigendurnir. Þau keyptu hann 6vetra
af Gísla Jónssyni sem nú býr á Engi-
tnýri í Öxnadal. Stígandi inun eiga
ættir að rekja til Háreks frá Geita-
skarði. .hmH
Stóragjá er fyrirtaks baðstaður en Grjótagjá
er allt of heit jyrir kroppinn:
Þar hafaflestra þjóða
kvikindi baðað sig
Grjótagjá og Stjóragjá í Mývatns-
sveit eru tvö af fjöldamörgum nátt-
úrufyrirbærum sem borið hafa
hróður sveitarinnar víða . Ófáir
túristar hafa snarazt úr leppunum og
vætt kroppinn í notalega heitu vatni
sem náttúruöflin sjá um að endur-
nýja i gjánum. Mývetningar hafa
auðvitað ekki síður notað sér þennan
baðmöguleika og jarðvísindamenn
baða sig á milli þess sem þeir eltast
við jarðskjálftamæla og hraun-
slettur á heiðunum.
Grjótagjá er í landi Voga austan
við Mývatn. Enskir stúdentar fundu
hana árið 1938. Þá var hiti vatnsins í
gjánni 42 gráður á celsíus. Fljótlega
var Grjótagjá umtöluð og vinsæll
baðstaður. Þar hafa flestra þjóða
kvikindi tekið sér bað og haft gott af.
í umbrotum á Kröflusvæðinu í apríl
og september 1977 hitnaði vatnið í
Grjótagjá. Hitinn fór upp i tæplega
60 graður og er um þessar mundir
56.5 gráður. Þar baðar sig því ekki
nokkur maður lengur.
Síðustu baðgestir í Grjótagjá
böðuðu sig 29. nóvember 1977. Þá
var hiti vatnsins 48 gráður og baðið
varð í syttra lagi hitans vegna. Þau
sem síðast heiðruðu Grjótagjá með
fáklæddri nærveru sinni voru: Axel
Björnsson jarðeðlisfræðingur,
Ármann Pétursson bóndi í Reynihlíð,
Hjörtur Tryggvason starfsmaður
Orkustofnunar, Halldór Ólafsson
starfsmaður Norrænu eldfjalla-
stöðvarinnar og Kristín Vala
Ragnarsdóttir jarðfræðingur.
Stóragjá er jarðsprunga í Reykja-
hlíðarlandi. Hún hefur verið bað-
staður frá ómunatíð. Vatnið þar var
lengi vel 26 gráðu heitt en í jarð-
hræringunum 1977 hitnaði það og er
nú um 40gráður.
Stóragjáin er rétt við þjóðveginn í
Mývatnssveit og því auðvelt að koma
því við að fá sér bað á ferð um sveit-
ina.
-ARH.
m
Líf og fjör i Stórugjá. Þeim líkaði Hfið strákunum þegar Hörð ijósmyndara
Dagbiaðsins barþar að i fyrrasumar.
fRœBbBlA rNiR
gefa út plötu
„ Við ætlum til Engíands í
haust og komum fram í Shef-
field, Leeds og ef til vill víðar.
Stefnan er auk þess að taka
upp efni íferðinni og gefa út ú
plötu eða plötum, ” sögðu liðs-
menn hljómsveitarinnar
Fræbbblarnir. Þeir vöktu
Fræbbbtarnir eftir uppstokkun: Ari
Einarsson gitar, Bjarni Sigurðsson
Ijósam., Tryggvi Þ. Tryggvason
grtar, Valgarður Guðjónsson söng-
uf, Stefán Karl Guðjónsson
trommur og Steinþór Stefánsson
bassi.
athygli á nýrri þriggja laga
plötu hljómsveitarinnar sem
nýlega er útkomin. Útgefandi
er brezkur heiðursmaður sem
býr í Sheffield og hann hefur
sett nokkur hundruð eintök af
plötunni I sölu ytra.
Hér heima fara eitt þúsund
eintök á markaðinn. Og
fRœBbBlArNiR ætla auðvitað
að selja það allt og meira til.
/2
FOLK
Mikil uppstokkun hefur átt
ær stað í hljómsveitinni síðan
olatan góða var tekin upp.
Meðal annars hefur bassa-
leikari Snillinganna gengið til
liðs við Fræbbblana. Gítaristi
úr Fræbbblunum hefur aftur á
móti gengið til liðs við Snilling-
ana. Fræbbblar töldu þá
hljómsveit annars nær dauða
en lífi.
ATLI RUNAR
HALLDÓRSSON