Dagblaðið - 24.03.1980, Qupperneq 18
DAGBLADIÐ. MÁNUDAGUR 24. MARZ 1980.
18
ð
Iþróttir
Iþróttir
ÍSLAND LEIKUR FJÓRA
HM-LEIKI í SUMAR
— Leikjunum íHM-ríðli Bslands íknattspymu ákveðnir
leikdagar á laugardag
íslenzka landsliðiA í knatlspyrnu
mun leika fjóra leiki I þriflja riðli
heimsmeistarakeppninnar í knatt-
spyrnu í sumar — tvo á Laugardalsvell-
inum og tvo erlendis. Alls vcrða sjö
leikir í riðlinum á árinu 1980 fyrir HM
á Spáni 1982 en 13 leikir verða háðir á
árinu 1981. ísland og Wales lcika fyrsta
leikinn í riðlinum og verður hann á
Laugardalsvelli 2. júní næstkomandi.
Sovézka landsliðið kemur hingað og
leikur 3. september en ísland leikur svo
í Tyrklandi 24. septcmber og í Sovét-
ríkjunum 15. október.
Samkvæmt fréttaskeyti frá tékk-
nesku fréttastofunni Ceskoslovensky
var skýrt frá því á laugardag í Prag, að
knattspyrnusambönd Islands, Wales,
Tékkóslóvakíu, Sovétrikjanna og
Tyrklands hafi á föstudag undirritað
samkomulag um leikdaga i 3. riðli
Evrópu í heimsmeistarakeppninni.
Niðurstaða samkomulagsins var
þannig:
1980
2. júní, ísland — Wales
3. september, Island — Sovétrikin
24. september, Tyrkland — ísland
15. október, Sovétríkin — ísland,
Wales — Tyrkland
19. nóvember, Wales — Tékkóslóvakía
2. des, Tékkóslóvakia — Tyrkland
1981
25. marz, Tyrkland — Wales
15. apríl, Tyrkland — Tékkóslóvakia
25. mai, Tékkóslóvakia — ísland
25. ágúst, Wales — Sovétrikin
2. september, ísland — Tyrkland
9. september, Tékkóslóvakía — Wales
23. september, Sovétríkin — Tyrkland,
island — Tékkóslóvakía
10. október, Tyrkland — Sovétríkin
14. október, Wales — ísland
28. október, Sovétríkin — Tékkó-
slóvakía
8. nóvember, Sovétríkin — Wales
30. nóvember, Tékkóslóvakia — Sovét-
ríkin.
ÁTJÁN MÖRK SIGGA SVEINS
ÞEGAR ÞRÓTTURVANN ÞÓR!
—Þór, Akureyri, tapaði einnig fyrir Ármanni í 2. deildinni
Sigurður Sfeinsson — 18 mörk i leik.
Sigurður Sveinsson, landsliðsmaður-
inn örvhenti í hrótti, færði lið sitt á
þröskuld 1. deildar handknattleiksins á
laugardag. Skoraði 18 mörk gegn Þór í
2. deild í Laugardalshöll og það mun
vera almesta markaskorun i einum leik
sem Um getur — og Þróttur þurfti
vissulega á þessum mörkum Sigurðar
að halda. Akureyringar höfðu
lengstum forustu í leiknum og það var
ckki fyrr en um miðjan síðari hálfleik
að Þróttur komst yfir. Eftir það var
ekki vafi á hvort liðið mundi bera sigur
úr býtum. Þróttur sigraði 27—23 og
hefur nú 18 stig úr 13 leikjum. En KA
og Fylkir eru hættulegir keppinautar
um sæti í 1. deild.
Það var reyndar furðulegt, að Akur-
eyringar skyldu ekki taka Sigurð úr
umferð fyrr en rétt lokamínútur leiks-
ins, þegar staðan var orðin vonlaus.
Sigurður skoraði og skoraði — og vörn
Þórs kom varla á móti honum. Gár-
ungarnir voru að tala um í byrjun,
Sigurður átta, Þór níu eftir 24 mín. en
Sigurður skoraði átta fyrstu mörk
Þróttar í leiknum. Síðan skoraði Einar
bróðir hans og jafnaði í 9—9. Þór
komst í 12— 10 en Siggi Sveins gerði sér
litið fyrir og minnkaði muninn beint úr
aukakasti eftir að leiktíma lauk. 12—11
fyrir Þór í hálfleik. Rétt er að geta þess
að Pálmi Pálmason lék ekki með Þór í
leiknum og munar um minna.
í síðari hálfleiknum hélt Þór eins til
tveggja marka forustu þar til um
miðjan hálfleikinn að Arnar Guðlaugs-
son, sem þjálfar Þórsara auk þess sem
hann leikur með liðinu, var tekinn úr
umferð. Við það hrundi leikur Akur-
eyrar-liðsins. Þróttur breytti stöðunni
úr 15—17 í 20—17 — skoraði fimm
mörk í röð — og eftir það blasti sigur-
inn við Þrótti. Dýrmæt stig í höfn — og
þau geta Þróttarar eingöngu þakkað
Sigga Sveins. 18 mörk í 22 skottilraun-
um er áreiðanlega með því bezta, sem
hér hefur átt sér stað i handknattleik.
Flestir aðrir leikmenn Þróttar voru
daufir, meira að segja Sigurður
Ragnarsson markvörður. Hann fór
ekki að verja vel fyrr en í lokin.
Varnarleikurinn var ekki góður — og
þar voru þeir slakastir bræðurnir Einar
og Siggi Sveins. Hjá Þór var Arnar
drjúgur, svo og Sigtryggur og Gunnar
Gunnarsson lék Einar upp úr skónum.
Mörk Þróttar skoruðu Sigurður
18/4, Ólafur H. Jónsson 3, Páll Ólafs-
son 3, Lárus Lárusson 2 og Einar 1.
Mörk Þórs skoruðu Sigtryggur 8/4,
Gunnar 6, Arnar 4, Ólafur Sverrisson
2, Árni Stefánsson 1, Valur Knútsson Þ
og Hrafnkell Óskarsson 1. Ragnar Þor-
valdsson varði mark Þórs með tilþrif-
um, einkum í fyrri hálfleik. Dómarar
Árni Tómasson og Björn Kristjánsson.
í gær lék Þór svo við Ármann í
Laguardalshöll. Það kom á óvart, að
Ármann hafði undirtökin nær allan
leikinn og vann öruggan sigur, 25—20.
Lið Þórs lék mun Iakar en gegn Þrótti
daginn áður.
- hsím.
Naumur sigur
Vals gegn Þór
—Valur vann 16-14 og sigurgangan
helduráfram
Valsstúlkurnar héldu áfram sigur-
göngu sinni í 1. deild kvenna um helg-
ina er þær sigruðu Þór á Akureyri 16—
14 í jöfnum og spennandi leik, sem
annars einkenndist af afar slakri dóm-
gæzlu. Staðan í hálfleik var 9—7 Val í
vil.
Leikurinn var jafn til að byrja með
en Valur leiddi með 1—2 mörkum. Þór
jafnaði að vísu í 4—4 á 12. mín. en eftir
það sigu Valsstúlkurnar aftur fram úr
og leiddu með tveimur mörkum í hálf-
leik. Þórsstúlkurnum tókst síðan aftur
að jafna metin á 8. mín. síðari hálf-
leiks, 11 — 11 og fóru skömmu síðar illa
að ráði sínu er Harpa nýtti ekki tvö
vitaköst í röð. Það reyndist afdrifaríkt
því Vallstúlkurnar gáfu aldrei eftir: Þór
náði ekki að ógna sigrinum neitt að
ráði undir lokin og öruggur sigur Vals
var í höfn.
Bæði liðin reyndu að taka leikmenn,
úr umferð. Þór tók Hörpu Guðmunds-
dóttur úr umferð um tíma en þá lét
Erna ljós sitt skina í frelsinu. Hún er nú
að skipa sér á bekk með allra beztu
handknattleikskonum landsins. Valur
tók Magneu úr umferð megnið af tím-
anum en það tókst ekki nógu vel þvi
hinar fengu þá meira rými. Magnea
skoraði hins vegar ekki nema 1 mark.
Dómarar voru þeir lngvar Viktors-
son og Halldór Rafnsson og dæmdu
þeirafar illa — einkum framan af.
Mörk Þórs: Harpa 7/4, Þórunn 3,
Valdís 2, Magnea I og Guðný I.
Mörk Vals: Erna 6/4, Harpa 4/2,-
Ágústa 3, Marin 1, Sigrún B. 1 og
Karen 1.
- GS
Þór—Valur 14-16 (7-9)
íslartdsmótið í handknattloik, 1. deild kvenna. Þ6r - Valur 14-16 (7-9). Akureyri 22. marz.
Beztu leikmenn: Ema Lúðvíksdóttir, Val 7, Harpa Sigurðardóttir, Þór 7, Harpa Guðmunds-
dóttir, Val 6, Ágústa Dúa Jónsdóttir, Val 6, Magnea Friðriksdóttir, Þór 6.
Þór Kristín Ólafsdóttir, Borghildur Freysdóttir, Magnea Friöriksdóttir, Valdís Hallgríms-
dóttir, Harpa Sigurðardóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Þórey Friðriksdóttir, Ásdís Guðmunds
dóttir, Guðný Bergvinsdóttir, Edda öriygsdóttir, Anna.
Valur Jóhanna Pólsdóttir, Ólafia Guðmundsdóttir, Harpa Guðmundsdóttir, Erna Lúöviks-
dóttir, Ágústa Dúa Jónsdóttir, Karen Guðnadóttir, Kristín Ólafsdóttir, Marín Jónsdóttir, Guð-
björg Einarsdóttir, Sigrún Bergmunásdóttii^
íþróttir
Iþróttir
Ólafur H. Jönsson meö Hummel-skó en að baki eru þekktir landsliðskappar úr Val,
Þorbjörn Jensson og Stefán Gunnarsson.
DB-mynd Bjarnleifur.
Hummel-sportvöru-
verzlun í Ármúla
,,Ég held að þella geti orðið góð
verzlun — við erum á góðum stað með
næg bílastæði og heimsþekkta gæða-
vöru,” sagði landsliðskappinn kunni í
handknattleik, Ólafur H. Jónsson,
Forest
gegn Ajax
— í Evrópubikamum
Á laugardag var dregið í undanúrslit
Evrópumótanna þriggja í knattspyrn-
unni. Evrópumeistarar Nottingham
Forest leika við Ajax, Amsterdam, í
Evrópubikarnum, og í hinum undanúr-
slitunum leika Real Madrid og Ham-
borg. Keppni meistaraliða og frábær
lið þarna samankomin. Öll hafa sigrað
í Evrópubikarnum nema Hamburger
SV. Real Madrid sex sinnum, Ajax
þrisvar — og það þrisvar í röð, 1971 —
1973. Forest einu sinni.
Fyrri leikirnir verða 9. apríl í Nolt-
ingham og Madrid — en leikið í
Amsterdam og Hamborg 23. apríl.
IJrslitaleikurinn í keppninni verður svo
í Madrid 28. maí.
í Evrópukeppni bikarliða leika
Nanles, Frakkiandi, og Valencia,
Spáni — og Arsenal, Englandi, og
Juventus, Italíu. Úrslitaleikurinn
verður í Brusscl 14. maí.
í UEFA-keppninni eru fjögur þýzk
lið eftir. Þar lentu Bayern Munchen og
Eintracht Frankfurt saman, og VfB
Stuttgart og Borussia Mönchenglad-
hach. Úrslitin þar eru leikin heima og
heiman. Fyrri úrslitaleikurinn verður 7.
mai annaðhvort i Múnchen eða Frank-
furl en hinn síðari 21. maí á heimavelli
Stuttgart eða Gladbach.
. Það er athyglisvert í Evrópukeppni
bikarhafa að liðin fjögur í undanúrslit-
um hafa ekki sigrað í þessari keppni —
Juventus hins vegar í UEFA-kepninni
fyrir þremur árum og Arsenal í sömu
keppni fyrir tíu árum. Valencia tvi-
vegis.
þegar hann opnaði nýja sportvöru-
verzlun ásamt fjölskyldu sinni á iaugar-
dag — Hummel-búðina að Ármúla 38,
á horni Ármúla og Selmúla.
Eigendur með Ólafi eru faðir hans
Jón Andrésson og bróðir Jón Pétur,
sem leikur nú með Dankersen í Vestur-
Þýzkalandi en kemur heim i sumar.
,,Við höfum haft umhoð fyrir
Hummel-vörur, sem eru þýzkar, frá
1975 og við höfum nú allan iþrótta-
fatnað fyrir iþróttafólk og almenning.
Með haustinu munum við bæta við
skíðum og skiðafatnaði og skautum.
Þá erum við með Remington-byssurnar
bandarisku og skotvörur, og smám
saman munum við selja vörur fyrir
hestasport.
Ég læt framleiða fyrir mig erlendis
undir Hummel-merkinu og hef náð þar
hagstæðum samningum, sem gerir það
að verkum að verð er tiltölulega lágt,”
sagði Ólafur H. ennfremur.
Ýmsir kunnir íþróttagarpar voru við-
staddir opnun Hummel-búðarinnar á
laugardag — einkum gamlir félagar
Ólafs í Val. Verzlunarsvæðið er rúm-
gott og vörum haganlega fyrirkomið.
heildverzlun Ólafs H. Jónssonar, sem
verið hefur til húsa að Laugavegi 178,
flytur nú slarfsemi sína í Ármúlann.
HM-meistarar
íUruguay
— Argentína og Holland
ekkisaman íriðli
Á föstudag var dregið í riðla i keppni
fyrrum heimsmeistara i knattspyrnu,
sem verður í Uruguay 20. desember til
10. janúar næstkomandi. Núverandi
heimsmelstarar, Argentina, og Holland,
sem varð í öðru sæti á HM 1978, eru
ekki í sama riðli. Holland kom í keppn-
ina í stað Englands.
í A-riðli eru Uruguay, Holland og
italia.
í B-riðli eru Argentína, Vestur-
Þýzkaland og Brasilía.
Fyrsti leikurinn verður 30. desember
milli Uruguay og Hollands en 1. janúar
leika Argentína og V-Þýzkaland. Sigur-
vegarar í riðlunum leika til úrslita 10.
janúar. Keppnin er háð í tilefni af 50 ára
afmæli fyrstu heimsmeistarakeppninn-
ar, sem háð var í Uruguay 1930 — og
heimamenn sigruðu þar.