Dagblaðið - 24.03.1980, Side 26

Dagblaðið - 24.03.1980, Side 26
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGÚR 24. MARZ 1980. 26 Fimmtán sænskir og ein fínnsk Það er mikil grafíkgróska í Norræna húsinu um þessar mundir. Sænska grafík er að finna i sýningar- sölum kjallarans, finnska grafik i anddyri og þeir sem kæra sig um enn meiri grafík geta fundið verk við sitt hæfi í listlánadeild bókasafnsins, sér nánast að kostnaðarlausu. Byrjum á þvi sem fyrirferðarmest er, sýningu grafíkhóps Listamanna- hópsins í Stokkhólmi. 125 verk eru til sýnis og sýnendur eru 15 talsins, þekktir listamenn á þessu sviði og það meira að segja hér á landi. Nokkrir þeirra hafa sýnt hér áður með öðrum hópum, t.d. Níumenn- ingunum sænsku sem töfruðu marga listáhugamenn upp úr skónum fyrir tæpum tveim árum, þar á meðal undirritaðan. En sá hópur sem nú sýnir var stofnaður fyrir tæpum tíu árum og þá aðallega til að starfrækja gallerí Listamannahússins við Smá- landsgötuna, að því er manni skilst. Sænsk litagleði Þetta fólk vinnur með öllum Rune Petterson — Landslag mögulegum aðferðum og sumum sem hingað til hafa verið taldar ómögu- legar, t.a.m. suðuristu (Hággblad), en einna inest ber á góðu gömlu tréstungunni og tréristunni, sem er út af fyrir sigmerkilegstaðreynd á tím- um alls konar maskinugrafíkur. Skýringuna er sennilega að finna í áhuga sýnenda flestra á stórri, litríkri grafík með expressjónísku yfirbragði en tréristan hentar einmitt vel til slíkrar tjáningar ef vel er á haldið. Ég man reyndar ekki eftir svona mikilli litagleði í sænskri grafík fyrr en á allra síðustu árum og gaman væri að heyra einhverjar skýringar á tilkomu hennar. Er þetta kröftugt andóf gegn gráum hversdagsleika í Svíaríki, afturhvarf til náttúrunnar og gamalla gilda eða eitthvð annað? Leikir með form Þessu litríki fylgir alténl talsverð rómantik — hrein náttúrudýrkun, Outi Heiskanen — Horfst í augu náttúrufyrirbæri með dulrænu ívafi og sterkar tilfinningar sem siðan draga á eftir sér tilfinningaseini, skreytikennd og formrænan leikara- Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON 4 nýjar prjónauppskriftir Komnar eru út fjórar nýjar uppskriftir úr hespulopa, plötulopa og golfgarni. Spyrjið um prjónauppskriftirnar í næstu garnbúð. UllarverksmiÓjan Gefjun Akureyri BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI27099 SJÓNVARPSBÚMN huómtæw Gerð 2000 Magnarl 25 vött Gerö 3050 Magnari 50 vött 249.500. - 299.500. - skap. Þegar á heildina er litið finnst mér þessi hópur standa Níumenning- unum langt að baki því þeir hafa til að bera ágætt litaskyn en temprað ineð strangri intellektúal uppbygg- ingu og rökfestu. Mesta skerpu og staðfestu finnst méreinmitt að finna í verkum þeirra meðlima þessa hóps sem annaðhvort sýna ineð Níu- menningunum eðarekjatil þeirra list- rænar ættir — Hamngren, Stenquist, Stenstad, & Haggblad. Hafi menn hins vegar áhuga á tæknilegum vísdómi eru inargir þessir grafíkmenn mikill fróðleiks- brunnur. Til dæmis er Rune Petter- son að gera hluti sem ég hef hvergi séð annars staðar og Lars Stenstad opnar nýjar leiðir í allar áttir með þvi að klippa sundur þrykk og skeyta samanáný. Leyndarmál En leiti áhorfandinn að frumleika, sérkennilegri og áleitinni lífssýn, samfara tæknilegri snilld, er réttara að labba sig upp í anddyri Norræna hússins þar sem er að finna verk eftir finnsku listakonuna Outi Heiskan- en. Hún er einfaldlega einhver sér- stæðasti grafiker sem ég hef rekist á í langan tima. Hún hefur að vísu sést hér áður á samsýningum og verk eftir hana eru í listlándeild Norræna húss- ins, en hingað til höfum við ekki fengi neina yfirsýn yfir grafík hennar. Heiskanen leitar hiklaust fanga i þjóðsögum, munnmælum, svo og alls kyns hjátrú og dulspeki til að segja það sem hún þarf að segja um samtimann, mannlíf og náttúru mannsins, i þátíð og nútið. AIIs kyns dýr leika stórt hlutverk í myndum hennar, stundum hafa þau á sér mennskt yfirbragð eða þá að þau eru af mannakyni til hálfs. Með skír- skotuin til einkennilegra og fornra trúarathafna er listakonan að ýja að ýmsu án þess þó að opinbera nokkra leyndardóma og kannski eru verk hennar sterkust fyrir það hve vel þau koina leyndardómum og gátum til skila, án þess að prédika eða draga á nokkurn hátt úr kynngi þeirra. Það er einnig lærdómur i tilraunum hennar með pappír af ýmsum gerðum en hún mun sérstaklega hafa lagt fyrir sig rannsóknir á möguleikum í pappirsvinnslu Alf Olsson — Par

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.