Dagblaðið - 06.04.1981, Side 32

Dagblaðið - 06.04.1981, Side 32
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1981. 32 47 norrænar konur sýna myndir og teikningar á Kjarvalsstöðum: Að kynnast öðrum myndlistarkonum og sjá hvað þær væru að gera —það var megintilgangur okkar, segir Bergl jót Ragnars, Snnur þeirra kvenna sem átti hugmyndina aðsýningunni Hvað eru norrænar konur að mála um þessar mundir? Það er hægt að sjá með því að leggja leið sína á Kjarvals- staði. A laugardaginn var opnuð þar sýning á verkum 47 kvenna frá Norðurlönd- um,. Þetta er farandsýning, styrkt af Norræna menn- ingarmálasjóðnum. Hún var sett upp í Málmey fyrir ári síðan og fór síðan til Finn- Æ' (\ * * | wm wutþ: 1 ! -tI Unni Löwe, fædd 1943 f Noregi, málar konu á veitingastað, út frá þessum Ijóðlinum eftir Marie Takvam: „Af þvi ég er kona. . . var munnur minn málaður eldrauður, það átti að breyta mér i rós. En undir sólarlag teygist úr skugga mfnum, unz hann verður eins og hárbeitt sverð. ” lands og Noregs og héðan fer hún til Árósa í Danmörku. Það voru tvær listakonur, sem áttu hugmyndina að þessu fyrirtæki, önnur íslenzk, Bergljót Ragnars, hin sænsk, Marianne Ágren. „Þetta tók langan tíma,” segir Bergljót, sem búið hefur í Kaupmannahöfn, en er að flytjast til íslands. Hún hefur keypt sér hús á Eyrar- bakka en vinnur í bili sem matráðskona við hraðfrystU hús á Patreksfirði. „Það var erfitt að sann- færa stjórnendur sjóða til norræns samstarfs um að sýn- ing áf þessu tagi ætti rétt á sér. En það tókst!” Markmiðið var að sýna ein- ungis verk eftir núlifandi listakonur. En þegar sýningin loks komst á laggirnar voru tvær þær elztu látnar, að vísu í hárri elli, Sigrid Schauman frá Finnlandi 102ja ára og Vera Nilsson frá Svíþjóð rúmlega níræð. „Hafa konur sérstakt tján- ingarform í myndlist?” spurðum við Bergljótu. „Það vefst mjög fyrir mér að svara því,” sagði hún. „En þær hafa aðra reynslu, lifa öðru- vísi lífi, og síðast en ekki sízt hafa það yfirleitt verið karl- menn sem dæmdu list þeirra og ýttu oft verkum þeirra til hliðar. Það sem hvatti okkur mest til að berjast fyrir þessari sýn- ingu var löngunin til að kynn- ast öðrum myndlistarkonum og fá tækifæri til að sjá hvað þærværu aðgera.” Margar góðar konur hafa lagt þessu fyrirtæki lið, þ.á.m. danski listfræðingur- inn Kirsten Andersen, sem kom hingað til að aðstoða við uppsetningu sýningarinnar, en er nú farin aftur. Sex íslenzkar listakonur taka þátt í sýningunni auk Bergljótar, þær Valgerður Bergsdóttir, Sigriður Björns- dóttir, Edda Jónsdóttir, Birgit Stáhl-Nyberg, fædd i Svíþjóð 1928, rifjar upp minningar frá lífs- baráttu verkafólks á kreppuárunum en myndir hennar eru jafnframt lof- söngur til manneskjunnar, og um gleði þess að vinna saman að nað- synjastörfum. Þessi mynd heitir Eini vinurinn og er eftir Pirkko Valo frá Finnlandi. Pirkko er fædd 1943, hefur verið afkastamikil og haldið margar sýningar. Eini færeyski þátttakandinn er F.ida Zachariassen, fædd 1912. Hún lærði i Kaupmannahöfn og i Englandi, en hefur sjaldan sýnt utan Færeyja. Hún hefur gefið út þrjár barnabækur með eigin myndum. V

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.