Dagblaðið - 06.04.1981, Blaðsíða 32
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1981.
32
47 norrænar konur sýna myndir og teikningar á Kjarvalsstöðum:
Að kynnast öðrum myndlistarkonum
og sjá hvað þær væru að gera
—það var megintilgangur okkar, segir Bergl jót Ragnars, Snnur þeirra kvenna sem átti hugmyndina
aðsýningunni
Hvað eru norrænar konur
að mála um þessar mundir?
Það er hægt að sjá með því að
leggja leið sína á Kjarvals-
staði. A laugardaginn var
opnuð þar sýning á verkum
47 kvenna frá Norðurlönd-
um,. Þetta er farandsýning,
styrkt af Norræna menn-
ingarmálasjóðnum. Hún var
sett upp í Málmey fyrir ári
síðan og fór síðan til Finn-
Æ' (\ * * |
wm wutþ: 1
! -tI
Unni Löwe, fædd 1943 f Noregi, málar konu á veitingastað, út frá þessum Ijóðlinum eftir Marie Takvam: „Af þvi ég er
kona. . . var munnur minn málaður eldrauður, það átti að breyta mér i rós. En undir sólarlag teygist úr skugga mfnum,
unz hann verður eins og hárbeitt sverð. ”
lands og Noregs og héðan fer
hún til Árósa í Danmörku.
Það voru tvær listakonur,
sem áttu hugmyndina að
þessu fyrirtæki, önnur
íslenzk, Bergljót Ragnars, hin
sænsk, Marianne Ágren.
„Þetta tók langan tíma,”
segir Bergljót, sem búið
hefur í Kaupmannahöfn, en
er að flytjast til íslands. Hún
hefur keypt sér hús á Eyrar-
bakka en vinnur í bili sem
matráðskona við hraðfrystU
hús á Patreksfirði.
„Það var erfitt að sann-
færa stjórnendur sjóða til
norræns samstarfs um að sýn-
ing áf þessu tagi ætti rétt á
sér. En það tókst!”
Markmiðið var að sýna ein-
ungis verk eftir núlifandi
listakonur. En þegar sýningin
loks komst á laggirnar voru
tvær þær elztu látnar, að vísu
í hárri elli, Sigrid Schauman
frá Finnlandi 102ja ára og
Vera Nilsson frá Svíþjóð
rúmlega níræð.
„Hafa konur sérstakt tján-
ingarform í myndlist?”
spurðum við Bergljótu. „Það
vefst mjög fyrir mér að svara
því,” sagði hún. „En þær
hafa aðra reynslu, lifa öðru-
vísi lífi, og síðast en ekki sízt
hafa það yfirleitt verið karl-
menn sem dæmdu list þeirra
og ýttu oft verkum þeirra til
hliðar.
Það sem hvatti okkur mest
til að berjast fyrir þessari sýn-
ingu var löngunin til að kynn-
ast öðrum myndlistarkonum
og fá tækifæri til að sjá hvað
þærværu aðgera.”
Margar góðar konur hafa
lagt þessu fyrirtæki lið,
þ.á.m. danski listfræðingur-
inn Kirsten Andersen, sem
kom hingað til að aðstoða við
uppsetningu sýningarinnar,
en er nú farin aftur.
Sex íslenzkar listakonur
taka þátt í sýningunni auk
Bergljótar, þær Valgerður
Bergsdóttir, Sigriður Björns-
dóttir, Edda Jónsdóttir,
Birgit Stáhl-Nyberg, fædd i Svíþjóð
1928, rifjar upp minningar frá lífs-
baráttu verkafólks á kreppuárunum
en myndir hennar eru jafnframt lof-
söngur til manneskjunnar, og um
gleði þess að vinna saman að nað-
synjastörfum.
Þessi mynd heitir Eini vinurinn og er eftir Pirkko Valo frá Finnlandi. Pirkko er
fædd 1943, hefur verið afkastamikil og haldið margar sýningar.
Eini færeyski þátttakandinn er F.ida Zachariassen, fædd 1912. Hún lærði i Kaupmannahöfn og i Englandi, en hefur
sjaldan sýnt utan Færeyja. Hún hefur gefið út þrjár barnabækur með eigin myndum.
V