Dagblaðið - 04.05.1981, Side 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1981.
Umræður um kannabisefni
einkennast af fordómum
DUUMQL
Hvað verður um barnavagnana?
Munu tröllln hlrða þá? A.m.k.
verður ekkl séð að þeir sem fara
niður f Tröllahelli að vestan komist
upp að austan.
—alkóhól skapar ekki síður en kannabis hættu á því að
menn ánetjist eiturlyfjum
G.M. skrifar:
Gerðar hafa verið kannanir hér-
lendis sem benda ótvírætt til þess að
verulegur fjöldi fólks noti kannabis
sem vímugjafa. Sjálfsagt er kannabis
hættulegt, en það er alkóhól einnig,
enda á ekki að deila um neyzluleyfi á
kannabis á þeim grundvelli heldur
skal hugleiða hvort rétt sé að gera
þann stóra hóp sem notar kannabis
að lögbrjótum og hvort fjárkúgun
ríkisins á hópi þessum sé réttlætan-
leg. Kannski réttlæta einhverjir að-
gerðir þær sem rikisvaldið fremur á
hendur kannabisneytendum sem
varnaraðgerðir gegn eiturlyfjum. En
kannanir sýna fram á að alkóhói
skapar ekki síður en kannabis hættu
á að menn ánetjist eiturlyfjum. Hins
vegar leiða ofsóknir lögreglu gegn
kannabisneytendum til taugaveiklun-
ar sem getur stuðlað að auknum
líkum á að fólk fari í eiturlyf og skaði
sjálft sig og eða umhverfi sitt.
Margar eru þær skoðanir sem
komið hafa fram í þeim umræðum
Baddir
sem undanfarið hafa farið fram hér-
lendis um lyfjamisnotkun og sjálfsagt
hafa flestir eitthvað til síns máls, þó
finnast mér fordómar hafa sett svip á
málin þegar kannabis ber á góma.
Efnið er líka frekar nýtt hér en
læknadóp, sem hefur verið misnotað
hér í tugi ára, er fallið inn í þjóðfé-
lagskerfið og ekkert tiltökumál þó
fólk éti pillur (kúlur) eins og brjóst-
sykur.
Alkóhól er einnig viðurkennt sem
OKAY en kannabis er bannað þó svo
að engin sönnun sé fyrir skaðsemi
þess. Þvingunaraðferðir til að koma i
veg fyrir kannabisneyzlu eru rangar
og virka ekki, það vita allir. Raun-
hæfara væri að lögreglan verði þeim
tíma sem i dag fer í að eltast við til-
tölulega meinlaust fólk til að einbeita
sér að vandamálum dagsins í dag,
sem eru eiturlyf. Stórt atriði er að
fólkið fáist til að hjálpa til i þeirri
baráttu. Til þess þarf að fræða lýðinn
heiðarlega um þessi mál. Það þýðir
ekki að ljúga lengur að ungu fólki um
þessi mál því það hefur smáfræðslu
og gerir sér grein fyrir að verði hamp-
ræktun t.d. leyfð hér munu tekjur
ríkisins af áfengisútsölu minnka og
ekki verður þá lengur hægt að treysta
á verðhækkanir áfengis til að fylla
upp í þau göt sem virðast fylgja ís-
lenzkum efnahagsáætlunum. Kanna-
bisneytendur eru vafalaust til í að
borga skatt af neyzlu sinni en yrðu
VÉLAVERKSTÆÐI
Egils Vilhjálmssonar H/F
SMIÐJUVEGI9 A - KÓP. - SÍMI44445'
• Endurbyggjum vélar
• Borum blokkir
• Plönum blokkir og head
• Málmfyllum sveifarása, tjakköxla
og aðra slitfleti m/ryðfriu harðstáli
• Rennum ventla og ventilsæti.
• Slípum sveifarása.
SÍMI
44445
FULLKOMIÐ MÓTOR- OG RENNIVERKSTÆÐI
STRAXIFYRSTA FLOKKI
Vinningar strax í 1. flokki eru:
íbúðavinningur á 250.000.-.
Peugeot 505 á 137.000.-.
8 bílavinningar á 30.000.-.
25 utanferðir á 10.000.-.
565 húsbúnaðarvinningar á
700 og 2.000.- krónur hver.
Sala á lausum miðum og
endurnýjun flokksmiða og
ársmiða stendur yfir.
Miði er möguleiki
FJÖLGUNOG
STÓRHÆKKUN
VINNINGA
Mánaðarverð miða er kr. 25.-,
ársmiða kr. 300.-.
Dregið verður í 1. flokki
þriðjudaginn 5. maí.
mjög þakklátir ef það gæti farið fram
án milligöngu lögreglu sem oft hefur
valdið brottrekstri úr vinnu og þvi,
sem alvarlegra er, menn þola misvel
innilokun í fangageymslum. Sumir
hafa innilokunartilfinningu og verða
kannski andþjóðfélagslega sinnaðir
af því að vera í gæzluvarðhaldi f sól-
arhring eða upp í 1—2 mániföi vegna
þess að þeir vilja komast hjá að
kjafta á vini sina sem fengju þá sekt
sem er ekki í neinu hlutfalli við glæp-
inn sem framinn var. í beinu fram-
haldi af framansögðu langar mig að
taka upp örfá orð úr frægu ávarpi
Jimmy Carter til Bandarikjaþings:
„Refsing fyrir neyzlu lyfs skyldi ekki
skaða einstaklinginn meira en neyzla
lyfsinssjálfs.”
TÚ þess að ríkið geti áfram troðið á
mannréttindum með löggjöfum við
stjórnarskrá íslands verður að sýna
fram á skaðsemi kannabis á öruggan
og sannanlegan hátt og það hefur
ekki tekizt enn þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir. Því er spurningin sem ráða-
menn okkar standa frammi fyrir:
„Er hægt að tryggja gróða vímuefna-
sölu ríkisins lengur með átroðslu á
valfrelsi manna?”
Þessi hefur ánetjazt eiturlyfjum,
hvaða leið sem hann hefur farið.
Varanleggatnagerð íKópavogi:
Enginn ferðast
þar fótgangandi
nema hundamir
—sem bannað er að haf a f Kópavogi
— hirða tröllin vagnana ásamt innihaldinu?
Miðaldra Kópavogsbúi skrifar:
Einn er sá hlutur sem vakið hefur
furðu mína upp á síðkastið (og sem
gamaú Kópavogsbúi þarf ég töluvert
til) og það er hið stórmerkilega fárán-
lega gatnakerfi (eða skortur á sama) í
þessum merkisbæ. Þgar ég flutti í
Kópavoginn á sínum tfma voru þar
engar gangstéttir og rauðamöl af
grófustu sort notuð sem ofaniburður.
Það voru að sjálfsögðu karlpungsvín
sem stóðu fyrir þeim aulahætti því á
þeim tíma lét enginn karlmaður sjá
sig fyrir aftan barnavagn eða kerru,
enda var ekki nokkur lífsins leið að
koma þeim farartækjum í gegnum
rauðamölina en þar sem þetta mæddi
ekki á karlpeningnum var þetta auð-
vitað allt í lagi. Nú er víða hafið það
sem maður gæti haldið að ætti að
vera varanleg gatnagerð en eftir því
sem ég bezt fæ séð miðast hún aðal-
lega við það að engir ferðist fótgang-
andi nema hundarnir sem bannað er
að hafa í Kópavogi. Því miður er ég
svo upptekin við aðkallandi mál, svo
sem að hafa ofan í mig að éta, að ég
get ekki tekizt á hendur rannsókn
á þessu makalausa fyrirbæri
sem gatnagerð í Kópavogi er, hins
vegar er ég með nokkrar spurningar á
lausu sem gaman væri að fá svör við,
ef þau kynnu að fyrirfinnast einhvers
staðarikerfinu:
1. Eru einhvers staðar til aðgengi-
legar teikningar af áætlunum fyrir
gatnagerð í Kópavogi í þeim
bæjarhlutum er byggðir mega
kallast?
2. Eru einhvers staðar til teikningar
að þeim varanlegu framkvæmd-
um sem þegar hafa verið gerðar?
Mig langar nefnilega svo afskap-
lega mikið til að komast að því hvort
breiddin (eða mjóddin) á „gangstétt-
inni” fyrir neðan Útvegsbankann sé
það sem koma skal vítt og breitt um
bæinn, því þá er ég 50 kg of þung og
30 cm of breið. Eða er þessi „gang-
stétt” kannski alls engin gangstétt
heldur blómabeð eða réttara sagt
drullubeð og fótgangendur eigi bara
að halda sig við akbrautina eins og
bílarnir. Þarna við Útvegsbankann
eru líka ein af hinum listrænu gatna-
mótum bæjarins sem lýsa sér í hríf-
andi bugðum og beygjum og sér-
kennilega fagurlöguðum eyjum. Það
er nú svona og svona fyrir ókunna að
átta sig á hvernig umferðinni skuli
háttað og fótfúnir og barnavagnaýt-
arar ættu ekkert að vera að þvælast
þarna. Að öllum líkindum eru þetta
samt mjög skemmtileg gatnamót og
enn skemmtilegra verður þetta eftir
þvi sem austar dregur i bænum.
Hnykkir og hlykkir, bogar og hálf-
mánar, allt finnst þetta í gatna-
kerfinu. Hugsið ykkur ef það væri
svo glóra í því lika.
Nú svo hefði ég gaman af að vita
hvort hæð gangstéttar frá götu við
Álfhólsveginn sé ákvörðuð af
einhverjum æðri máttarvöldum i
Kópavogi eða sé hreint slys, ég man
nefnilega ekki til að hafa séð þennan
hæðarmismun í öðrum stórborgum,
svo sem Reykjavík, London, París,
Kaupmannahöfn eða annars staðar
(já, ég hef komið út fyrir Kópavog-
inn).
Og meðan ég er á Álfhólsveginum,
sem annars er með skárri götum í
Kópavogi, langar mig til að spyrja
um brunahanann fyrir framan rauðu
álblokkina á mótum Skólatraðar og
Álfhólsvegar. Hæð brunahanans yfir
gangstétt er öðruvísi en sést i næsta
þorpi (Rvík) og fjarlægð frá girðingu
(vegg) líka með öðrum hætti en
tíðkanlegt er og álít ég þessi frávik frá
hinu hefðbundná sízt til bóta.
Og hvernig er það með Hamrá-
borgirnar, eru þær fullbyggðar? Eru
þær fuúásetnar? Ef ekki, þá verður
fjör að sjá kraðakið við verzlanirnar
þegar allt er komið því eins og er
virðist þetta vera að nálgast hættu-
mörkin þegar annatími er og allt er í
einni bendu, bílar og börn, fyrir
framan verzlanaröðina. En kannski
er engin slysahætta af þessu.
Og að síðustu fínnst mér dálítið
undarlegt að það skuli vera hægt að
komast með barnavagna + kerrur
eftir skábraut niður í Tröllahelli frá
biðskýlinu á hálsinum en ekki upp
hinum megin. Þarf þess kannski
ekki, hirða trölún vagnana ásamt
innihaldinu?
Um hreyfihamlaða þarf auðvitað
ekki að ræða, vegakerfi Kópavogs
sér tú þess að þeir séu ekki að
flækjast neitt á almannafæri.