Dagblaðið - 04.05.1981, Síða 3
I
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1981.
Enn um nýlist eða „geminga”
ÞESSISTÓRIHÓPURIÐJULEYS-
INGJA Æni AÐ SKODA ALVÖRULIST
—allir biðu með eftirvæntingu,... síðan leysir Kjarval vind og segir innilega
glaður: „Ah, þarna kom það”
Ein sem gerir greinarmun á „gern-
ingi” og gerningi skrifar:
Það hefur verið mikið rætt og
skrifað um þessa nútímalist sem kall-
ast nýlist eða „gerningar”, og alltaf
er það gaman að heyra í honum Jóni
Jónassyni. En til að hella svolítið
meira ofan í bakkafullan læk „gem-
ingsins”: í staðinn fyrir hraðsuðuket-
ii langar mig til að sjá allsberan ný-
listamann standa grafkyrran á miðju
gólfi þangað til það „sýður” upp úr
honumH Þúsund kall fyrir þann
„listamann” sem getur komið
þessum „gerningi” i framkvæmd og
það auðvitað fyrir framan sjónvarps-
myndavél!
Ég hef einnig heyrt um einn „gern-
ing” Kjarvals, þegar hann stóð hreyf-
ingarlaus í Pósthússtrætinu og horfði
upp til skýjanna. Bráðum var fjöldi
fólks kominn saman og stóð það
hljóðlaust í kringum hann. Allir
horfðu upp og biðu með eftirvænt-
ingu að Kjarval útskýrði málið, eins
og Ómar Ragnarsson. Allt í einu
heyrist þegar Kjarval leysir vindinn
og segir innilega glaður: „Ah, þarna
kom það”, og fór sínaleið.
En þegar ég er að hugleiða alla
þessa „gerninga” nútimafólks (eins
og þann sem var sýndur í vetur í
ítölsku kvikmyndinni þegar ungur
fjárhirðir úr ítalskri sveit meig á föð-
urlandið sitt úr vörubíl) þá sé ég allt í
einu Martein Lúther fyrir mér þegar
hann reis einn upp á móti páfanum
og negldi greinarnar sínar 95 upp á
kirkjuhurðina í Wittenberg. Eða
þegar ókunnugi maðurinn að nafni
Jesús Jósefsson stormaði inn í helgi-
dóm gyðinganna fyrir rúmum 2000
árum með svipu í hendi og rak alla þá
út sem höfðu gert musteri Guðs að
verzlunarhúsi. Er þetta ekki „gern-
ingur” allra tíma að standa einn á
móti klerkaveldinu í bænahúsi
þeirra? Mikið iangar mig að sjá þetta
meistaraverk meistarans endurtekið í
mammonkirkjum nútimans.
Hvar er sá „listamaður” sem þor-
ir?
P.S. En þegar verið er að taia um list
sem iist þá ætti þessi stóri hópur iðju-
leysingja að fara á safn Einars Jóns-
sonar eða skoða verk eftir Michel-
angelo, bara til að nefna tvo.
Við kynnum þér
Kenwood SigmaDrive,
turbo hlaðm Hi-Fi.
Pað sem er turbo fyrir bíla,
er Sigma Drive fynr Hi-Fi hljómburð.
Þetta er ný einstök Kenwood aðferð við að láta magnarann
annast eftirlit með, og stjóma tónblæ hátalaranna. Aðferðin er í
því fólgin, að á sama andartaki og magnarinn sendir frá sér
rafboð til hátalaranna, nemur Sigma Drive hvemig þau birtast í
þeim, gerir samanburð og knýr fram leiðréttingu til samræmis
við upprunalega gerð þeirra. Þess vegna tengjast
4 leiðarar í hvem hátalara. ©KENWOOD
T HIFI STEREO
DRIVE
NEW HI-SPEED
KENWOOD SIGMA DRIVE
er algjör stökkbreyting í gerð hljómtækja
FREQUENCY CHARACTERISTIC AT SPEAKER INPUT
SPEAKER
SIGNAL INPUT
SENSORCORD
FREOUENCY |H*|
Distortion characteristic between .
. and narmal drive.
Simplified block diagram of 51 Drive.
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
Spurning
dagsins
Hvernig lízt þór á
efnahagsaðgerðir
rfldsstjórnarinnar?
Sigurbergur Sverrisson vélstjóri: Mér
lízt ekkert á þær, ég sé ekki að þær geri
mikið gagn.
Heigi Baldvinsson verkamaður: Ég hef
nú lítið athugað þær. Er þetta ekki allt
sami grauturinn?
Páll Andreasson sjómaður: Ég hef litið
athugað þær. Ég á ekki von á miklu.
Ómar Asgeirsson nemi: Mér lízt bara
vel á þær, eins og annað sem þessi rikis-
stjórn hefurgert.
Sigriður Reimarsdóttir húsmóðir: Mér
lízt ekki ilia á þetta hjá þeim, ástandið
getur ekki versnað.
Guðmundur Fr. Guðmundsson lifeyris-
þegl: Mjög vel, ég styð þá alveg.