Dagblaðið - 04.05.1981, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAOUR 4. MAÍ .981.
Sá sem fær garðáhöldin alltaf
að láni er óvinsæll *•»*—*-•
Handsláttuvélar eru taldar henta
þeim garðeígendum sem eru með
venjulega litla heimilisgarða, enda
holl hreyfing fyrir fólk að trimma
svolítið með sláttuvélina sína.
Páll sýndi okkur mjðg hentuga
sprautubrúsa sem hentugir eru fyrir
garðeigendur til þess að þeir geti
sjálfir sprautað vægu eitri á trjágróð-
urinn ef lús sækir á hann. Brúsinn
kostar tæpar 160 kr.
Þá er eftir að nefna garðkönnur
sem til eru í mismunandi stærðum.
Þær stærstu, sem taka 10 litra, kosta
47 kr. en þær eru lika til minni og þá
einnig á ýmsu verði. Þær minnstu
kosta 18 kr.
Sá sem á þessi áhöld getur mjög
sennilega látið nágranna sína i friði.
Hins vegar má alltaf bæta við áhöld-
um. Framleiðendur garðáhalda kepp-
ast lika við að koma með ýmislegt
nýtt á markaðinn til þess að freista
fólks.
Mikið atriði er að hirða vel um
áhöldin sin. Langhentugast er að
koma fyrir hengi fyrir þau i verk-
færageymslunni eða bílskúrnum. Þá
er hægt að ganga að verkfærunum
þegar þarf að nota þau. Það getur
einnig verið hentugt að mála garð-
verkfærin sín í skærum litum, t.d.
hafa sköftin rauð. Þá er auðveldara
að koma auga á þau er þau Ieynast
innan um garðagróðurinn þegar hann
er í algleymingi. -A.Bj.
Byrjandi I garðræktinni þarf að eiga skóflu, stungugaffal og sitthvað af öðrum verkfærum. Hann þarf þó ekki að kaupa sér
öll verkfærin á fyrsta árinu. Alltaf má bæta við.
Garðeigendur sem eru sffellt að fá
lánuð áhöld eru ekki sérlega vinsælir.
Nú er einmitt sá timi þegar nauðsyn-
legt er að hafa garðáhöld við hönd-
ina. DB heimsótti Sölufélag garð-
yrkjumanna og spurði Pál Marteins-
son verzlunarstjóra um garðáhöld
sem á markaðinum eru og nauðsyn-
leg mega teljast fyrir byrjendur.
Fyrir byrjendur
Það er heilmikið safn af áhöldum
sem nauðsynleg geta talizt fyrir þá
sem eru að stiga fyrstu sporin í garð-
ræktinni, sagði Páll. Og síðan byrj-
aði upptalningin, verðið er það sem í
gildi var daginn sem við heimsóttum
Pál, eða 27. apríl: Skófla frá 92 kr.
upp í 125 kr., stungugaffall frá 121
kr. upp í 177 kr., garðhrífa frá 110
kr. upp í 120 kr., kantskeri um 90
kr., hjólbörur um 775 kr., ýmis smá-
verkfæri eins og plöntuskeiðar og lití-
ir gafflar eru til á verðbilinu 10—20
kr., arfakló kostaði um 30 kr., hand-
grasklippur voru til frá 75 kr. upp í
140 kr. og handklippur fyrir tré frá
60 upp í 75 kr. Garðslöngur úr plasti
kosta 4.30 metrinn og plaststatif sem
fest er á vegg og er mjög sniðugt,
kostar ekki nema 22 kr. Margir kjósa
hins vegar að nota heldur stóreflis
vagna undir garðslönguna. Þeir eru
mjög rúmfrekir í geymslu yfir vetrar-
timann og kosta þar að auki drjúgan
skUding. Dýrustu vagnamir kostuðu
á fjórða hundrað krónur. — Á mark-
aðinum er mikið úrval garðsláttuvéla
sem kosta aUt frá rúmum 1550 kr.
upp í 3600 kr. Vitaskuld eru dýrustu
vélarnar bensín- eða rafknúnar og
auðveldar í meðfömm.
Páll Marteinsson sýnir okkur þarna
úöa- eða sprautubrúsann sem er
hentugt fyrir garöeigendur að eiga.
Plasthengi fyrir garðslönguna. Þetta
er mjög einfalt og sniðugt og ekkert
fer fyrir þvf. Það kostar heldur ekki
nema 22 kr.
DB-myndir Bjarnleifur.
Þetta er það aisniðugasta i matjurta-
ræktinni: gulrætur í metratali!
Gulrótarfræjum er komið fyrir á
strimli sem lagður er i gulrótarbeðið
og moldinni rakað varlega yfir. Þá
vaxa gulræturnar upp með réttu milli-
bili! 10 kr. fyrir 6 metra af gulrótum!
DB-myndir Bjarnleifur.
Apple
þýðir viðskipti
segirframkvœmdastjórinn
... eins og Sir Freddie Laker
forsetiog LRKER
framkvæmdastjóri RIRWRYB
„Ég tel að framkvœmdastjórar þurfi
að hafa aðgangað nákvœmum upplýsingum
til þess að geta tekið réttar ákvaröanirfljótt í
harðri samkeppni. Mikill hluti þessara upplýsinga er
annaöhvortfjármálalegs- eða tölfræðilegs
eðlis og þar af leiðandi erAPPLE tölvan
kjörin fyrir vinnslu nauðsynlegra
upplýsinga sem hafa áhrifá afköst
fyrirtækis eöa
deildar. ”
Ef þú framkvæmdastýrir eða
stjórnar fyrirtæki eða deild þá
getur APPLE tölvan hjálpað þér.
APLLE þýðir... Þú hefur skjótan aðgang að mikil-
vægum upplýsingum. Þú getur leiðrétt þessar sömu
upplýsingar auðveldlega þannig að breytingar séu
skráðár strax og þú getur látið prenta út þær uppiýs-
ingar, sem þú vilt, hratt og örugglega, þannig veitir
APPLE tölvan þér forskot í samkeppni.
APPLE þýðir... Leysa vanda en ekki valda! Fram-
kvæmdastjórar geta haft gagn af APPLE-kerfinu sínu
aðeins nokkrum klukkustundum eftir að þeir fá tölvuna í
hendur. Þeir sem annast áætlanagerð komast i feitt með
aðstoð APPLE.
APPLE þýðir... Áreiðanleiki, þjónusta og eins árs
ábyrgð.
APPLE þýðir... Basic, Pascal, Fortran, CIs Cobol og
APPLE Pilot.
APPLE þýðir ... Þú getur notað VISI CALC forritið í
tengslum við APPLE PLOT forritið sem gerir mögulegt
að prenta allar tölvulegar upplýsingar í línuriti. Auk þess
má tengja DESK/TOP PLAN forritið við hin tvö fyrir
mjög stór áætlunarverkefni. VISI CALC er forrit sem er
geysiöflugt við áætlanagerð.
APPLE þýðir... Fjölbreytileiki — með marga nytsama
tengimöguleika i vísinda- og kennslunotkun.
APPLE þýðir... Deildur vandi er leystur vandi þegar þú
deilir honum með APPLE-umboðinu.
fcippkz
tölvudeild,
Skipholti 19.
Sími 29800.