Dagblaðið - 04.05.1981, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1981.
Sjómannadagsráö
Vestmannaeyja
óskar eftir tilboðum frá hljómsveit til að leika fyrir dansi í
samkomuhúsi Vestmannaeyja um sjómannadagshelgina,
bæði laugardag og sunnudag.
Ennfremur vantar tilboð frá diskóteki í litla sal.
Tilboðum sé skilað fyrir 15. maí til Sjómannadagsráðs
Vestmannaeyja, Pósthólf 500, Vestmannaeyjum.
PLEXIGLAS
Acryl-gler í háum gæðaflokki.
Eigum fyrirliggjandi Plexiglas í glæru og
ýmsum litum, t.d. undir skrifstofu-
stóla, á svalir, sólveggi og handrið, í ljósaskilti,
gróðurhús, vinnuvélar og fleira
— Skerum og beygjum.
AKRON H/F
Síðumúla 31
Sími 33706
1969 @
SAMHYGÐ
1981
12 AR
ÚTIFUNDUR
í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg
mánudaginn 4. maí nk. kl. 18.00.
VERTU MED
SAMHYGÐ
Félag sem vinnur að jafnvægi og þróun mannsins.
' ^ópAS^0
/ SIS í
S ////47//.
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir, sem verða
til sýnis þriðjudaginn 5. maí 1981, kl. 13—16 í
porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni 7:
Ford Fairmont, fólksbifreið............................árg. 1978
Mazda 929, fólksbifreið................................árg. 1977
Mercury Comct, fólksbifreið............................árg. 1976
Ford Cortina L-1600, fólksbifrcið......................árg. 1977
Ford Escort, fólksbifreið..............................árg. 1976
Peugeot 504 station, dísil........................árg. 1974
Ford Bronco............................................árg. 1974
Plymouth Trailduster torfærubifreið....................árg. 1975
Ford F-250 pick-up 4x4............................árg. 1973
Toyota Dyna pick-up....................................árg. 1972
Ford Econoline sendiferðabifreið................. árg. 1976
Chevy Vansendifcrðabifreið.............................árg. 1974
Chevrolet Suburban sendiferðabifrcið...................árg. 1973
Land Rover dísil.......................................árg. 1973
Land Rover bensín............................... árg. 1972
GAZ 69 torfærubifreið..................................árg. 1972
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að
viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að
hafna tilboðum, sem ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Á Lækjartorgi hins himneska f riðar verkalýðsdaginn 1. maí:
Myndir vantaði af
Jakanum og Stalín
—forréttindi Rauðrar verkalýðseiningar voru þau að fá að
halda útifund á róluvelli
Fulltrúaráðsgangan fór fyrst niður
Laugaveginn og var áberandi fjöl-
mennust. Mesta athygli vöktu hópar
Sjálfsbjargarmanna og vigreifra
fóstra sem fylktu liði undir kröfum
sínum. Ljóninu i Sædýrasafninu
hefði þótt vænna um aðrar kröfur
sem ég sá bornar i miðri göngu. Þar
var þess krafizt að safnið verði opnað
áný.
Að minnsta kosti tveir ráöherrar úr
byltingarráði Gunnars Thor. röltu
með verkalýðnum frá Hlemmi niður
á torg. Það voru þeir Hjörleifur og
Svavar. Svavar var í dökka síðfrakk-
anum sínum sem minnir mig alltaf á
frakkann sem Magnús Snædal gekk i
öll menntaskólaárin á Akureyri.
Frakkinn sá hét Karl Marx. Einu
sinni fann kona ein Marx hangandi í
snúrustaur í bakgarðinum við húsið
sitt að morgni dags. Hann og eig-
andinn höföu þá orðiö viöskila á
heimleið úr Sjallanum. En það er nú
allt önnur saga. Hins vegar mætti
Svavar athuga það að fá sér svarta
spanjólu á kollinn — alveg eins og
Snædal notaði í stfl við Karl Marx.
Sú múndering færi ráðherranum vel,
sér í lagi á verkalýðsdögum.
Helgi Guðmundsson trésmiður á
Akureyri flutti ræðu dagsins á Torg-
inu, æsingaræðu með blótsyrðum og
Fóstrur létu mikið að sér kveða I fulltrúaráðsgöngunni. Tvær úr forystu Fóstru-
félagsins halda á borðanum fremst í hópnum. Til vinstri er Arna Jónsdóttir sem
sat i samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavfkur fyrir hönd fóstra. Til hægri
er Kristfn Kvaran, formaður Fóstrufélagsins. DB-mynd: Einar.
Fulltrúaráðið kom vfða við f kröfugerð
dagsins. Meira að segja bjarndýr og
ljón Sædýrasafnsins gleymdust ekki.
DB-mynd: Bjarnleifur.
öðru kryddi. Svona eiga sýslumenn
að vera: kjaftforir og skemmtilegir.
Það dugði samt ekki aö eyða
miklum tima i að hlusta á Helga rífa
kjaft. Við Einar ljósmyndari höfðum
f mörg horn að lita og brugðum
okkur á tölt f átt að Miðbæjarskól-
anum. Þar útifundaði Rauöa verka-
lýðseiningin. Ljósmyndarinn fór þá
að ókyrrast verulega. Enda er sá
drengur undarlegt sambland af
Heimdellingi og Þingeyingi.
Birna sú eina Þórðardóttir bunaði
út úr sér visdómi yfir hausamótum
manna. Fleiri lögðu auðvitaö orð i
belg. Rauð verkalýðseining naut
þeirra forréttinda að halda sinn fund
á róluvelli. Þess vegna voru börn i
bezta skapi og róluöu og róluðu á
meðan heimsbyltingin brast á í ræðu-
stólnum fáeina metra í burtu. Krökk-
unum á Lækjartorgi drepleiddist hins
vegar. Þau heimtuðu ís á sama tíma
og foreldrar vildu híma matarlaus og
hlýða á guðspjall dagsins.
Baráttuganga launafólks endaöi
með útifundi á planinu sem er til
skiptis kennt við Hótel Island og
hallærisástand. Þar lukum við þegn-
skylduvinnu dagsins með þvi að
hlusta á Pétur þul, Pólverjann
Jakbúb Swiecicki og fleiri góða
menn. Jakúb sagði svo frá að eigin-
lega hefði baráttudagur verkalýðsins
ekki verið hátfðlegur haldinn í ein 35
ár! Því mun frjálsa verkalýðs-
hreyfmgin ábyggilega breyta eins og
öðru.
Þorvaldur örn kom alla leið frá
ísafirði til að syngja fyrir liðið á
Hallærisplaninu. Og svo stýrði hann
samsöng á Nallanum í lokin. En þá
var orðið fámennt á planinu og
undirtektir dræmar. Enda var sama
sagan þarna og á yfirleitt öllum úti-
fundum: Það tekst að gera þá svo
voðalega langdregna. -ARH.
öldungadeildin i Kreml stóð
bísperrt á fyrirmannasvölunum við
Rauða torgið föstudaginn l, maí og
horfði á hermenn og annað mannfólk
marséra fram hjá. Aldrei þessu vant
var engum skriðdrekum og öðrum
drápstækjum ekið um torgið á verka-
lýðsdeginum. Þau voru i fullri
brúkun í Afganistan.
Á Torgi hins himneska friðar í
Peking settu Hua og félagar upp
griðarstórar myndir af Lenín, Stalín
og fleiri grályndum köppum. Svo var
sunginn Nallinn og allir voru voöa
glaðir.
Á Lækjartorginu i Reykjavik,
þessu himneska torgi, voru engar
Stalínmyndir 1. maí. Og reyndar
engar myndir af Gvendi Jaka heldur.
Þó hefði verið full ástæða til því þá
voru rétt þrjú ár liðin síöan verka-
lýðsforystan baslaði við það í beinni
útsendingu frá Lækjartorgi að koma
samningunum f gildi.
Þeir sem þóttust þekkja bezt til
mála sögðu mér að færra fólk hefði
tekið þátt í kröfugöngum og fundum
1. maf f ár en oft áður. Ekki veit ég
það en hitt veit ég að nóg var samt af
fólkinu. Vinnulúinn verkalýður,
skólakrakkar með prófskrekk,
hippar, þingmenn, jafnvel ráðherrar,
pönkarar og Sigurjón P. sem stjórnar
borginni. Einn róna sá ég líka sem
slangraði á alla útifundina þrjá og
hélt á litlum rauðum fána í hendinni
með áletruöum stuðningsslagorðum
við fóstrubaráttuna. Stéttvís og
góður róni það.
Hildur Jónsdöttir kynnti dagskrána á
fundi Rauðrar verkalýðseiningar.
DB-mynd: Einar.
Pétur þulur Pétursson var kynnir á fundi Baráttugöngu launafólks á
Hallærisplaninu. Hér er hann að kynna næsta ræðumann, Jakúb Swiecicki sendi-
mann frá Solidarnosc, frjálsu verkalýðssamtökum Pólverja. DB-mynd: Einar.