Dagblaðið - 04.05.1981, Page 8
-8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Spennan vex stöðugt á Norður-írlandi:
MÓBIR SANBS
HVETURTIL
STILUNGAR
— Bobby Sands í dauðadái eftir 65 daga hungurverkf all
Rosaleen, móðir fangans og þing-
mannsins Bobby Sands, hefur hvatt
íbúa Norður-írlands til að sýna still-
ingu þegar sonur hennar deyr. Sands
er nú í dauðadái eftir að hafa verið í
hungurverkfalli í 65 daga. Er dauða-
stríð hans orðið mun lengra en
læknar höfðu reiknað með.
Móöir hans er nú stöðugt við rúm
hans og í gærkvöldi sagði hún við
fréttamenn aö sonur hennar væri aö
deyja.
„Ég vil hvetja fólk til aö sýna still-
ingu og hefja ekki bardaga sem
mundu hafa dauða og eyöileggingu i
för meðsér,” sagði hún.
Sands, sem er 27 ára gamall kaþól-
ikki, sagði áður en hann missti með-
Óttazt er að miklar óeirðir muni
brjótast út þegar Sands deyr.
vitund aö hann vildi ekki að læknar
reyndu að vekja hann úr dái nema
gengið hefði verið að kröfum hans
um að hann og félagar hans úr IRA I
brezkum fangelsum yrðu meðhöndl-
aðir sem pólitiskir fangar. Brezka
stjórnin hefur staðfastlega neitað að
verða við þeim kröfum.
Óttazt er aö miklar óeirðir muni
brjótast út á Norður-írlandi strax og
Sands lætur lifið. Brezki írlands-
málaráðherrann Humphrey Atkins
hefur aö undanförnu átt daglega
fundi meö foringjum tólf þúsund
manna lögregluliðs og ellefu þúsund
manna brezkra hersveita um hvernig
unnt reynist að bæla niður þær
óeirðir sem fullvíst er talið að verði.
Rosaleen, móðir IRA-skæruliðans Bobby Sands, hefur hvatt ibúa Norður-lrlands
til að sýna stillingu þegar sonur hennar lætur llfið.
Lech Walesa, leiðtogi óháðu verkalýðsfélaganna I Póllandi, hefur á undanförnum mánuðum fengið meiri umfjöllun I vestræn-
um fjölmiðlum en flestir ef ekki allir þjóðarleiðtogar heimsins. Eins og myndin hér að ofan sýnir hefur Walesa prýtt forsiður
fjölmargra þekktustu tímarita heimsins. Walesa hefur nú hvatt félaga sína i Einingu (Solidarnosc) til að láta af frekari
kröfum i bili en reyna I þess stað að tryggja það sem þegar hefur áunnizt i baráttu verkamanna fyrir auknu frelsi i Póllandi.
NATO-viðræður
hef jast í Róm
Talsmaður Bandaríkjastjórnar segir
fréttir um að vesturveldin ætli að hefja
afvopnunarviðræður við Sovétmenn á
þessu ári ótímabærar. Joseph Luns,
framkvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins, segir að utanríkisráðherrar
NATÓ-rikjanna muni ef til vill ákveða
tlma sllkra viðræðna á fundum sínum
sem verða haldnir i Róm I dag og á
morgun.
Fundur utanríkisráðherra NATÓ-
rikjanna er sá fyrsti sem haldinn er
siðan stjóm Reagans tók við völdum í
Bandaríkjunum. Búizt er við að Alex-
ander Haig, utanríkisráðherra Banda-
rikjanna, muni lýsa yfir vilja Banda-
ríkjanna til að hefja viðræður við
Japanir gagn-
rýna Reagan
Zenko Suzuki, forsætisráðherra Jap-
ans, hefur gagnrýnt rikisstjórn Ronalds
Reagan fyrir að hafa ekki ráðgazt við
stjórn Japans áður en kornsölubanninu
á Sovétrikin var aflétt i síðasta mánuði.
Sovétmenn um meðaldræg skotvopn.
Ýmsir embættismanna NATÓ héldu
því þó fram að ákvörðun um fyrstu af-
vopnunarviðræður Bandaríkjanna og
Sovétrikjanna yrði frestað þar til eftir
fund varnarmálaráðherra NÁTÓ í
Brússel i næstu viku.
Sierra Leone:
Gífurlegur
barnadauði
Meira en fjórðugnur þeirra
bama sem fæðast á Sierra Leone
deyja áður en þau ná tveggja ára.
aldri, að því er viðskiptaráöherra
landsins, Sama Banya, sagði í
gær.
Á ráðstefnu um íbúafjölda,
sem haldin var I Sierra Leone,
sagði hann að af hverjum 1000
börnum sem fæddust næðu
aöeins 635 fimm ára aldri.
Kína:
Njósnarí dæmdur í
15 ára fangelsi
Njósnari frá Formósu er handtekinn
var í Kanton í Kíria í janúarmánuði
síöastliðnum fyrir að hengja upp
áróður fjandsamlegan stjórn Kína
hefur nú verið dæmdur i fimmtán ára
fangelsi.
Að sögn dagblaðs i Kina haföi
njósnarinn, sem heitir Zeng Fuchum,
feröazt oft á milli Hong Kong og
Kanton og látið af hendi pólitiskar og
hernaðarlegar upplýsingar við leyni-
þjónustumenn frá Formósu i Hong
Kong.
Zeng, sem flúöi frá Kina til Hong
Kong árið 1961, var handtekinn er
hann ljósmyndaði áróðurinn sem hann
hafði hengt upp.
Iran:
Ahöfn „njósnaskips-
ins” íyfirheyrslu
írönsk yfirvöld yfirheyra nú nitján
manna áhöfn olíuskipsins sem fært var
til hafnar í Persaflóa I siðustu viku.
Áhöfn skipsins er að mestu leyti skipuð
Bretum og mun írani hafa grunað aö
skipinu hafi verið ætlað að njósna um
ferðir íranskra skipa.
franirnir munu upphaflega hafa talið
að skipið væri bandarískt, auk þess
sem þeim þótti ýmis tækjabúnaður þess
grunsamlegur.
Myndin hér að ofan lýsir vel þeim hörðu átökum sem urðu i Brixton-hverfinu 1 London fyrir skömmu. Talið er að óeirðirnar
þar séu þær verstu sem orðið hafa í Englandi frá lokum sfðari heimsstyrjaldarinnar. Tugir manna slösuðust í átökunum sem
urðu á milli lögreglunnar og Ibúa hverfisins.