Dagblaðið - 04.05.1981, Side 9
9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1981.
Erlent
Danir tapa 360 milljónum á viku vegna
verkfalls starfsmanna sláturhúsanna:
JÖRGENSEN ER
VANDIÁ HÖNDUM
Anker Jörgensen, forsætisráðherra
Danmerkur, hefur kallað ríkisstjórn
landsins saman til skyndifundar í dag
til að ræða hugsanlegar aðgerðir
stjórnarinnar til aö binda enda á verk-
fall starfsmanna i sláturhúsum lands-
ins. Verkfall þetta hefur þegar staðið í
tólf daga og stöðvað allan kjötútflutn-
ing frá Danmörku.
Starfsmenn sláturhúsanna höfnuðu
um helgina málamiðlunartillögu sem
fól í sér samkomulag til tveggja ára.
Að þvi er talsmaður danskra kjötút-
flytjenda segir þá tapa Danir um 360
milljón krónum á viku á verkfallinu
enda er kjöt 15 prósent af öllum út-
flutningi Dana.
Talið er að í danska þinginu sé meiri-
hluti fyrir því aö sett verði lög til að
binda enda á verkfallið en ekki er víst
að það leysi allan vanda þar sem sam-
band háskólamanna hefur boðað til
verkfalls síðar í vikunni og þar sem
dýralæknar eru innan vébanda þess og
þeir eru eftirlitsmenn I dönskum slátur-
húsum þá mundi starfsemi húsanna
stöðvast á nýjan leik með því verk-
falli. Danska forsætisráðherranum er
því talsverður vandi á höndum og vitað
er að hann er andvígur þvi að gripið sé
til lagasetningar af hálfu stjórnarinnar
fyrr en I algjört óefni er komið.
Anker Jörgensen, forsætisráðherra
Danmerkur.
Vopnabann sett
hjá Kínverjum
Lögreglan i Beijing hefur skipað
byssueigendum að láta vopn sín af
hendi innan fárra daga eða þola
stranga refsingu ella.
Tilkynning sem dagsett er 25. apríl
skipar sérhverjum þeim sem á ólöglegar
byssur að skila þeim innan tiu daga, í
þeim tilgangi að unnt sé að halda uppi
röð og reglu I landinu.
í tilkynningunni sagði að þeir sem
hlýddu þessari skipun yrðu ekki spurðir
neinna spurninga. I tilkynningunni,
sem meðal annars var birt við háskól-
ann í Beijing, var ungt fólk sérstaklega
hvatt til að láta vopn sin af hendi.
Loftrifflar eru sérstaklega vinsælir
meðal ungmenna i Kina sem nota þá til
að skjóta fugla og önnur smádýr. Ekki
var ljóst af auglýsingunni hvort hún
náði til slíkra vopna.
Hin nýju lög sem sett hafa verið og
tilkynningin endurspeglar eru sett til að
tryggja frið í landinu.
AFSLÁ TTUR * SKÁIA
HILLUSKILVEGGJUM
OG VEGGSAMSTÆÐUM OKKAR
Um leið og við
óskum viðskipta-
vinum okkar og
öðrum landsmönn-
um gleðilegs
sumars viljum við
vekja athygli á
þessum hagstæðu
skilmálum! 10%
sumarafsláttur.
10% SU M ARAFSLATTU R
Mjög hagstœöir greiðsluskilmálar.
Staögreiðsluafsláttur
Þessi einstöku kjörgilda í nokkra
daga, látið ekki happ úr hendi sleppa.
HÚSGÖGN
Skemmuvegi 4,
Kópavogi,
Sími73100
BIAÐÍÐ
fijáJst, úháð dagblað
/i
K
íran:
Yfir 20 fórust
íflóðum
Að minnsta kosti 22 menn létu lífið
og um 30 þorp hafa einangrazt I
flóðum í héraðinu Korassan í íran 1
kjölfar mikilla rigninga þar síðustu
daga. Þá var vitað um þrjá menn sem
farizt höfðu I Bandar Abbas af sömu
orsökum.
Olíusölubann
á S.-Af ríku
Utanríkismálanefnd norsku kirkj-
unnar hefur skorað á norsk yfirvöld að
fylgja eftir ollusölubanni til Suður-
Afriku. Nefndin leggur áherzlu á mikil-
vægi þess að halda efnahagstengslum
Noregs og Suður-Afriku I algjöru lág-
marki.
Nefndin bendir á að nýlegar skýrslur
sýndu að þrátt fyrir loforð oliufélaga
um að hlíta stefnu norskra stjómvalda
færi fram umtalsverð sala Norðursjáv-
arollu til Suður-Afríku gegnum milli-
liði og allt að 20% olíuinnflutnings
landsins væri flutt með norskum tank-
skipum.
Sú kúgun sem meirihluti íbúa I Suð-
ur-Afríku býr við getur leitt til blóðugr-
ar borgarastyrjaldar, segir nefndin enn-
fremur. Það er því nauðsynlegt aö
krefjast breytinga með friðsamlegum
hætti, þar til allir þjóðfélagshópar búa
við sömu mannréttindi.
©
kioikjct
œ
©
kuiik/et
KULUHUNA-
SKRÁR
KWIKSET kúluhúnaskrár eru
hannaóar með þaó í huga aö þola
mikla notkun. Húnarnir eru meö
sterkri húö til aö verjast nuddi og
tæringu úti. Einföld og sterk
samsetning er einkenni
KWIKSET-kúluhúnanna.
Einfaldir og stílhreinir kúluhúnar meó nokkrum læsingarmöguleikum.
Sterk og góö úti-
dyrahandföng meö
einfaldri eöa tvö-
faldri öryggislæs-
ingu.
Huröarauga er til
þæginda og örygg-
is fyrir þann, sem
vill geta séö hver
úti bíöur, án þess
að opna dyrnar.
SAMBANDIÐ
BYGGINGAVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 32
Þar sem fyllsta
öryggis er krafist er
nauðsyn aö hafa
tvöföldu
KWIKSET-skrána,
auk þeirrar venju-
legu aö viðbættum
1” stálbolta, sem
gengur úr efri
skránni.