Dagblaðið - 04.05.1981, Qupperneq 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1981.
Sorgin og skelfingin eru hlutar daglega lífsins ÍEI Salvador:
EG FANN PABBA, MOMMU OG
ÁTTA SYSTKINIMÍN MYRT
r
Utry mingarherf erð stjornarhersins í El Salvador á hendur íbúum þeirra héraða sem skæruliðar
eru taldirráða
„Ég hafði verið úti á akrinum að
vinna. Þegar ég kom heim fann ég
mömmu, pabba, fjóra bræður mina
og fjórar systur. Þau lágu i blóðugri
hrúgu. Ég hljóp þá til annars sveita-
bæjar, Zapotai. Þar kastaði flugvél
sprengjum á bæinn. Ég faldi mig þar
í fjórar nætur þangað til kona tók
mig meö sér tii Hondúras.”
Þetta er frásögn tiu ára gamals
drengs, Santiago Hernandez frá E1
Salvador. Þannig sagðist honum frá
óhugnanlegri lífsreynslu i samtali við
David Blundy, brezkan fréttamann
frá Sunday Times. Blundy segir sögu
hans þá óhugnanlegustu af fjölda
svipaðra vitnisburða flóttamanna frá
E1 Salvador sem komnir eni til Hond-
úras.
Ýmsir þessara vitnisburða voru
birtir í Sunday Times 26. april og
benda þeir til þess að stjórnarherinn i
E1 Salvador hafi farið hreina útrým-
ingarherferð á hendur íbúum þeirra
landsvæða þar sem skæruliðar vinstri
manna eru taldir ráða ríkjum.
Börn og gamalmenni eru skotin án
nokkurrar miskunnar að óttaslegnum
ættingjum ásjáandi. Sprengiflugvél-
um, vélbyssum, handsprengjum,
byssustingjum og hnífum er beitt við
morðin á bændafólkinu.
Af sjálfu sér leiðir að fólkið reynir
að flýja undan stjórnarhermönnun-
um. Hundruðum saman reynir það
að komast yfir ána á landamærum E1
Salvador og Hondúras. En þar er það
oftast stöðvað af stjórnarhermönn-
um í Hondúras og rekið til baka með
vopnavaldi, rekið út í opinn dauð-
Þcssir litlu drengir eru i hópi hinna „heppnu”, þeirra sem kómizt hafa yfir landamærin og dvelja nú I flóttamannabúðum i Hondúras.
Blundy ræddi við presta, hermenn,
lækna, flóttamenn og starfsmenn
hjálparstofnana. Vitnisburðirnir
voru á einn veg og lýsa skelfilegu
blóðbaði sem stjórnarherinn í E1
Salvador hefur staöið fyrir.
Blundy var sjálfur með frönskum
presti, tveimur læknum og manni frá
Hondúras þegar 500 manns reyndu
að komast yfir landamæri E1 Salva-
dor og Hondúras.
Leiðsögumenn hans voru mjög
taugaóstyrkir þvi þeim var vel kunn-
ugt um aö slíkir hópar flóttamanna
verða oft fyrir hatrömmum árásum
bæði úr lofti og á landi.
í þetta sinn voru flóttamennirnir
stöðvaðir af hermönnum frá
Hondúras. Fólkið var flest illa haldið
af næringarskorti og sjúkdómum
eftir margra vikna flótta. Engu að
siður skipuðu hermennirnir frá
Hondúras þvi með vopnavaldi að
snúa til baka.
Þá gekk annar læknanna fram á
móti hermönnunum, sem beindu
rifflum sínum að maga hans. Hann
sagði hermönnunum að hann mundi
skýra Sameinuðu þjóðunum frá því
sem gerzt hefði og að fulltrúi alþjóð-
legs fjölmiðils væri með í hópnum.
Þá fyrst leyföu hermennirnir fólkinu
að halda áfram för sinni.
Þær sögur sem flóttafólkið hafði
að segja lýsa ótrúlegri og takmarka-
lausri grimmd og mannvonzku.
Andrez Ramirez hafði þá sögu að
segja að hermenn komu inn í hús og
spurðu hvar skæruliðasveitirnar
héldu til. Þegar hann svaraði þvi til
að hann vissi það ekki myrtu þeir
konu hans með skoti í gegnum höf-
uðið. Honum tókst að flýja til bæjar-
ins Zapotal sem varð fyrir sprengju-
árásum rétt á eftir. Konur og börn
féllu í tugatali.
Guadelope Romero, 71 árs gamall,
sagði að hermenn heföu komið inn í
hús hans, stillt upp 26 ára gamalli
dóttur hans og fjórum barnabömum
undir ellefu ára aldri og skotið þau
öll.
Catelina Ramierezi, 21 árs, sagði
að um fjörutíu hermenn hefðu komið
heim til hennar og beðið mann henn-
ar um skilríki. Þeir leiddu hann siðan
út úr húsinu og skutu hann. Tengda-
móðir hennar kom þá gangandi heim
að húsinu og var umsvifalaust skotin.
Flora Fidaz, einnig 21 árs gömul,
sagði að móðir hennar, tvær systur
og sjö systkinabörn öll undir sjö ára
aldri hefðu verið myrt af stjórnarher-
mönnum. Systur hennar var nauðgað
og hún síðan skorin á háls. Börnin
voru pyntuð áður en þau voru
drepin. Sjálfri tókst henni að komast
undan. Er hún hljóp frá húsinu sá
hún einn hermannanna binda hand-
sprengju utan um magann á einu
barninu og síðan var það sprengt i
loft upp að foreldrunum viðstödd-
um.
Nú eru um 4.500 flóttamenn frá E1
Salvador 1 flóttamannabúðum i
Hondúras. Þeir búa í tjöldum og
skortir bæði læknislyf og mat. Er
nýju flóttamennirnir koma til búð-
anna f fylgd með blaðamanni Sunday
Times tók á móti þeim bandarískur
trúboði, Jimmy Swaggart, sem var
viðstaddur þar ásamt nokkrum
sjónvarpsmönnum. Hann stjórnaði
bænastund með flóttamönnunum og
sjónvarpsvélarnar mynduðu atburð-
inn.
Það eina sem flóttamennina skortir
ekki er kjarkur, sögðu starfsmenn
flóttamannabúöanna.
(The Sunday Times).
Göngum
ávallt vinstra;
megin
á móti akandi
umferð..
UX
FERÐAR
Gerviaugnasmiður
Þýzki gerviaugnasmiðurinn Miiller-Uri verður
við stofnunina dagana 25.-29. maí n.k. Tekið á
móti pöntunum í síma 26222 frá kl. 9—12 f.h.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Ofbeldinu í El Salvador virðast engin takmörk sett. Myndin sýnir móður sem hefur fundið syni sina og félaga þeirra myrta.
Sorgin og skelfingin er hluti af daglega líflnu í El Salvador.