Dagblaðið - 04.05.1981, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAÍ. 1981.
I
11
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Sigurlagiö í söngvakeppni sjónvarpsstöðva Evrópu:
Kossareru
hœttulegir
— hver koss styttir ævina um þrjár mínútur
Sjálfur kossinn er ekki hættulaus
lengur. Frönsk kona, Martine
Mourier, hefur síðustu þrjú ár rann-
sakað kossa á Tahiti. Niðurstöðumar
eru ekki uppörvandi fyrir fólk sem
ánægju hefur af eldheitum kossum
því Mourier segir að varakossar hafi
svipuð áhrif á líkamann og streita.
Kossarannsóknin er liður í
doktorsritgerð sem Martine Mourier
ver við læknaskóla í Bobigny í
nágrenni Parísar. Hún hefur komizt
að þvi að kossaflens örvar starfsemi
skjaldkirtilsins og glúkósaframleiðsla
líkamans eykst á sama tíma og fram-
leiðsla insúlíns stöðvast.
250 bakteríur skipta um munn við
koss en það versta í niðurstöðum
rannsóknarinnar er án efa það að
hver koss styttir ævina um þrjár
mínútur.
Martine Mourier, sem sjálf er hætt
að kyssa, hefur einnig rannsakað
aðra þætti í ástarlífi mannsins, svo
sem þann sið, sem tiðkast á Pólynes-
eyjunum i í Kyrrahafi, að naga augn-
hár hvort annars af með framtönnun-
um.
Varið ykkur, þið tvö! Það er hættulegt að kyssast!
Vinsœlt í Bretlandi
— eru Norömenn að gera grín að keppninni?
Sigurlagið f söngvakeppni sjónvarps-
stöðva i Evrópu, Making Your Mind
Up, hefur síðustu vikur rokið upp
brezka vinsældalistann og síðast er
fréttist var það í fyrsta sæti. Hins vegar
hefur lagið varla sézt á öðrum vin-
sældalistum. íslenzk diskótek bregða
því stöku sinnum á fóninn og virðast
viðbrögð gesta nokkuð jákvæð.
Sigurlagið er leikið af Bucks Fizz sem
er grúppa með sömu liðsuppstillingu og
sænska hljómsveitinn ABBA; tvær
konur og tveir karlar. Seðlarnir eru nú
teknir að streyma inn til þeirra.
Hljómsveit sem kallar sig Brown Ale
fór fram á að gera skopstælingu á
sigurlaginu og átti ágóðinn að renna til
líknarmála. Skoplagið átti að heita It’s
A Wind Up og einn af þeim sem ætlaði
að syngja þaðvarJohn Danter, einn af
höfundum Making Your Mind Up. Allt
var tilbúið en þegar til átti að taka voru
það tvö fyrirtæki sem áttu réttinn að
sigurlaginu og Brown Ale hafði aðeins
fengið samþykki annars þeirra.
Á meðan Bretar eru í sigurvímu velta
Norðmenn því fyrir sér hvort norskum
keppendum takist í þriðja sinn í röð að
verða í neðsta sæti með ekkert stig.
Ken Ervin, dálkahöfundur brezka
blaðsins Daily Mirror, veltir sama máli
fyrir sér og spyr hvort Norðmenn eigi
enga góða tónlistarmenn eða hvort þeir
séu bara að gera grin að keppninni.
FÓLK
Bucks Fizz — sigurvegararnir f söngvakeppninni.
RUCANOR
JOGGING
skórnir komnir
gKgl
HEIMSINS
FULLKOMNASTI
HAR
FRA
Mandeville
i—c3rsjc3(r3r-4
Ráðgjafi frá Mandeviiie of London verður þessa viku hér á
landi á eftirtöldum stöðum:
REYKJAVÍK: Rakarastofan Klapparstig, simi 12725, mánudag 4. maí, miðvikudag 6. mai, föstudag 8. maí.
AKUREYRI: Jón Eðvarðs, rakarastofa, Strandgötu 6, simi 24408, þriðjudag 5. maí.
KEFLAVÍK: Klippotek, Hafnargötu 25, sími 3428, fimmtudag 7. maí.
Stærðir30—46.
Verð aðeins kr. 86.-
Liturbiár.
Póstsendum.
Laugavegi
13
Sími 13508