Dagblaðið - 04.05.1981, Qupperneq 14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1981.
CHILTON - HA YNES - AUTOBOOKS
fyrir flestar gerðir bíla fást hjá stærri bóksölum
og hjá okkur.
Rafmagnsveitur ríkisins
óska eftir að ráða aðstoðarmann við gæzlu í
Stjórnstöð Byggðalínu að Rangárvöllum á Akur-
eyri.
Reynsla við rekstur rafveitukerfa æskileg.
Upplýsingar um starfið veita Ásgeir Jónsson
Akureyri síma: 96-25641 og rekstrarstjóri Raf-
magnsveitna ríkisins Reykjavík.
Umsóknin ásamt upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf sendist starfsmannastjóra.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118, Rvík.
Iþróttir
Iþróttir
Sigurður Sveinsson
áfram hjá Þrótti
—yf irlýsing þess ef nis gef in á uppskeruhátíð Þróttar
„Siguröur Sveinsson veröur áfram
hjá Þrótti næsta keppnistimabil,”
sagði Ólafur H. Jónsson, fyrirliði
liðsins, i heljarmiklu hófi sem haldið
var i tilefni góðrar uppskeru félagsins i
handknattleiknum i vetur. Var þessari
yfirlýsingu Ólafs fagnað geysilega —
lfkt og sjálfur Messias hefði ákveðið að
ganga í Þrótt.
Þar með er lokið margra vikna
„spekúleringum” um hvort Sigurður
yrði áfram hjá félaginu eða færi til
Dankersen, eins og lengi vel stóð til.
Það hefur vafalítið vegið þungt á
vogarskálunum að Þróttur vann sér
sæti í Evrópukeppni bikarhafa næsta
haust svo og sú ákvörðun Ólafs H. að
vera áfram hjá félaginu. Ekki er að efa
að þessi ákvörðun Sigurðar á eftir að
verða handknattleiksunnendum
fagnaðarefni. -SSv.
40% afsláttur
Þessi Westínghouse örbylgjuofn er tíl sölu
af sérstökum ástædum. Uppl. hjá auglþj.
DB. H—238.
ORÐSENDING
TIL FORELDRA
í þessari viku fá nemendur grunnskóla
í hendur bæklinginn
„Sumarstarf fvrir börn
og unglinga 1981“,
með uppíýsingum um framboð á
sumarstarfi neðangreindra stofnana.
Foreldrar eru hvattir til þess að skoða
bæklinginn vandlega með börnum sínum.
Iþróttaráð Reykjavíkur Tjarnargötu 20 s. 28544
Leikvallanefnd Reykjavíkur Skúlatúni 2 s. 18000
Skólagarðar Reykjavíkur Skúlatúni 2 s. 18000
Vinnuskóli Reykjavíkur Borgartúni 1 s. 18000
Æskulýðsráð Reykjavíkur Fríkirkjuvegi 11 s. 15937
AZ '67 MALAÐIFEYEN00RD
—og tryggði sér hollenzka meistaratitilinn
„Við munum að sjálfsögðu fagna
þessum sigri okkar en hugurinn er þó
við leikina gegn Ipswich,” sagði
George Kessier, þjálfari AZ ’67, i við-
tali við Reuter eftir að menn hans
höfðu tekið Feyenoord, eina iiðið sem
átti stæröfræðilega möguleika á að ná
þeim að stigum, heldur betur í karp-
húsið i Rotterdam og sigrað 5—1.
Feyenoord-liðið var yfirspilað frá
Magdeburg
sigurvegarí
Magdeburg frá A-Þýzkalandi varð i
síðustu viku Evrópumeistari i hand-
knattleik er liöið sigraði Slovan Lublj-
ana frá Júgóslaviu 29—18 i siöari
úrslitaleik liðanna sem fram fór í
Magdeburg. Lubljana vann fyrri leik-
inn 25—23 þannig að samanlagður
sigur Magdeburg er sannfærandi.
fyrstu mínútu til hinnar síðustu og
alger upplausn viröist nú ríkja innan
þess. Feyenoord er nú dottið niður í 3.
sætið en ætti engu að síður að vera
öruggt með UEFA-sæti þó svo bæði
Ajax og PSV Eindhoven séu á
hælunum á þvi.
Úrslitin um helgina urðu sem hér
segir:
Deventer — Excelsior 4—2
Roda — PSV Eindhoven 2—3
Wageningen — NAC Breda 2—2
Maasjricht — NEC Nijmegen 0—0
Utrecht — Groningen 3—0
Willem II — Den Haag 2—1
Feyenoord—AZ '67 1—5
Twente — PEC Zwolle 2—0
Ajax — Sparta 2—1
Staðanátoppnum:
AZ’67 28 24 3 1 84—22 51
Utrecht 29 16 8 5 59—28 40
Feyenoord 29 16 7 6 59—36 39
Ajax 28 17 4 7 70—47 38
PSV Eindhoven 29 15 8 6 52—25 38
Naumt hjá
Danskinum
Danir unnu nauman sigur á Luxem-
borg i 5. riðli undankeppni HM i
Luxemborg á föstudag. Lokatölur 2—1
eftir að heimaliðið hafði náð forystu
með marki Alain Niirnberg á 37. mín.
Mark hans var jafnframt fyrsta mark
Luxemborgara i keppninni.
Perben Elkjær Larsen jafnaði
metin strax á 2. mínútu síðari hálfleiks-
ins og á 62. mínútu skoraði Frank
Arnesen sigurmarkið. Staðan í 5. riðli
er nú þannig:
Ítalía 4 4 0 0 8—0 8
Júgóslavía 4 3 0 1 12—4 6
Grikkland 5 3 0 2 6—7 6
Danmörk 5 2 0 3 6—5 4
Luxemborg 6 0 0 6 1—17 0
Endasprettur Mikko Hame
færði A-sveit ÍR sigurinn
— hörkukeppni í Kambaboðhlaupinu ígær
A-sveit ÍR sigraði i Kambaboðhlaup-
inu sem fram fór i gær i hálf-hryssings-
legu veðri. Framan af var það þó sveit
Ármanns sem leiddi og eftir 1. sprett
hafði hún minútu forskot á sveit FH og
90 sek. á A-sveit ÍR.
Eftir annan sprettinn hafði Ármann
enn mínútu forskot á næstu sveit, sem
var nú B-sveit ÍR. Eftir þriðja sprettinn
var hins vegar A-sveitin orðin fyrst með
20sek. forskotáÁrmenninga,semsvo
hafði aðrar 20 sek. i forskot á B-sveit
ÍR.
Mikko Háme, sem hljóp lokasprett-
inn fyrir A-sveitina, náði frábærum
tíma, 30,38 sek. og var það bezti tími
hlaupsins. Ágúst Ásgeirsson hljóp
lokasprettinn fyrir B-sveitina og
tryggöi henni annað sætið með góðu
hlaupi. A-sveit ÍR, skipuð þeim Guð-
mundi Ólafssyni, Úlfari Andréssyni,
Gunnari Páli Jóakimssyni og Mikko
Háme, varð því fyrst á 2:16,41 klst. B-
sveitin, skipuð þeim Sigurjóni Andrés-
syni, Stefáni Friðgeirssyni, Jóhanni
Heiðar og Ágústi Ásgeirssyni, varð í 2.
sæti á 2:18.50. Ármenningar höfnuðu í
Líkur Pólverja á að komast i úrslita-
keppni HM á Spáni á næsta ári jukust
talsvert er þeir unnu aðalkeppinauta
sina 1 7. riðlinum, A-Þjóðverja, 1—0 i
Chorzow á iaugardag. Eina mark
leiksins skoraði Buncol á 55. minútu og
var það i meira lagi glæsilegt.
Eftir hornspyrnu nikkaði Lato, sem
lék sinn 94. landsleik, fallega til
Buncol, sem þrumaði knettinum í netið
við taumlausan fögnuð hinna 80.000
3. sætinu á 2:22,17, sameiginleg sveit
FH og Breiðabliks varð 4. á 2:25,19 og
C-sveit ÍR varð siðust á 2:29,37 klst.
áhorfenda, sem veifuðu pólskum
fánum. Margir mættu til leiks með
einkennisfána Samstöðu og veifuðu
þeim ákaft. Yfirburðir Pólverjanna
voru miklir og jafntefli í A-Þýzkalandi
tryggir þeim sæti á Spáni. Staðaní7.
riðlinum er nú þannig:
Pólland 2 2 0 0 3—0 4
A-Þýzkaland 2 10 1 2—2 2
Malta 2 0 0 2 1—4 0
-SSv.
Mikilvægur sigur
hjá Pólverjum