Dagblaðið - 04.05.1981, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 4. MAÍ 1981.
iþróttir
L# 1
I
Kristjana Aradóttlr hampar hér verð-
launum sínum. DB-mynd S.
KRISTJANA
VAR KOSIN
„SU BEZTA”
HSÍ hélt uppskeruhátið sina i Sig túni
sl. flmmtudagskvöld og voru þar
saman komnir flestir handknattleiks-
menn 1. deildarinnar — bœði hjá körl-
um og konum.
Leikmenn Víkings og Þróttar tóku
viö verðlaunum sínum frá sambandinu,
svo og leikmenn KA sem sigruðu HK í
úrslitaleik 2. deildar. Þá var og útnefnd
„handknattleikskona ársins” og var
það Kristjana Aradóttir úr FH sem
þann heiður hlaut og var henni innilega
fagnað. Hún hefur i vetur ekki verið
eins áberandi og oft áður i markaskor-
un en var engu að síður driffjöðrin í
spili liðsins. -SSv.
Gremio vann
íBrasilíu
Gremio varð i gær brasiliskur meist-
ari i knattspyrnu er liðið sigraði Sao
Paulo 1—0 i siðari úrsiitaleik liðanna.
Gremio vann einnig fyrri leikinn, 2— 1.
KA hafði yfir-
burði gegn HK
— í úrslitaleik 2. deildar
„Þetta var einfaldlega unnið fyrir-
fram hjá strákunum en þelr hafa gott
af þvi að fá svona skell i andlitið,”
sagði Þorsteinn Jóhannsson, þjálfari
HK, eftir að hans menn höfðu fengið
10 marka tap i hauslnn gegn KA i úr-
slitalelk 2. deildarinnar á fimmtudags-
kvöld. KA sigraðl 22—12 og var ekki
heil brú i lelk HK-liðsins. Tapið skiptlr
þó f sjálfu sér engu máli þvi bæði liðin
fara upp f 1. delldina. -SSv.
Blikamir
ósigrandi
Breiðablik hélt sigurgöngu sinni
áfram i gær er liðið lagði IBV að velli,
3—0, i Kópavogi. Leikurinn var liður i
bæjakeppni á milli Kópavogs og Vest-
mannaeyja og hélt viðmælandi DB að
leikurinn f gær hefði verið siðari leikur
liðanna úr keppninni i fyrra.
Ætlunin sé svo að liðin mætist
tvisvar f sumar til að leika um titilinn i
ár. Hvað um það, sigur Blikanna var
öruggur og þeir eiga eftir að verða
sterkir i sumar ef marka má vorleikina.
Hákon Gunnarsson kom þeim á
bragðið i gær og siðan bættu þeir
Valdimar Valdimarsson (víti) og Jón
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþrótt
LEVERKUSEN SENDIDANK-
ERSEN NIÐUR12. DEILD
—Sigraði 16-15 í leik liðanna í Bundeslígunni á laugardag.
Hans Krankl ísviðsljósinu íÞýzkalandi
„Þetta var hörku-tvisýnn lelkur og
úrslitin réðust ekld fyrr en á siðustu
minútunni. Bayer Leverkusen sigraði
Dankersen 16—15 og eftir þessl úrslit
má segja að Dankersen sé failið i aðra
deild,” sagði Viggó Sigurðsson, þegar
DB ræddl við hann f gær. Við sigurlnn
slapp Leverkusen-liðið endanlega úr
fallhættu.
Leikurinn var mjög jafn, 1—1, 2—2
en sfðan komst Dankersen í 6—3.
Bayer Leverkusen jafnaði í 6—6 og
komst siðan yfir í hálfleik 9—8. Jafnt
var á öllum tölum i síðari hálfleik upp í
15—15. Þegar um mínúta var eftir fékk'
Bayer Leverkusen vítakast en Nie-
meyer, markvörður Dankersen og
þýzka landsliðsins,''gerði sér lítið fyrir
og varði. Leikmenn Dankersen fengu
knöttinn en misstu hann og Lommel,
hornamaður, skoraði sigurmark
Dankersen. Rúmar 40 sek. eftir og
einum leikmanni Dankersen vikið af
velli. Það þoldi markvörður liðsins
ekki og var einnig vikið af velli. Fjórir
útileikmenn Dankersen áttu ekki
möguleika að jafna þær sekúndur sem
eftirlifðu.
Viggó Sigurðsson skoraði þrjú af
mörkum Bayer Leverkusen en hefur oft
leikið betur í vetur. Sigurður Gunnars-
son lék ekki með Leverkusen en Axel
Axelsson lék með Dankersen. Þriðji
leikur hans með liðinu i vor. Hann var
á miðjunni i sóknarieiknum. Ekki hans
Krístbjörn gaf kost á
sér á elleftu stundu!
- og var síðan kjörinn formaður KKÍ á þingi sambandsins
Kristjbjörn Albertsson er hinn nýi
formaður KKÍ og tekur við for-
mennsku af Stefáni Ingólfssynl sem
gegnt hefur þeim starfa sl. 3 ár. Það var
ekki fyrr en á elleftu stundu að Krist-
björn gaf kost á sér f formannsstarfið
og þá eftir að lagt hafði verið hart að
honum.
Loks er hann fékkst til að gefa kost á
sér varð aö gera 10 minúína hlé áður en
hægt var að ganga til kosninga. Annars
var ekki margt markvert sem gerðist á
þingi KKÍ um helgina og litlar breyting-
arádöfinni.
Það sem e.t.v. vekur helzt athygli er
að KKÍ skilaði hagnaði af rekstri sinum
Aðalfundur
Aðalfundur handknattleiksdeildar
Aftureldingar f Mosfellssveit verður
haldinn þann 14. mai nk. kl. 20 i Brúar-
landi. Á dagskrá eru að vanda venjuleg
aðalfundarstörf.
þriðja árið i röð. Velta sambandsins
var á siðasta fjárhagsári 58,8 milljónir
gkróna og hagnaður varð 3,1 milljón
gkróna. Velta landsliðsins, sem hefur
næsta sjálfstæðan fjárhag, var 33 millj-
ónir gkróna og varð tekjuafgangur 0,5
milljón gkróna. Sú tala gæti þó hækk-
að nokkuð fái KKÍ ferðastyrk vegna
fararinnar til Sviss. Verði sú upphæð i
líkingu við styrk HSÍ vegna Frakk-
landsfararinnar frægu ætti KKÍ að geta
átt von á 3—3,5 milljónum gkróna í
ferðastyrk frá ISl.
Ákveðið var að stofna öldungadeild
á næsta keppnistimabili og mun það
vera að frumkvæði Guöna Kolbeins-
sonar, sem verður þó ekki gjaldgengur f
hana fyrr en á næsta ári. Aldurstak-
markið í þann flokk er 36 ár. Hefur
verið rætt um að bikar sá er veittur
verður sigurvegurunum nefnist „Læks-
bikarinn”.
Þingið samþykkti tilmæli til stjórnar
KKÍ að samþykkja tillögur landsliðs-
nefndar en þær eru í þá átt að einn
maður stjórni landsliðum sambandsins
og gegni um leið hlutverki útbreiðslu-
og fræðslufulltrúa. Þá var samþykktur
10.000 nýkróna styrkur til styrktar al-
þjóðlegu körfuknattleiksmóti fyrir
konur, sem ætlunin er að halda sér-
lendis. Ennfremur var samþykkt að
lengja keppnistimabilið um 2 vikur, en
að öðru leyti var fátt um breytingar.
Aðeins einn stjórnarmeðlimur, Stef-
án Ingólfsson formaður, gekk úr
stjóminni og i hans stað kemur Gunnar
Valgeirsson úr Keflavfk.
-SSv.
rétta staða og Axel náði sér ekki á strik
f leiknum.
Milbertshofen og Heppenheim eru
fallin í 2. deild og staðan hjá Danker-
sen er mjög ijót. Tvær umferðir eftir.
Liðið hefur 17 stig en Dietzenback 20
stig. Dietzenback á eftir að leika við
Heppenheim á heimavelli en Dankersen
við Göppingen á útivelli m.a. Staða
Dankersen er þvi vonlaus að þvi er
virðist. Bayer Leverkusen og Híitten-
berg hafa 23 stig. Grosswallstadt
stefnir á Þýzkalandsmeistaratitilinn
fjórða árið i röð. Hefur fjögurra stiga
forustu og þarf þvi aðeins eitt stig úr
tveimur síðustu leikjunum.
Eins og áður segir lék Sigurður
Gunnarsson ekki með Bayer Leverkusen
gegn Dankersen. Hvort hann leikur
með liðinu næsta keppnistímabil er enn
óvist. Þeir hjá Bayer Leverkusen vilja
hafa hann áfram en Sigurður hefur enn
ekki tekið ákvörðun um hvort hann
verður áfram. Er að velta málinu fyrir
sér.
„Mikið er nú skrifað í þýzk blöð um
austurriska knattspyrnumanninn Hans
Krankl. Þrjú liö hér f Þýzkalandi eru á
höttunum eftir honum, Köln, Bayern
Mtlnchen og Hamburger SV. Síðast-
talda liðið hefur einnig mikinn hug á
þvi að næla sér í litla hollenzka leik-
manninn Simon Tamahata frá
Standard Liege. Fyrir um 10 dögum
skrifuðu Kölnar-blöðin líka um Ásgeir
Sigurvinsson en fannst hann dýr og
Ásgeir var ekkert á dagskrá hjá þeim í
síðustu viku,” sagði Viggó Sigurðsson.
- hsim.
TEITUR SK0RAR
ENN FYRIR ÖSTER
„Þetta var nú hálf-slakur leikur hjá
okkur, en við unnum 2—0 gegn Brage
B-keppnin íkörfuknattleik:
Svíar sigruðu Portií-
li í Izmir 70-56
hér i Váxjö i kvöld,” sagði Teltur Þórð-
arson er við spjölluðum vlð hann i gær-
kvöld. Með sigrinum komst öster i
toppsætið i Allsvenskan og er nú eina
liðið sem hefur „fullt hús” eftir þrjár
umferðir. Sannkallaðir meistaratakt-
—og Ungverjar rétt mörðu Englendinga
Undankeppni B-keppninnar i körfu-
knattleik hófst i Ismir og náiægum
borgum i Tyrklandi i gær. Tólf lið leika
þar i tveimur riðlum um réttinn til að
lelka i úrslitum Evrópukeppninnar,
sem verður i Tékkóslóvakiu f lok maf.
Fjögur efstu liðin i B-keppninni komast
i keppnina f Tékkóslóvakiu en þar
keppa 12 beztu körfuknattleikslandslið
Evrópu.
Sex lið eru 1 hvorum riðli í keppninni
I Tyrklandi. Fjögur efstu liðin í hvorum
riðli keppa svo tii úrslita um fjögur
efstu sætin i Istanbul um næstu helgi.
Úrslit i leikjum í gær urðu þau, að
Ungverjaland sigraði England 84-83 í
mjög tvisýnum og jöfnum leik. 44—44
í hálfleik. Flest stig Ungverja skoraði
Horvath eöa 22. David Lloyd skoraði
flest stig Englands, 20.
Þá sigraði Sviþjóð Portúgal 70—56
eftir 37—32 i hálfleik fyrir Svía. Tacen
skoraði flest stig Svía eða 17. Terins 13,
Yttergren og Skyttevall 9 hvor. Hjá
Portúgal var Pinheiro stigahæstur með
19 stig. Baganha næstur meö 10.
Grikkland sigraði Finnland 101—86
eftir að staðan í hálfleik var 50—46
Einarsson viö mörkum.
-SSv.
fyrir Grikki. Stigahæstur þeirra var
Georgalis með 38 stig. Kokolakis var
næstur með 17. Hjá Finnum var Sar-
kalahti stigahæstur með 20 stig, Saare-
lainen 13, Rauramo 12 og Saaristo 10.
Holland vann Búlgariu 86—65 eftir
39—30 í hálfleik. Cramer skoraði 17
stig fyrir Holland, Arabadjinski 19
fyrir Búlgaríu.
Ungverjaland, England, Grikkland
og Finnland eru í riðli sem leikinn er í
Istambul og grennd en Sviþjóð, Portú-
gal, Holland og Búlgaría í riðli f Ismir.
-hsim.
„Lcikurinn var í jafnvægi fyrstu 20
mínúturnar en þá náðum við
undirtökunum og áttum megnið af
leiknum eftir það,” sagði Teitur, sem
skoraði fyrra mark öster i gær. Jan
Mattson skoraði það síðara. Teitur
hefur nú gert hátt i 40 mörk fyrir Öster
í Allsvenskan i 81 leik — ekki amalegt
meðaltal það!
Gautaborg tapaði enn eina eina ferð-
ina — nú 0—1 heima fyrir Djurgaard-
en. örgryte vann 3—0 en Teitur mundi
ekki í svipinn gegn hverjum var leikið.
AIK á ekki að leika fyrr en í kvöld. Þau
úrslit sem annars komu mest á óvart
var 4—4 jafntefli Malmö og Hammar-
by í Malmö.
-SSv.
MAN. UTD. RAK DAVE S
—þrátt fyrir sjö sigurleiki í röð. Sorg meðal leikmanr
„Vlð, leikmenn Man. Utd., erum
hrygglr og hissa (sad and surprised),”
sagði Gordon McQueen, miðvörður
Man. Utd., i viðtali f BBC á fimmtudag
þegar þær fréttir bárust frá höfuð-
stöðvum Manchester-félagsins að það
hefði rekið framkvæmdastjóra sinn,
Dave Sexton, og aðstoðarmann hans,
Tommy Cavanaugh.
Stjórn Man. Utd. tók þá ákvörðun á
fundi á miðvikudagskvöld að þeir Sext-
on og Cavanaugh hættu störfum hjá
félaginu eftir heldur slakt leiktímabil
að mati stjómarmanna. Formaður fé-
lagsins, Martin Edwards, tilkynnti fjöl-
miðlum þessa ákvörðun og varð þegar
talsvert fjaðrafok í enskum blöðum.
Edwards sagði: „Þaö er álit stjórnar-
manna að þrátt fyrir árangur í undan-
fömum leikjum hafi liðið ekki náð að
sýna þann háa standard i skemmtilegri
knattspyrnu sem krefjast verður af
Manchester United.”
Man. Utd. sigraði í sjö sfðustu leikj-
um sinum á leiktlmabilinu og Dave
Sexton var framan af leiktímabilinu
mjög óheppinn með leikmenn sina.
Margir lykilmenn áttu við meiðsli eða
veikindi að stríða. Aðeins tveir, Steve
Coppell og Arthur Albiston, léku alla
42 deildaleikina. Leikmenn eins og Ray
Wilkins, Gordon McQueen, Martin
Buchan misstu úr fjölmarga leiki og
þaö skapaði mikinn hringlanda í iiðs-
skipun.
„Við tókum þá ákvörðun að láta
Sexton hætta vegna hundraða bréfa,
sem okkur bárust frá aðdáendum fé-
lagsins, þar sem þeir létu í ljós óánægju
með þá knattspyrnu, sem United-liðið
hefur leikið,” sagði Martin Edwards
ennfremur.
Dave Sexton hefur um langt árabil
verið í hópi kunnustu framkvæmda-
stjóra Englands i knattspyrnunni.
Undir hans stjóm varð Chelsea bikar-
meistari 1970 og QPR komst i annað
sæti ( 1. deild 1976, einnig undir stjórn
Sextons. Siðan fór hann til Man. Utd.
1977 og 1978 komst Man. Utd. 1 úrslit
ensku bikarkeppninnar. Tapaði fyrir
Arsenal 1 úrslitum. f fyrra varð Man.
Utd. í öðru sæti i 1. deild og verður i ár
. sennilega i áttunda sæti. Það er þvi alls
ekki hægt aö tala um slakan árangur
hjá Sexton með lið Man. Utd. en knatt-
spyma liðsins þykir ekki skemmtileg.
Stöðugir háboltar á Joe Jordan inn i
vítateig mótherjanna hefur verið ein-
kenni sóknarleiksins, talsvert önnur og
lakari knattspyrna en þegar snillingarn-
ir George Best, Bobby Charlton og
Dennis Law réðu sóknarleiknum fyrr,
um og eftir 1970. Aðdáendur Man.
Utd. em þvi meira en lítið kröfuharðir.