Dagblaðið - 04.05.1981, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR4. MAÍ 1981.
19
ÞYRLA VL TIL HVERA-
VALLA MEÐ LÆKNI
— húsfreyjan á hálendinu skarst illa og var gert að sárum hennar meðan
þyrlan beið
Húsfreyjan á HveravöUum, sú sem
sér um veðurathuganir á hálendinu
ásamt manni sínum, skarst illa á höku I
fyrradag. Þótti ástæða til að fá lækni
flugleiðis eða flugvél til að koma kon-
unni til lækna. Kom beiðni um slíka
aðstoð til SVFÍ kl. 23.30 i fyrrakvöld.
Hannes Hafstein framkvæmdastjóri
Rífandi tekjur
f páskaleyf inu
Síðan aðfaranótt -sumardagsins
fyrsta hefur gert grátt í rót hér á Eski-
firði á hverri nóttu og með þvi frost.
f fyrrinótt brá svo við að frostlaust
var. Fyrir sumardaginn fyrsta hafði
verið sannkallað Mallorka-veður hér
í tæpar fjórar vikur.
Nú má búast við alveg sérstaklega
góðu sumri, eftir kenningu eldra
fólksins, því nú frusu saman vetur og
sumar. Þessi kenning reyndist gamla
fólkinu alveg örugg og óbrigðul.
Mikið hefur verið um fermingar-
veizlur á Eskifirði og Reyðarfirði
siðustu daga, mikill og flottur matur
og kaffiborð með snittum, gerðum af
Strandakonu búsettri á Reyðarfirði.
Hálfsmánaðar páskafrí var hjá
grunnskólanum á Eskifirði. Fjórtán
og fimmtán ára nemendur unnu
stanzlaust allan þennan tíma að
undanskildum föstudeginum langa
og páskadegi. Höfðu þau frá
rúmlega 1500 krónum upp i 2800
krónur fyrir vinnu sína hvora vikuna
enda alltaf unnið til kl. ellefu og tólf
á kvöldin. Mest var unnið hjá minni
fyrirtækjunum.
Stórir skreiðarhjallar hafa verið
settir upp á síðustu vikum. Þeir eru
nú orðnir yfirfuUir og alltaf verið að
bæta við hjallana jafnóðum og
fiskurinn berst að landi. Skólapiltar,
sem verið hafa í Reykjavík í vetur,
komu heim í páskafriinu og fóru á
togarana hér og höfðu frá sjö og upp
í þrettán þúsund krónur fyrir tæpa
fimm sólarhringa. Geri aðrir betur!
-Regína, Eskifirði.
Stóð í björtu báli
er að var komið
— gamall sumarbústaður við Rauðavatn brann
Sumarbústaður við Rauðavatn
stóð í björtu báli er slökkvUiðsmenn
komu á vettvang á laugardags-
morguninn. Barst þeim tUkynning
um brunann kl. 8.20 um morguninn
en þá var tekið að loga vel í húsinu.
Það var alelda er að var komið og
slökkvistarf þá í raun óvinnandi.
Hér var um gamalt hús og lélegt að
ræða. Þarna var ekki búið og húsið
alllengi verið mannlaust. Ekkert er
enn vitað um eldsupptök. Þarna var
rafmagn lagt heim en engar tUgátur
lágu fyrir um að það gæti verið orsök
eldsins.
Vegarlaust var að húsinu og þar
sem bruninn var svo langt kominn er
aö var komið var tækjum ekki beitt í
foraðið heldur slökkt í rústum
hússins með léttari tækjum. -A.St.
kvaðst hafa leitað til varnarliðsins með
beiðnina því þyrla Landhelgizgæzl-
unnar er nú ekki tUtæk.
Bandaríkjamennirnir voru komnir í
loftið um kl. eitt um nóttina og var
læknir frá sjúkrahúsinu í Keflavík með
í ferðinni.
Fjórir vélsleðamenn sem staddir voru
á Hveravöllum lýstu upp lendingarstað
fyrir þyrluna. Læknir saumaði saman
og gerði að sárum húsfreyjunnar. Frá
HveravöUum var svo haldið kl. 3.20 i
fyrrinótt og lent rúmlega 4 um morgun-
inneftirvel heppnaðaför.
-A.St.
Það virðist œtla að verða einhver bið á að vorið sýni sig fyrir alvöru
— veðurstofan spáðiþví a.m.k. ígœr að heldur myndi kólna um ailt
land í dag. Það breytir þó ekki því að þar sem nýtur sólar er oft
hlýtt, eins og hjá þessari skólastúlku I miðborg Reykjavíkur.
DB-mynd: Einar Ólason.
SPORT
SKÓR
MJÖG GOTT
VERÐ.
AÐEINS
KR. 159.-
LITUR: LJÓS
STÆRÐIR: 35-46
PÓSTSENDUM
SftÆM
SIMI
LAUGAVEGI 74
17345
Angi af þjófafélagi
handtekinn íÁrbænum
—tveir ungir menn höfðu þar brotizt inn í íbúð og játuðu
aðild að mörgum fleiri íbúðaþjóf nuðum
Upphringing athuguls ibúa 1
Árbæjarhverfi til lögreglunnar Ieiddi
á laugardagskvöldið til handtöku 15
og 16 ára pilta sem nánast voru
staðnir að innbroti og stuldi 1 ibúðar-
húsi. Við yfirheyrslur hafa piltamir
játaö mörg önnur innbrot i fbúðir og
ýmsa stuldi, oftast á gjaldeyri og
áfengi en jafnframt ýmsu öðru.
PUtamir voru um síðir afhentir
rannsóknarlögreglu ríkisins en þá lá
alUjóst fyrir að fleiri piltar á líku reki
væru bendlaðir við ýmsa aðra þjófn-
aði. Er hugsanlegt að þessi handtaka
f Árbænum upplýsi ótal ibúðaþjófn-
aöi í Árbæ, Breiðholti og víðar og
þama hafí náðst i anga aUviðtæks
„þjófafélags”.
Þegar pUtamir tveir voru teknir
höfðu þeir á flótta varpað frá sér
vínföngum sem þeir höfðu þá nýlega
stoliö.
Hinum athugula Árbæjarbúa
fannst ungUngarnir grunsamlegir i
framkomu og kom rækilega í ljós að
gmnur hans var réttur.
-A.St.
DREGID
AMORGUK
Dregið í 1. fl. á morgun kl. 6.00.
Aðalumboðið Vesturveri opið til kl. 7.00 í kvöld.
Nokkrir lausir miðar enn fáanlegir.
Miði er möguleiki.
DÚUM ÖLDRUDUM AH YGGJUL AUST ÆVIKVÖLD g