Dagblaðið - 04.05.1981, Page 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1981.
Qart ar ráð fyrir austlaagriáttvíAast
hvar á landlnu og atinningakalda aöa
kalda, áljum á Austuriandi an rign-
Ingu sunnanlands, á Norður- og
Vasturiandl má búast vlð slyddu.
Klukkan 6 vom austan 4, slydda og
1 stlg í Raykjavlt; eustan 6, snjókoma
og 1 stig á Qufuskálum; norðaustan
6, snjókoma og —1 stlg á Qaltarvlta;
hasgvlðri, rignlng og 0 sdg á Akur-
ayri;austan 4, skýjað og —2 stig á
Raufarhöfn, suðaustan 2, ál og -1
stíg á Dalatanga, austan 4, skýjað og
2 stíg á Hðfn og suðaustan 8, rignlng
og 3 stíg á 8tórhðfða.
( Þórshðfn var ál og 1 stfg, látt-
skýjað og 6 stfg í Kaupmannahðfn, ál
og 2 stíg í Osló, láttskýjað og 3 stíg í
Stokkhólmi, skýjað og 6 stíg I
London, skýjað og 6 stíg ( Hamborg,
skýjað og 6 stíg í Paris, láttskýjað og
12 stfg í Madrid, halðakkt og 10 stíg í
Llasabon og halðakirt og 12 stíg í
Naw Yorfc.
Matthias Haraldsson frá Laugarvatni,
sem lézt 9. marz sl., fæddist 24. april
1949. Foreldrar hans voru dr. Matthías
Haraidsson og Kristín Ólafsdóttir.
Ungur að aldri fluttist Matthias ásamt
foreldrum sínum til Laugarvatns.
Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum að Laugarvatni árið 1968.
Matthías hóf nám í læknisfræöi viö
Háskóla íslands en varð að hætta námi
vegna heilsubrests.
Ása Valtýsdóttir, sem lizt 24. aprii sl.,
fæddist 7. ágúst 1933 i Vestmannaeyj-
um. Foreidrar hennar voru Valtýr
Brandsson og Ásta Guðjónsdóttir. Ása
bjó i Vestmannaeyjum allt sitt líf en
dvaldist þó langdvölum í Reykjavík
vegna sjúkdóms. Árið 1934 giftist Ása
Georg Sigurðssyni og áttu þau 4 syni.
ísleifur Svelnsson, Hvolsvelli, sem lézt
21. april sl., fæddist 18. júní 1900 að
Skíðbakka i Austur-Landeyjahreppi.
Foreldrar hans voru Margrét Guðna-
dóttir og Sveinn Jónsson. ísleifur flutt-
ATLI '
STEINARSSON t1'
Stríðsyf irlýsing Kristjáns Thorlaciusar:
„80% þjóðarinnar innan ASÍ og
þaðaflráði þjoðinni”
Þegar klukkan var tiu mínútur
gengin í tiu i gærkvöldi og kvöldsjón-
varp haföi staðiö i 70 minútur, var
búið að senda út alls 66 auglýsingar
og tók það um 24 mínútur að troða
þessu upp á áhorfendur.
Þó þetta gefi flæðandi tekjur í
kassann dugar ekkert til áð jafna
reikninga sjónvarps tekna- og gjalda-
megin. Engum sem við þetta mál er
riðinn dettur i hug að búið sé að
hlaða um of á jötuna og að íslenzkt
sjónvarp með um 200 manna starfs-
liði sé orðið fjölmennara og dýrara
en það sem við ráðum við. Þetta gæti
allt blessazt miklu betur með þvi að
fækka starfsfólki sem ekki er arð-
bært fyrir dagskrána, ráða góða inn-
kaupastjóra efnis og minnka inn-
lenda framleiðslu sjónvarpsefnis.
Minnumst þess á 15 ára afmæli sjón-
varpsins, sem senn kemur, að sjón-
varpið islenzka var tiltölulega miklu
betra í byrjun en það er nú. Þá var
starfsliðið á fyrstu tugunum. Nú eru
tugir starfsfólksins um tuttugu talsins
og tapið hefur aukizt að sama skapi
og gæöin ekki vaxið. Mikil er sú
raunasaga.
Þetta var löng helgi hjá Dagblað-
inu og þrír starfsdagar sjónvarps að
baki siðan hér var um það fjallað
siðast.
Hátiðisdags verkalýðsins var
minnzt þar með lúörablæstri og
flutningi ótal óþægilegra spuminga
til leiðtoga launþega.
Lúðrasveit verkalýðsins leikur
áferðarfailega vel út sett lög af ýmsu
tagi. En litill er krafturinn í flutningi
hljómsveitarinnar og svipbrigði eða
tilþrif i flutningi fóru fram hjá mér,
hafi þau einhver verið. Mikið fer það
Jóni Múla betur aö kynna á lipran
hátt hljómsveit í sjónvarpi en að
koma þar fram i rabbþætti sem
valdamaður i útvarpsráði.
Enn jókst á máttleysi verkalýðs- og
launþegahreyfinga landsins er þeir
sátu fyrir svörum Ásmundur Stefáns-
son forseti ASÍ og Kristján Thorla-
cius formaður BSRB og spyrjendur
voru óbreyttir liösmenn í ýmsum
starfsmannaféiögum fyrrnefndra
landssamtaka.
Kristján upplýsti að kaupmáttur
fólks i félögum innan BSRB hefði á
árinu 1981 rýrnaðum 12% 15. flokki
og 17% i 13. launaflokki. Átök væm
framundan og launþegar ættu aö
strengja þess heit hinn 1. mai að
starfa nú saman og fram til sigurs.
Ásmundur viðurkenndi sömu kaup-
máttarrýrnun hjá féiögum ASÍ.
Ásmundur kvað samráð rikisvaids
við verkalýðshreyfinguna hafa klikk-
að. Daglaun væm langt undir þvi
marki sem þyrfti til að framfleyta
fjölskyldu. Félagsmálapakkarnir, svo
góðir sem þeir væru, næöu því miður
ekki til annarra en þeirra launþega
sem væru neðan við það neðsta í
kaupstigum. Aldrei væri miðað við
framfærslukostnað eða rauntekjur
fólks við ákvörðun skattmarka eöa
við ákvörðun innihalds félagsmála-
pakka.
Ásmundur kvaö meðalfjölskyldu í
dag hafa rúma milljón á mánuði.
Meðalvinnuvika hjá körlum væru 50
stundir. Kvað hann nauðsyn á aö
stytta þennan vinnutíma án kaup-
skerðingar.
Þá kom það fram að iðnnemar búa
við lægri kaupmátt nú en 1971. Aðr-
ar stéttir hefðu sótt upp á við. I
„svari” Ásmundar við þessu kvað
hann „síðasta áratug ekki hafa ein-
kennzt af launahækkunum”.
Báðir leiðtogarnir sóru af sér „vin-
semd” við ráðandi öfl i þjóðfélaginu
og ríkisstjórn — kváðust meira að
segja vera í harðri stjórnarandstöðu.
Og svo kom yfirlýsing Kristjáns:
„Félagsmenn BSRB hafa ekki
verið tilbúnir til að fara i harða bar-
áttu. Nú eigum við.að strengja heit:
Búum okkur undir baráttu í haust.
80% þjóðarinnar eru innan vébanda
BSRB og ASÍ. Það afl á að ráða
þjóðinni.”
Síðan komu játningar á vixl og
kross um þá skoðun að ASf og BSRB
ættu að renna i eitt samband. Það er
draumur, ósk og von beggja foringja
núverandi sambanda.
Litillega var minnzt á lifeyrismálin
og tæknibyltingu en þegar kom að
slíkum alvörumálum var timinn bú-
inn eins og venjulega.
Guðjón Einarsson stjórnaði þess-
um þætti af sinni alkunnu röggsemi,
yfirvegaðri rósemi og lipurð.
Ekki má láta hjá líða að minnast á
fréttaflutning sjónvarpsins. Á laugar-
dag voru fluttar ellefu fréttir, þar af
sjö innlendar. Ein þeirra fékk áber-
andi versta útreið í flutningi og hefði
veriö betra að bíða með hana þar til
nægur tími var fyrir hendi, svo marg-
ir sem áhuga höfðu á málinu.
Frétt þessi fjallaði um skipulag
Reykjavíkurborgar og nýju bygging-
arsvæðin. Ólafur Sigurðsson varð að
romsa upp úr sér fréttinni á met-
hraða, þannig að fátt eitt af tölum og
staðreyndum gat setið eftir í hugum
fólks. Meðan var mynd rúllað yfir
likön af þessum nýju og eftirsóttu
svæðum. Ég spyr: Var ekki timi til að
afgreiða það mál betur? Upplýst var
að allt að 50 sækja um hverja lóð og
enn fleiri brenna af löngun en geta
ekki. Þá hefur sjónvarpið ekki tíma
tU að skýra fáséð likðn af byggingar-
svæðum. En nægur tími var til aö
sýna áhrif gervijarðskjálfta á hús og
byggingar i Japan. Skrítið mat — og
að mínu mati brenglað.
Svo áttum við ágætt laugardags-
kvöld eftir fréttir með dásamlegum
flutningi Vinarsinfóniunnar og ágæt-
um framúrstefnureyfara i formi sjón-
varpsleikrits sem látið var heita Dem-
antsleitin. Það hélt spennunni þrátt
fyrir rýrt innihald — og hefur áreið-
anlega ekki verið sjónvarpinu ofviða
fjárhagslega.
-A.St.
ist með foreldrum sínum að Miðkoti í
Fljótshlíö og tók sjálfur við búi þar
árið 1923. Sama ár kvæntist Isleifur
Ingibjörgu Kristjánsdóttur. Um miðjan
aldur aflaði ísleifur sér húsasmíðarétt-
inda. Árið 1942 fluttist hann að Hvols-
velli þar sem hann bjó siðan. Þau Is-
leifur og Ingibjörg eignuðust 6 börn.
Haraldur Magnússon, Hofsvallagötu
23 Reykjavík, lézt að Landakotsspítala
29. april sl.
Una Sigurðardóttir, Snorrabraut 35,
verður jarösungin frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 5. mai kl. 13.30.
Inglbjörg Jónsdóttir, Álfhólsvegi 80
Kópavogi, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju þriöjudaginn 5. maí kl. 15.
Kristjaqa Sigriður Guðmundsdóttir,
sem lézt að Elliheimilinu Grund 26.
april sl., verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju í dag, 4. mai, kl. 15.
Sigriður Jeppesen, sem iézt í Landspít-
alanum 25. april sl., verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. maí
kl. 10.30.
Kristveig Jónsdóttlr frá Þórshöfn
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 5. mai kl. 13.30.
FwKlir
Kvenfólag
Breiðhoits
hcldur fund aö Seljabraut 54 þriöjudaginn 5. mai
nk. kl. 20.30. Fundurinn hcfst mcð matarkynningu
fr6 verzluninni Kjöti og fiski. Félagskonur sýna fatn-
aö fr& Vcrðlistanum og Theódóru. Gcstir fundarins
verða konur úr Kvenfélagi Grcnsássóknar. Félags-
konur, mætið vel og stundvislega.
Kvenfélag
Frikirkjusafnaöarins
Heldur vorfund sinn mánudaginn 4. maí kl. 20.30 í
Iðnó (uppi). Spilað verður bingó.
AA-samtökin
í dag mánudag verða fundir á vegum AA-samtak-
anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010)
græna híisið kl. 14, 21 og kvennadeild uppi kl. 21.
Tjarnargata 3 (s. 91-16373) rauða húsiö kl. 18 og 21.
Langholtskirkja (opinn) kl. 21.
Akureyri, (96-22373) Geislagata 39..........21.00
Dalvík, Hafnarbraut4....................... 21.00
Hafnarfjörður, Austurgata 10............... 21.00
Hvammstangi, Bamaskóli..................... 21.00
Mosfellssveit, Brúarland................ • 21.00
Raufarhöfn, Hótel Norðurljós............... 21.00
Selfoss, (99-1787) Selfossvegi 9.......... 21.00
Suöureyri Síigandafiröi, Aðalgata.......... 21.00
Vestm.eyjar, (98-1140) Heimagata 24 20.30
í h°inu á morgun, þriöjudag, verða fundir sem
hér segir: Tjarnargata 5, græna húsiö kl. 14,
Tjamargata 3, rauða húsið, samlokudeild kl. 12,
Keflavikurflugvöllur kl. 11.30.
■'i
Adalfunifir
Kvenfólag
Lágafellssóknar
heldur aðalfund sinn 4. mai. Venjuleg aöalfundar-
störf. Þar sem ákveðiö hefur verið að halda matar-
fund eru konur vinsamlega beðnar að tilkynna þátt-
tökuis. 66602 eöa 66486.
Aðalfundur Sambands
(slenzkra hltaveitna
Samand íslcnzkra hitaveitna, sem var stofnað á
seinasta ári, heldur aðalfund sinn á Hótel Esju í
Reykjavík i dag, mánudag 4. maí.
Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri, formaður sam-
bandsins, setur fundinn en síðan verða flutt fram-
sögueríndi um meginefni fundarins en þau veröa auk
aðalfundarstarfa. Notkun hemla og mæla sem
grundvöllur gjaldlöku hitaveitna sem Gunnar
Kristinsson verkfræðingur fiytur, og Val i efnl í
aðveltulagnlr, sem Oddur Björnsson verkfræðingur
fiytur.
í Sambandi íslenzkra hitaveitna eru 25 hitaveitur í
eigu sveitarfélaga og nokkrir aukafélagar, þar á
meðal Orkustofnun.
Tónleikar
_______ •__Á
Tóleikar í Norrœna
húsinu íkvöld
í kvöld 4. mai kl. 20.30 efnir Tónskóli Sigursveins
D. Kristinssonar til tónleika í Norræna húsinu. Þetta
eru tónleikar framhaldsdeildar Tónskólans og koma
eingöngu fram nemendur á efri námsstigum. Þetta
eru síðustu tónleikar starfsársins hjá Tónskólanum
en síöan um áramót hafa verið haldnir 9 opinberir
tónleikar á vegum skólans víðs vegar um land. Til
tónleikanna i kvöld hefur veriö vandað í hvivetna og
eru styrktarfélagar, foreldrar, nemendur og aðrir
velunnarar skólans velkomnir:
SVR eykur
þjónustu sína
Frá og með 4. mai nk. verður ferðatíðni á leið 14
aukin á mestu annatímum, úr 60 min. i 30 mín. Er
hér um aö ræða tímann frá kl. 7—9 og 16—19 frá
mánudegi til föstudags. Verður brottfarartiminn
þessi:
Frá Skógarseli kl. 7, 8 og 9 og síðan frá Lækjartorgi
kl. 7.40 og 8.40.
Siðdegisferöimar eru kl. 16.40, 17.40 og 18.40 frá
Lækjartorgi. Aörar ferðir á þessari leið eru óbreytt-
ar.
Nýlega afgreiddi Nýja bilasmiðjan hf. fjórða
strætisvagninn af þeim 20 sem samið hefur veriö um
kaup á. Er gert ráð fyrir aö 8 vagnar a.m.k. verði
komnir i notkun fyrir nk. áramót. I september er
von á þremur strætisvögnum frá Ungverjalandi.
Þeir koma yfirbyggöir og þvi strax tilbúnir 1 umferð.
Af þessum vagnakaupum leiöir að teknir eru úr
notkun gamlir vagnar sem lokið hafa hlutverki sinu i
þjónustu viö farþega SVR.
Verða þeir nú boönir til sölu en kaupendur hafa til
þessa aðallega veriö fiskvinnslustöövar viös vegar á
landinu.
Bankamannaþing
bankamanna til næstu tveggja ára. Stjómin skipa:
Sveinn Sveinsson formaður Hinrik Greipsson 1.
varaformaöur, Jens Sörensen 2. varaformaöur og
meöstjórnendur Margrét Brynjólfsdóttir, Kjartan
Nielsen, Anna Marla Bragadóttir og Helgi Hólm.
Varastjórn skipa Hólmfríöur Guðmundsdóttir,
Sigurður Guðmundsson, Ásdis Gunnarsdóttir og
Gisli Jafetsson.
Kvenfélag
Laugarnessóknar
Konur sem ætla með að heimsækja Fjallkonurnar i
Breiðholti mánudaginn 4. mai, mætið viö Laugar-
neskirkju kl. 20.15 eða hafið samband við Margréti í
slma 32558 eftir kl. 17 eða Guörúnu i sima 32777.
Ný stjórn í fólagi gullsmiða
Nýlega var haldinn aöalfundur i félagi islenzkra
gullsmiða. Á aöalfundi þessum var kosin ný stjórn
fyrir félagið en hana skipa: Sigurður G. Steinþórs-
son, Gull & Silfri, formaður, Lára Magnúsdóttir,
skartgripaverzlun Láru Hafnarfirði, ritari og Leifur
Jónsson, GullhöUinni, gjaldkeri. Þetta er aUt ungt
fólk með frjóar hugmyndir sem þaö hyggst koma á
framfæri á komandi starfsári. Fyrsta verkefni hinn-
ar nýju stjórnar var að útvega félaginu samastað en
á tæplega 60 ára ferli félagsins hefur þaö aldrei átt
fastan samastaö. Húsnæði þaö sem félagiö hefur nú
aðsetur i er að Skólavörðustig 16 i Reykjavik, 4.
hæð.
Hin nýja stjórn hefur hugsað sér aö hafa opna
skrifstofu fyrir almenning alla miðvikudaga frá kl.
18—19, þar sem unnt ér að leita ráða og upplýsinga.
Sendlherra í
Ungverjalandi
Hinn 17. aprU afhenti Haraldur Kröyer sendiherra
Pal Losonczi, forseta Ungverjalands, trúnaðarbréf
sen sendiherra íslands i Ungverjalandi með aösetri 1
Moskvu.
Mlnningarspiöld
Minningarkort Hjúkrunar-
heimilis aldraðra í Kópavogi
eru seld á skrifstofunni að Hamraborg 1. sími 45550.
og einnig í Bókabúðinni Vedu og Blómaskálanum við
Nýbýlaveg.
GENGIÐ
Tónleikar í
Dómkirkjunni íkvöld
Kór Dómkirkjunnar heldur tónleika í kvöld kl.
20.30. Kórinn syngur Missa brevis í D-dúr eftir Moz-
art. Einsöngvarar eru Elín Sigurvinsdóttir, Rut
Magnúsdóttir, Siguröur Björnsson og Halldór Vil-
helmsson, sem syngur einnig kantötu Ich habe
genug. Aðgöngumiðar eru seldir við innganginn á
kr. 30 en ellilifeyrisþegar fá ókeypis aðgang.
32. þing Sambands islenzkra bankamanna var
haldið að Hótel Loftleiöum i Reykjavik 10. og 11.
aprU 1981.
Auk heföbundinna þingstarfa voru aðalmál
þingsins kjaramál, fræðslumál, meðákvörðunar-
réttur, jafnréttismál og tæknivæðing. Samþykktar
voru itarlegar ályktanir í öUum þessum mála-
flokkum.
Á þinginu var kjörin stjórn Sambands Islenzkra
GENGISSKRÁNING Feröamanna-
NR. 81 - 30. APRÍL1881 gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 8,714 6,732 7,406
1 Sterlingspund 14,371 14,409 16,860
1 Kanadadollar 6,813 6,628 6,191
1 Dönsk króna 0,M17 0,9642 1,0606
1 Norsk króna 1,2087 1,2120 1,3332
1 Sœnsk króna 1,4106 1,4143 1A667
1 Hnnskt mark 1,5962 1,6994 1,7693
1 Franskur franki 1,2778 U813 1,4094
1 Belg. franki 0,1883 0,1888 0,2066
1 Svissn. franki 3,3217 3,3306 3,6837
1 Hollenzk florþia 2,7282 2,7366 3,0091
1 V.-þýzktmark 3,0318 3,0400 3,3448
1 ítöbkllra 0,00809 0,00611 0,00672
1 Austurr. Sch. 0,4287 0,4299 0,4729
1 Portug. Escudo 0,1129 0,1132 0,1246
1 Spánskur pesetj 0,0762 0,0764 0,0829
1 Japanskt yen 0,03121 0,03129 0,03442
1 (rsktound 11,097 11,128 12,239
SDR (sérstök dróttarréttindi) 8/1 8,0478 8,0894
* Breyting frá sióustu skráningu. Simsvari vegna gengisskróningar 22190.