Dagblaðið - 04.05.1981, Side 28
28
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1981.
Viöar Víkingsson nýr
dagskrárgerðarmaöur:
Frá kvik-
myndahá-
skóla í
Frakklandi
í sjón-
varpið
,,Ég byrjaði að starfa hér fyrir
rúmri viku en við starfi tók ég af
Þráni Bertelssyni. Þráinn hætti fyrir
nokkru til að geta snúið sér að kvik-
myndagerð,” sagði Viðar Vfkingsson
nýráðinn dagskrárgerðarmaður hjá
sjónvarpinu.
Viðar kom hingað til lands fyrir
réttu ári en þá hafði hann verið í
Frakklandi í 8 ár. „Ég lærði kvik-
myndun í kvikmyndaháskóla franska
ríkisins í þrjú ár. Auk þess tók ég há-
skólagráðu i bókmenntum og 1.
doktorsstig í kvikmyndafræðum.”
Margir muna eflaust eftir Viðari úr
Þjóðlífsþætti Sigrúnar þar sem var
sýnt brot úr mynd eftir hann um
Djáknann á Myrká. Þá mynd gerði
Viðariskólanum.
— En hefurðu ekkert hugsaO þér
aO fara út f kvikmyndun hérlendis?
„Nei, það er býsna mikið fyrir-
tæki. Auk þess fer vinna hér hjá sjón-
varpinu og kvikmyndagerð ekki
saman. Þráinn lét af störfum vegna
þess að hann ætiaði að snúa sér að
kvikmyndagerðinni,” segir Viðar.
Viðar hefur ekki áður komið
nálægt sjónvarpsstörfum ef frá er
talið að hann fylgdist með upptöku í
Frakklandi.
En þess má geta aO hann vann við
klippingu á kvikmyndinni Punktur
punktur komma strik.
„Mér lízt vel á mig hér. Að vísu er
ég ekki farinn að vinna að neinu
verkefni ennþá. Ég á von á því að ég
verði i þessum föstu þáttum. Að
minnsta kosti til að byrja með.
— Hefurðu hugsað þér að fara
aftur til Frakklands?
„Það er ekkert þar fyrir mig að
gera. Það er mikið atvinnuleysi í
minni grein. Hins vegar er miklu
meira að gerast í Frakklandi. En
tækifærin eru hér,” segir Viðar.
Ellefu manns sóttu um stöðu dag-
skrárgerðarmanns en Viðar hlaut öli
greidd atkvæði í útvarpsráði.
-ELA.
en tekur þó myndir
affrœgum mönnum
eins og Gordon
Liddy
„Ég hef alltaf haft áhuga fyrir ljós-
myndun. En það var ekki fyrr en ég
var búin að starfa sem umboðsmaður
fyrir ljósmyndastofur að ég gerði
alvöru úr þvi að gerast ljósmyndari.
Ég keypti mér hluta í ljósmyndastofu
á Manhattan og þar hef ég nú starfað
í rúmt ár. Ég tek eiginlega eingöngu
tizkuljósmyndir,” sagði Maria Guð-
mundsdóttir fyrrverandi ljósmynda-
fyrirsæta og núverandi ljósmyndari í
stuttu spjaili við DB.
María var stödd hér á landi í
páskafrii en yfirgaf landið á laugar-
dag. Það vakti athygli okkar að á bók
sem kom út nýlega um Watergate-
málið eftir sjálfan Gordon Liddy er
mynd á bakhlið bókarinnar af Liddy
merkt Maríu Guðmundsdóttur. Við
spurðum hana hvort hún væri ljós-
myndari fræga fólksins í Bandaríkj-
unum.
„Nei, bókaforlagið sem gaf út
þessa bók bað mig um að taka mynd
af Gordon Liddy. Ég sagðist vilja
gera það og hann kom til min á ljós-
myndastofuna. Hann má ekki fara úr
landi en er annars frjáls ferða sinna.
Aðrar myndir hef ég ekki tekið fyrir
þetta bókaforlag,” sagði María.
Nú eru iiðin sex ár siðan María
hætti ljósmyndafyrirsætustörfum en
við það hafði hún starfað hvorki
meira né minna en í 15 ár.
„Ég er rétt að feta mig áfram í ljós-
mynduninni og þetta ár hefur verið
góður skóli fyrir mig. Ég hef góða
aðstöðu en ég á margt eftir að læra
ennþá. Þessa aðstöðu ætla ég að nota
til að fræða mig og æfa. Ég fæ alltaf
öðru hvoru leið á New York og þá
skrepp ég burtu. Hingað reyni ég að
koma nokkrum sinnum á ári því
hugurinn stefnir heim hvenær sem ég
læt verða af þvi að koma,” segir
María Guðmundsdóttir ljósmyndari.
-ELA.
Viðar Vikingsson k vikm yndagerð-
armaður tók við starfi Þráins Bart-
eissonar sem dagskrárgerðar-
maður hjá Sjónvarpinu.
DB-mynd Sig. Þorri.
Löggan œfir af kappi...
Enda skotkeppni
Árlega heldur Iögreglan í Reykja-
vík skotkeppni mikla sem að þessu
sinni fer fram dagana 19. og 20. maí.
Æfíngar eru hafnar af fullum krafti
og fara þær þær fram á Suðurnesi,
náiægt golfklúbbi Ness. Er Sveinn
ljósmyndari DB átti leið þar fram hjá
fyrir helgina var umferðardeildin að
spreyta sig undir stjóm Garðars
Halidórssonar sem er aðstoðarskot-
stjóri i forföllum Magnúsar Einars-
sonar, sem var upptekinn við störf.
Allar vaktir innan lögreglunnar
taka þátt í keppninni og eftir æfingar
velur hver vakt hæfasta mann sinn til
að taka þátt í keppninni. Engir áhorf-
endur em meðan á keppninni stendur
þar sem það þykir of hættulegt.
Eftir keppnina em veittir bikarar
og verðlaunapeningar og er það sú
vakt sem sent hefur færasta manninn
sem hlýtur verðlaunin.
Lögreglumenn gera sér fleira til
gamans en að keppa i skotfimi.
Árlega halda þeir sundkeppni mikla
og segja þeir sem séð hafa þá keppni
að þar riki sannarlega spenningur.
Lögregiumenn veifandi öllum öngum
á bökkunum til að hvetja áfram sina
menn. Segi svo einhver að það sé
leiðinlegt að vera lögga. . .
-ELA.
á nœsta leiti
Skotfími kjgreglumanna er að sjáffsögðu æði misjðfn en einum þeirra
þykir nú ekki mikið að hitta í mark. Það er Garðar Halldórsson sem
sýndi Ijósmyndara DB þessa hæfhi. DB-myndir S.
Maria Quðmundadóttk ijósmynd-
ari kemur nokkrum sktnum i ári tfí
Isiands. Þessi mynd var tekln af
henni iM upptöku á þætdnum
Þjóðfífí í fyrrevetur.
Leggur
alla
áherzlu
á tízku-
Ijós-
myndun
Sverrir Friðþjófsson, nýr umsjónarmaður íþrótta í sjónvarpi:
„Maöur er alltaf fláHTffJJI
kvelja sjálfan sig” lil iM
„Þetta bar svo brátt að, ég hef
ekkert mátt vera að því að kvíða fyrir
eða hugsa um fyrsta þáttinn. Ja,
r.ema á kvöldin þegar ég leggst á
koddann og þá hugsa ég eiginlega
umofum þetta,” sagði Sverrir Frið-
Sverrir er mikill
áhugamaður
iþrótta og hór
ioikur hann
badminton af
hjartans list i
húsi TBR við
Glæsibœ. Þess
má getá að
Sverrir vann
fyrstu verðiaun i
sumarmynda-
keppni DB
sumarið 1978.
DB-mynd Einar
Ólason.
þjófsson forstöðumaður Fellahellis,
sem ( kvöld tekur við íþróttaþætti
sjónvarpsins í stað Jóns B. Stefáns-
sonar.
„Ég sótti um þetta starf fyrir ári og
fór þá í prufu hjá sjónvarpinu. En
skólabróðir minn Jón fékk starfið.
Hann ætlar eitthvað að minnka við
sig núna fram að sumarfríi sjón-
varpsins svo ég verð með þáttinn
þangað tíl. Það er verst að þátturinn
er i beinni útsendingu þannig að ekki
er hægt að þurrka út vitleysur. En það
er alltaf spennandi aö reyna eitthvað
nýtt og maður er alltaf að leita að ein-
hverri fjölbreytni, jafnframt sem
maður kvelur sjálfan sig,” sagði
Sverrir.
Sverrir Friðþjófsson hefur starfað
hjá Fellahelli síðan 1977 en það er fé-
lagsmiðstöð Breiðhyltinga. „Hér er
opið allan daginn, á kvöldin og um
helgar og alltaf eitthvað um að
vera,” segir Sverrir. Áður en hann
hóf störf hjá Fellahelli var hann við
nám i iþróttaháskóla í Noregi. Og
áður en hann hélt þangað var hann
við kennslu í iþróttum í Æfinga- og
kennaraháskólanum. Sverrir er
kvæntur Elisabetu ingólfsdóttur og
eiga þau þrjá syni.
Að vísu er Sverrir ekki alveg óvan-
ur sjónvarpi því árið 1972 var hann
dómari i spumingakeppni skólanna í
Stundinni okkar sem þá var í umsjá
Sirrýjar og Hermanns Ragnars.
-ELA.
son og Garðar Halldórsson aðstoðarskotstjóri.