Dagblaðið - 04.05.1981, Page 31
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. MAl 1981.
31
Útvarp Sjónvarp
JÁRNKARUNN - sjénvarp kl. 21,45:
SYNIRNIR SNÚA HEIM
ÞEGAR MÓDIR ÞEIRRA
LEGGST BANALEGUNA
—hafa ekki séð hana í mörg ár
Brezkt leikrit eftir David Mercer
verður sýnt í sjónvarpinu I kvöld. Það
fjallar um aldraða konu, Emily Wat-
son, sem veikist alvarlega og er ekki
hugað lff. Búizt er við andláti hennar
hvenær sem er. Hún er gift námuverka-
manni sem kominn er á eftirlaun.
Þau hjónin eiga tvo syni sem búið
hafa langt frá heimili þeirra. Synirnir
hafa ekki séð foreldrana sína í mörg ár
en þegar þeim er tilkynnt hvemig ástatt
er fyrir móður þeirra koma þeir heim
til að kveðja hana hinztu kveðju.
Leikstjóri er David Cunliffe en með
helztu hlutverk fara Alfred Burke,
Nigel Hawthorne og Edward Wood-
ward. Þrándur Thoroddsen sá um að
íslenzka leikritið.
-KMU
Emily Watson er lögzt banaleguna.
Eiginmaðurinn og synirnlr tveir eru
þarna að kveðja hana.
BIAÐIÐ úháð dagblað
iidpppamai —útvarpkl. 22,35:
Hugmyndir um samein-
ingu sveitarfélaga
I þættinum Hreppamál, sveitar-
stjórnarmálaþætti þeirra Árna Sig-
fússonar og Kristjáns Hjaltasonar,
sem er á dagskrá útvarps í kvöld,
verður að venju fjallað vitt og breitt
um málefni sem snerta stjórnun sveit-
Unnar Stefánsson ritstjóri fjallar um sameiningu sveitarfélaga í þættinum
Hreppamál.
arfélaga i landinu.
Aðalmálið að þessu sinni er sam-
eining sveitarfélaga. Unnar Stefáns-
son ritstjóri mun fjalla um það mál
og segja frá hugmyndum sem uppi
hafa verið.
Sameining sveitarfélaga er ekki
nýtt fyrirbæri. Fyrir um áratug voru
miklar umræður um þessi mál hér-
lendis og sýndist sitt hverjum. Margir
hafa bent á að sveitarfélög hérlendis
séu óþarflega lítil og hamli smæð
þeirra ýmsum framkvæmdum. Sam-
eining ísafjarðar og Hnífsdals er lík-
lega eitt kunnasta dæmið hérlendis
um sameiningu sveitarfélaga en sfðan
þau sameinuðust virðist sem dregið
hafi úr sameiningaráhuga. Þess i stað
hafa sveitarfélög aukið samvinnu sin
á milli og sameinazt um einstakar
framkvæmdir og rekstur mann-
virkja.
f þættinum verður einnig skýrt frá
ráðstefnu samtaka sveitarfélaga á
Suðurlandi, sem fram fór i Vest-
mannaeyjum nýlega, og sagðar fréttir
frá sveitarstjórnum.
-KMU.
Viljum ráða nú þegar
bílamúlara eða aðstoðarmenn
á málningarverkstæði, einnig
bifreiðasmiði og réttingarmenn.
Mikil vinna.
Bílasmiðjan Kyndill
v/Stórhöfða 9 — Sími 35051.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tíroapantanir
13010
VANTA&P. FRAMRUÐU?
!TF
Ath. hvort viðgetum aðstoðað.
ísetningar ú staðnum.
BÍLRÚÐAN ", og2™
Rafverktakar - Verziunarstjórar
Ávallt fyrirliggjandi raflagnaefni frá Ticino og V-
Þýzkalandi.
Plaströr allar stærðir, beygjur, hólkar, rofa-,
vegg- og loftdósir.
Dyra- og innanhússímar í úrvali.
S. GUÐJÓNSSON HF.
Auðbrekku 49, Kópavogi.
Sími 42120.
Frá Trotter í
tízkulhunum'
Dökkblátt, Ijósblátt, bleikt, drapp. Rúskinn.
Stærðir 35—41.
Verð með kögri: kr. 199,-
Verð án kögurs: kr. 185.-
Domus Medica.
Sími 18519.
PÓSTSENDUM
SAMDÆGURS.