Dagblaðið - 04.05.1981, Qupperneq 32
diet pepsi
MINNA EN EIN
KALÓRÍA í FLÖSKU
Siinilas
fijálst, nháð dagblað
MÁNUDAGUR 4. MAl 1981.
Ökklasnjórá
Hellisheiði
Sumardekk bifreiða reyndust
heldur illa í morgun á Hellisheiðinni.
Þar hafði kyngt niður snjó í
morgunsárið og var ökkladjúpur
snjór á heiðinni er umferð hófst.
Lentu ýmsir í basli en munu þó hafa
komizt leiöar sinnar um síðir. - A.St.
Fatlaöir:
Hópur fatlaðra
svo stór hópur fatlaðs fólks þátt í kröfugöngu dagsins.
DB-mynd Bjarnleifur.
NORRÆNA TRIMMKEPPNIN
KOMIN í FULLAN GANG
Norræn trimmkeppni fatlaöra hófst
af fullum krafti að morgni 1. maí. Þá
um morguninn safnaðist hópur fatlaðs
fólks saman við hús Sjálfsbjargar í
Reykjavík að Hátúni 12. Þar hleypti
framkvæmdastjóri keppninnar hér á
landi, Sigurður Guðmundsson skóla-
stjóri, keppninni af stokkunum.
Að þvi loknu hófu hinir fötluðu
keppnina, sumir fóru gangandi og á
hjólastólum hringferð um næsta ná-
grenni, blindir voru þarna mættir með
tveggja manna reiðhjól og enn aðrir
fengu sér sundsprett i hinni glæsilegu
sundlaug Sjálfsbjargar.
Alla helgina var mikið um að vera
hjá fötluðum og sagði Sigurður
Magnússon formaður íþróttasambands
fatlaðra í morgun að margir sýndu
þessu mikinn áhuga.
-JR.
Síðasta
vika
vertíðar
Síðasta vika vertíðar er gengin í garð
en þessi vertið mun vera sú bezta í ára-
raðir. Síðasti dagur vertiðarinnar er á
föstudag og verður væntanlega haldið
upp á það með tilheyrandi húllumhæi.
Gífurleg spenna hefur ríkt meðal sjó-
manna um hver verði aflahæstur og er
keppnin aðallega á milli Eyjabáta og
báta úr Þorlákshöfn.
Ragnar Sigurjónsson ljósmyndari
DB i Vestmannaeyjum tók þessa mynd
er MB Þrasi var að koma í land á hand-
lensinu með 2,2 tonn. Eyjamenn muna
ekki annan eins afla og allir hafa nóg
að gera þar þessa dagana. í Vest-
mannaeyjum mun Þórunn Sveinsdóttir
vera aflahæst og Suðurey kemur þar
fastáeftir. -ELA.
Fangi á Litla-Hrauni leitar til Jaf nréttisráðs:
Telur kvenfanga njóta
óeðlilegra forréttinda
—tvær mæður í fangelsi á Akureyri fá að fara mánaðarlega í helgarheimsókn
tilbamasinna
„Já, það er rétt að einn fangi á
Litla-Hrauni hefur skrifað Jafnréttis-
ráði og sótt um leyfi til að heimsækja
barn sitt mánaðarlega,” sagði Þor-
steinn Jónsson í dómsmálaráðuneyt-
inu, þegar hann var spurður hvort
það hefði við einhver rök aö styðjast
aö fangar á Litla-Hrauni heföu
kvartað yfir þvi að kvenfangar í
Akureyrarfangelsinu hefðu rýmri
bæjarleyfi en þeir. Er sagt að þeir
Litla-Hraunsmenn telji kvenfangana
njóta óeðlilegra forréttinda og kalli
þá í daglegu tali „drottningarnar”.
Þorsteinn Jónsson staðfesti að tvær
konur sem eru 1 afplánun á Akureyri
fái að fara suður mánaðarlega til að
heimsækja börn sín. „Þetta er fyrst
og fremst gert meö tilliti til barnanna,
sem ekki eiga auðvelt með aö heim-
sækja þær fyrir norðan,” sagði
hann. „Afstaða er tekin einstaklings-
bundið i hverju tilfelli og það fá ekki
allar mæður að fara sem sækja um
það.”
Að lokum sagði Þorsteinn aö
ástæður fangans á Litla-Hrauni væru
á engan hátt sambærilegar við ástæð-
ur „drottninganna”. Þær hefðu for-
ræði barna sinna og börnin hefðu bú-
ið hjá þeim þangaö til þær hefðu
farið í fangelsið. En Litla-Hrauns-
fanginn hefur ekki forræði barnsins
og var raunar aldrei giftur móður
þess en þau voru í sambúð um og
eftir það aö bamið fæddist.
Jafnréttisráð hefur beðið eftir urri-
sögn dómsmálaráðuneytisins en mun
nú afgreiöa málið mjög fljótlega.
„Aðbúnaður í fangelsunum virðist
ólikur, til dæmis er engin aðstaða til
menntunar hjá konunum, en að sjálf-
sögðu á jafnrétti að rikja innan fang-
elsanna eins og annars staðar,” sagði
Guöriður Þorsteinsdóttir formaður
ráösins við DBI morgun.
-IHH.
Öldruð hjón misstu allt sitt í annað sinn í bruna:
„Treysti mér ekki til að
byggja allt upp í þriðja sinn”
segir Magnús Halldórsson bóndi áð Ketilsstöðum
„Ég tók við öllu í niðurníðslu að
Ketilsstöðum árið 1930. Það má því
segja að ég sé búinn aö byggja þar
upp tvisvar sinnum og nenni ekki að
gera það i þriðja skiptið. Enda er ég
orðinn gamall og ekki alveg hraustur,
svo að ég treysti mér ekki til þess,”
sagði Magnús Halldórsson, 76 ára
gamall bóndi á Ketilsstöðum 1
Hvammssveit i Dalasýslu, er blaða-
maður DB ræddi við hann í morgun.
tbúðarhúsið aö Ketilsstöðum
brann til kaldra kola á fimmtu-
daginn. Engu tókst að bjarga. Fyrir
nokkrum áratugum gerðist það
einnig að brann ofan af Magnúsi og
Láru konu hans. Þau hjónin voru
heima við á fimmtudaginn er eldur-
inn kom upp hjá þeim og ellefu ára
gamalt barnabarn þeirra. Eldsupp-
tökin voru i rafmagni.
„Já, ég býst við að bregða búi úr
þessu,” sagði Magnús i samtalinu við
blaðamann i morgun. „Ég er með um
170 kindur og nokkra hesta.”
Magnús dvelst nú hjá Guðmundi
bróður sinum i Magnússkógum.
Það var um hádegisbiliö á fimmtu-
daginn, sem eldsins varð vart í íbúð-
arhúsinu að Ketilsstöðum. Slökkvilið
Dalasýslu, sem staðsett er i Búðardal,
um 35 —40 kilómetra i burtu, var
komið á staðinn um klukkan hálfeitt.
Þá var svo mikill eldur í húsinu aö
ekki varð við neitt ráðið. Vatnsöflun
gekk einnig fremur erfiðlega. Dæla
varð sjó nokkra vegalengd upp
brekku. íbúðarhúsið var forskalaö
timburhús, um tuttugu ára gamalt.
Meðan slökkviliðið var að störfum
á Ketilsstöðum kom upp eldur i Kjöt-
pokaverksmiðjunni í Búðardal.
Húsið var mannlaust er kviknaöi i.
Fyrir hreinustu heppni áttu menn
erindi þangað og urðu þeir varir við
eld í kyndiklefa fyrirtækisins. Þeim
tókst að ráða niðurlögum hans með
handslökkvitækjum. Skemmdir urðu
engar.
- ÁT / Anna, Búflardal.
Auknar niðurgreiðslur:
Mjólkin
lækkar um
15 aura
— kjötið um 75 aura
Verð á nokkrum landbúnaðarvörum
lækkar í dag vegna ákvörðunar ríkis-
stjómarinnar um auknar niðurgreiðsl-
ur. Þannig lækkar kartöflukílóið um
45 aura, skyrið um 1,50 kilóið, smjör-
ið um 2 krónur og 5 aura kílóið, 1.
flokkur af kindakjöti um 75 aura og
mjólkin um 15 aura lítrinn.
Að öllu óbreyttu heföi verðið haldist
óbreytt nema verð mjólkur sem heföi
hækkað. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um það hversu lengi þetta
nýja verð verður i gildi en ekki þykir
óliklegt að það verði fram eftir árinu.
-DS.