Dagblaðið - 21.09.1981, Side 13

Dagblaðið - 21.09.1981, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1981. þessu sambandi. Frjáls markaður við sölu og kaup íbúða leysir margan vanda á hverjum degi. Einn kaup- andi finnur sér hentuga íbúð, en selur þá aðra, sem var of lítil eða of stór. Hún er hæfileg öðrum kaupanda og þannig má lengi halda áfram. Erfingjar selja hús, þar sem fyrri eig- andi hefur fallið frá. Þeir nota and- virðið til nýrra viðskipta í þjóðfé- laginu. Það er því rangt að gera litið úr hlutverki þessa frjálsa markaðar. Sumir kalla hann jafnvel tómt brask og svindl. Ef eitthvað ætti að gera, þá á að reyna að örva þennan markað, þannig að íbúðir og hús, sem lítið eru notuð, séu sett til sölu. Þá leysir það húsnæðisvanda þess, sem kaupir. Fasteigna- söluráð Það hefur lengi verið tímabært að setja upp nefnd eða ráð, þar sem hinir ýmsu aðilar, sem tengjast kaupum og sölu íbúða, ættu fulltrúa. Þar er t.d. átt við félag húseigenda, leigjendasamtök, húsnæðismála- stofnun rikisins, dómsmálaráðuneyti (sem fer með mál fasteignasala), fé- lagsmálaráðuneyti (sem fer með mál verkamannabústaða) banka (sem lána til húsakaupa) og fleiri má nefna. Margt er hægt að gera í þessu efni og nýjar hugmyndir kæmu fram, þegar farið væri að ræða þessi mál frá ólíkum sjónarmiðum. Stöðnun og kyrrstaða má ekki vera fyrir hendi. Hjólin þurfa að snúast og þau þurfa að snúast hratt. Verðtrygging skulda Það hefur valdið byltingu í öllum lánamálum, að nú eru skuldir verð- tryggðar. Sparifé fer nú vaxandi og brátt verður mun auðveldara en áður að fá lán til langs tíma á frjálsum lánamarkaði. Þetta opnar nýja möguleika i húsnæðismálum, sem ekki voru fyrir hendi áður. Hægt er að lána ungu fólki til húsakaupa eða nýbygginga með þeim hætti, að af- 13 Umræður um húsnæðismál í Reykjavík hafa verið miklar og snarpar á undanförnum vikum. Hér kemur blaðamaður DB að einu af leiguhúsum borgarinnar. DB-mynd: Þorri. borganir og vextir eru örlítið hærri en góð húsaleiga. Samt er ekki um gjöf að ræða, þar sem lánið er verðtryggt og greiðslur af því hækka með verð- bólgu. Það má nefna, að lán að fjár- hæð kr. 300.000,00 má endurgreiða að fullu með kr. 1.000,00 á mánuði i 40 ár. Þessi greiðsla er kr. 1.000,00 í dag en hækkar svo með verðbólgu. Kaupið hækkar svipað, svo að alltaf er jafnauðvelt (eða erfitt) að greiða af láninu. Niðurstaöa Þótt það sé alltaf nokkuð freist- andi í pólitískri umræðu að stofna til æsinga, þá verða þær að vera í hófi. í stað þeirra þarf að koma sameinað átak allra aðila, sem tengjast íbúða- málum, í þá átt, að öld verðtrygging- ar verði til þess, að nýir möguleikar til lausnar húsnæðisvandanum séu nýttir. Hjól viðskiptanna þarf að snúast hratt. Aukið sparifé í kjölfar verðtryggingar á að nota til að leysa húsnæðisvandann á víðsýnum og breiðum grundvelli. Það er hægt, ef kraftar allra hagsmunaaðila eru sam- einaðir. Lúðvík Gizurarson, hæstaréttarlögmaður. Breytt vígstaða Með ákvörðun sinni um að taka samningamálin i eigin hendur hefur Alþýðusamband Vestfjarða siður en svo rofið einhverja einhuga samstöðu verkalýðshreyfingar sem ella hefði verið fyrir hendi. Þá samstöðu er löngu búið að rjúfa af hálfu lands- samtaka hálaunahópanna innan Alþýðusambands íslands. Hjalið um heildarsamflot í kjarasamningagerð- inni hjá stjórnarliðum í A.S.Í. er ein- vörðungu til þess að varpa ryki í augu fólks og fá fjölmennustu samtökin, félög láglaunafólksins í A.S.Í., til þess að sætta sig við þrotlausar setur forustumanna á hótelum í Reykjavík vikum og jafnvel mánuðum saman og siðan eitthvað samkomulag um smánarkjör sem látið er i veðri vaka að ná eigi til launahópanna allra — en svo koma fámennari landssamtök hálaunahópanna og hefja „sérkjara- samningagerð” eftir að skollaleikn- um er lokið. Ákvörðun verkalýðsfélaganna á Vestfjörðum um að taka samninga- málin í eigin hendur var tekin í algjöri;i samstöðu allra félaganna og þar á meðal með atkvæðum og að til- lögu sumra yfirlýstra stuðnings- manna núverandi ríkisstjórnar. Það er því rangt með öllu þegar látið er i veðri vaka að ákvörðun Vestfirðing- anna sé eitthvert pólitískt samsæri Alþýðuflokksmanna sem ráði þar ríkjum. Sé þetta samsæri þá eru Alþýðubandalagsmennirnir, sem veita Verkalýðsfélaginu Brynju á Þingeyri og Verkalýðsfélaginu á Bidludal forstöðu, orðnir samsæris- menn. Ekkert nýmæli Sú afstaða Vestfirðinga að vilja samningana heim í hérað er ekkert nýmæli heldur. Alþýðusamband Vestfjarða hefur lengi verið virkasta fjórðungssambandið innan Alþýðu- sambands íslands og um langan aldur haft með höndum kjarasamninga- gerðina við verkalýðsfélög á Vest- fjörðum. Alþýðusamband Vestfjarða hefur miklu oftar samið fyrir vest- firskt verkafólk, bæði sjómenn og verkamenn, en nemur þeim skiptum sem þeir hafa átt aðild að heildar- kjarasamningagerð á landsvísu. Alþýðusambandi Vestfjarða hefur iðulega tekist að ná hagstæðari samningum fyrir vestfirska launþega en náðst hafa annars staðar á landinu — meðal annars sökum þess að vest- firskir atvinnuveitendur hafa verið sjálfstæðari gagnvart Vinnuveitenda- sambandi íslands en atvinnuveit- endur víðast annars staðar á landinu og saman hafa atvinnuveitendur og verkalýðshreyfingin á Vestfjörðum náð samkomulagi sem grundvallast á vestfirskum aðstæðum og vest- firskum vinnumarkaði. Alvarleg mistök Það eru því út af fyrir sig engin sér- stök tíðindi þótt Alþýðusamband Vestfjarða telji nú heppilegra að gera samningana heima í héraði eins og reynslan sýnir að oftast hefur verið farsælast fyrir vestfirskt launafólk. En við Alþýðusambandi Vestfjarða blasir annar vandi. Stóra samflotið, sem ríkisstjórnarbandalagið í A.S.Í. berst fyrir, hefur styrkt Vinnuveit- endasambandið um leið og það hefur veikt verkalýðshreyfinguna. Mis- heppnuð forusta ríkisstjórnarmeiri- hlutans í A.S.Í. og misheppnaðir samningar á hans vegum hafa veikt verkalýðshreyfingu.tá sem heild en þessi samningagerð á grundvelli heildarsamflots verkalýðshreyfingar gegn heildarsamtökum\innuveitenda hefur að sama skapi styrkt mið- stjórnarvaldið i Vinnuveitendasam- bandi íslands. Nú eru miðstöðvar Vinnuveitendasambands íslands í Reykjavík miklu öflugri en áður hefur þekkst og að sama skapi hefur dregið úr sjálfstæði atvinnuveitenda víðs vegar um land, þannig er miklu erfiðara nú fyrir Alþýðusamband Vestfjarða að fá vestfirska vinnuveit- endur til viðræðna en það var fyrir tíma hinna stóru samfiota. Alþýðu- samband Vestfjarða horfist því ekki aðeins í augu við það vandasama verkefni að ná aftur umsömdum kjarabótum sem A.S.Í. forustan glataði, heldur þarf Alþýðusamband Vestfjarða einnig að horfast í augu við þá staðreynd að sökum mistaka Alþýðusambandsforustunnar í Reykjavik, þarf Alþýðusamband Vestfjarða nú að eiga við atvinnuveit- endur, sem eru miklu háðari mið- stjórnarvaldi vinnuveitendasamtak- anna í Reykjavík en áður hefur þekkst. Bandamenn Þetta ástand hefur Alþýðusam- bandsforustan i Reykjavík skapað. Mistök hennar í kjarasamningagerð og þjónkun hennar við ríkisvaldið hefur veikt verkalýðshreyfinguna en styrkt Vinnuveitendasambandið. Alþýðusambandið hefur veikst. Vinnuveitendasambandið hefur — Ef Ragnar Halldórsson og Þorsteinn Pálsson væru spurðir hvort þeim væri meira að skapi — að semja við Ásmund Stefánsson og Björn Þórhallsson i Reykjavik eða Pétur Sigurðsson og Karvel Pálmason á Vestfjörðum þá myndu þeir hik- laust velja Ásmund og Björn, segir Sighvatur Björgvinsson meðal annars. DB-mynd: Þorri. styrkst. Ef Ragnar Halldórsson og Þor- steinn Pálsson væru spurðir hvort þeim væri meira að skapi — að semja við Ásmund Stefánsson og Björn Þórhallsson í Reykjavík eða Pétur Sigurðsson og Karvel Pálmason á Vestfjörðum þá mundi þeir hiklaust velja þá Ásmund og Björn. Hvers vegna? Vegna þess, að þannig telja þeir Ragnar og Þorsteinn hagsmuna vinnuveitenda betur gætt, styrk þeirra meiri. Hinn pólitiska forusta Alþýðusam- bands íslands, ríkisstjórnarbræð- ingur íhalds og komma, heldur uppi linnulausum áróðri fyrir því að stefna öllum verkalýðsforingjum af landinu til langvarandi útlegðar á hótelum í Reykjavík undir yfirskini svokall- aðrar heildarsamningagerðar. Hverjir skyldu nú vera öflugustu bandamenn forustu A.S.Í. í þeim málflutningi? Það er stjórn Vinnu- veitendasambands íslands. Þar eiga þeir Ásmundur Stefánsson og Björn Þórhallsson visastan stuðning. Fjórir helstu forustumenn aðila vinnumarkaðarins eru Ásmundur Stefánsson og Björn Þórhallsson af hálfu A.S.Í. og Ragnar Halldórsson og Þorsteinn Pálsson af hálfu Vinnu- veitendasambandsins. Aðeins einn fjórmenninganna hel'ur tekjur af eigin atvinnurekstri. Það cr varafor- seti Alþýðusambandsin-.!'. Hinir forustumennirnir eiga það sameigin- legt að starfa ekki á neinum þeim launakjörum sem þeir semja um á vegum umbjóðenda sinna! Sameigin- legur vettvangur þeirra hefur verið Bandalag háskólamanna og Stúdentafélagið í Reykjavík ásamt Stjórnunarfélagi íslands. Sá er vett- vangurinn, sem nú er farinn að sam- eina stéttaandstæðurnar á íslandi! Stétt með stétt í Stjórnunarfélaginu og Stúdentafélaginu í Reykjavik! Hvar finna menn fegurra mannlíf en þar sem atvinnurekandi stjórnar Alþýðusambandinu og launþegi Vinnuveitendasambandinu? Þetta er eins og lýsing á Paradís og því sælu- ástandi sæmir að sjálfsögðu ekkert minna en heildarsamflot. Ljónið gælir við lambið eins og í aldin- garðinum Eden forðum tíð. En svo þurftu þessi Vestfirðingar endilega að fara að éta af skilnings- trénu! Sighvatur Björgvinsson alþingismaöur

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.