Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Blaðsíða 9
89
Tilraunaliðir
a b c d e
Hey kg pr. ha 3298 5411 7505 9306 10450
V.auki kg/ha N-Sambönd 2113 4207 6108 8882
% af þurrefni 11.40 12.31 12.92 14.39 15.79
N í % þurrefni 1.82 1.97 2.07 2.30 2.53
P í % þurrefni 0.22 0.26 0.28 0.31 0.33
K í % þurrefni 1.20 1.61 1.87 2.02 2.22
Ca í % þurrefni 0.42 0.39 0.42 0.43 0.43
Meðaltalsheymagn af a-lið, áburðarlaust, gefur tæpa 33
hestburði af hektara. Liindin, sern tilraunin er gerð á, eru
því í góðu ræktunarástandi, áður en tilraunin hefst, því svo
mikla eftirtekju gefa tún, sem eru áburðarlaus eitt ár, því
aðeins, að ræktunarástand þeirra hafi verið gott áður eða
jarðvegur sérstaklega frjór.
Áburðaraukningin fyrir hvern lið er 45 kg N, 13.11 kg
P og 33.2 kg K pr. lia. I liðunum b, c og d gefur þessi jafna
aukning áburðarskammtanna nær sama vaxtarauka á hvert
kg í áburðaraukningunni, en í e-lið gætir þess lítils háttar,
að þar dregur úr vaxtaraukanum, miðað við magn áburðar-
aukningarinnar. Með öðrum orðum, annað hvort er, að
gróðurinn hefur ekki hæfni til að hagnýta þetta mikið
áburðarmagn, eða hitt, að hlutföllin í áburðargjöfinni eru
röng, þannig að eitthvert efnanna er ekki orðið til staðar í
þeim mæli, að fullnægjandi sé.
Séu atbugaðar efnagreiningar á heyi hinna enistöku liða,
sést, að köfnunarefnisaukningin í þurrefni heysins í e-lið er
hlutfallslega meiri en b- og c-liðanna, en jöfn við d-liðinn.
Verður því að álykta, að það vaxtarskilyrði takmarkar ekki
vaxtaraukann.
Aukning kalímagnsins í heyinu verður mest í b-lið, aukn-
ingin er jöfn fyrir jafna aukingu kalí-skammtsins í c- og d-