Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Page 11

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Page 11
Kynbótaspjall Eftirfarandi grein er í tveimur aðalþáttum. Fyrri hluti hennar er lausleg þýðing á grein úr Norsk Landbruk, nóvember 1959, eftir dr. Harald Skjervold, tilraunastjóra á Asi, þar sem hann markar kynbóta- stefnu, er hann telur að fara eigi í sambandi við sæðingar. Greinin er um margt merkileg og sjálfsagt fræðilega rétt. Má búast við, að þessari kenningu verði haldið fram hér, og að hún eigi erindi til okkar og geti verið framkvæmanleg hér að einhverju leyti, t. d. í sauðfjárrækt- inni. Síðari þátturinn eru svo hugleiðingar mínar um þessa kenningu, að- stöðu okkar til að hagnýta hana í nautgriparæktinni og líkurnar fyrir því, að við getum náð viðhlítandi árangri, þótt við af hagkvæmum ástæðum verðum að fara nokkuð aðrar leiðir. Þetta ber ekki að skoða sem gagnrýni á fræðilegu gildi greinar Skjervolds, heldur sem vörn og rök fyrir því, að við verðum að fylgja nokkuð öðrum línum og þurfum ekki að örvænta af þeim ástæðum. Vera má að það, sem á milli ber, sé minna en virðast kann í fljótu bragði. — Ó. J. I KYNBÆTUR OG SÆÐINGAR eftir dr. Harald Skjervold (lauslega þýdd) Sæðingar eru ein af nýjungum nútímans. Þær hófust í smáum stíl í Dannrörku 1936 með sæðingu nokkurra hundr- aða kúa, en eru nú orðnar algerlega ráðandi þar í naut- griparæktinni. Eftirfarandi tafla sýnir fjölda og hundraðs- hluta sæddra kúa í nokkrum löndum: Fjöldi sœddra kúa % Danmörk 1.500.000 90 Holland og Belgía 960.000 60 England og Wales 1.770.000 58 Svíþjóð 440.000 30 Bandaríki Norður-Ameríku 5.800.000 27 Eire (Írland) 136.000 26

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.