Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Page 39

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Page 39
119 Grafið úr gleymsku, eftir Árna Óla, er líka skemmtileg aflestrar á köflum, en úrvinnslan lakari og -heimilda oft að litlu getið og orkar margt tvímælis. Nefni ég sem dæmi, að vísan alkunna: „Níu á ég börn og nítján kýr“ o. s. frv., sem Árni Óla eignar séra Eiríki Magnússyni, Auðkúlu, er í Huld I, bls. 65, hiklaust talin eftir Jón Jónsson prest á Stað- arhrauni og Jón Halldórsson í Hítardal borinn fyrir því. Hrakningar til Grænlands etc., virðist mér að efni til, mynd meðtalin, samhljóða frásögn í nýlega útkominni íslands- sögu Jóns Jóhannessonar II, bls. 338—354, aðeins ófull- komnari. Þá þykir mér það ofrausn, að í báðum þessum síðasttöldu bókum er frásögnin um Bardagann á Dýrafirði, þótt hún nefnist Kjaftshögg og heiðursrnerki í þeirri fyrr- nefndu. Einhver er orðamunur og frásögnin líklega ná- kvæmari og ýtarlegri hjá Jóni. Hér við bætist, að ég er þess sannfærður, að þegar mér bárust þessar bækur í hendur, var ég nýlega búinn að lesa frásögn af þessum atburði, þótt ég nú í svipinn geti ekki munað í hvaða riti hún var. Við þessu er nú ekkert að segja, ef frásagnirnar eru í verulegum atriðum frábrugðnar og bæta hver aðra upp, en hér uggir mig, að munurinn sé mestur í umbúðum. Frásögn Jóns Helgasonar fylgir heimildaskrá og met ég það mikils. Að lokum vil ég geta þess um bókina íslenzkt mannlíf, að þar er hlífðarkápan bundin með bókinni, svo sem vera ber. Ég er satt að segja enginn aðdáandi þeirrar tí/.ku að bruðla með imyndskreytta hlífðarkápu á hverri bók, en sé svo gert og bókin er bundin og fæst oft ekki öðru vísi, þá á hlífðarkápan hifclaust að bindast inn með bókinni. Ann- að eru hrein spjöll, sem mikið af því vélbandi, sem hér er boðið upp á, alltaf er. Því á að krefjast þess af bókaútgef- endum, að þeir hafi jafnan, samhliða bundnum eintökum af bókum sínum, óbundin eintök á boðstólum, handa þeim, er bækurnar vilja kaupa en ekki vélbandið. í sama klassa og síðastnefndar bækur er: Hrakhólar og höfuðból, eftir Magnús Björnsson. Hún er

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.