Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Blaðsíða 45

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Blaðsíða 45
125 ast góðu lífi og aldrei skorta efni, meðan gömul, alvarleg og fræðileg tímarit berjast í bökkum eða dragast fram á styrkjum. Fram hjá þessu skal þó gengið, en víkja heldur að hinni eiginlegu bókaútgáfu, er mest kveður að síðustu mánuði ársins, í bókaflóðimu svonefnda. Það Skal þó fram tekið, að ég geng alveg fram hjá þýddum reyfurum. Af þeim mun sízt vera meira hér en gerist og gengur annars staðar, enda nóg af slíku rusli á erlendum málum í flestum bókaverzlunum. Þegar þetta er frádregið eru eftir þær bækur, þýddar eða frumsamdar, er telja má að hafi eitthvert bókmenntalegt gildi. Meginstofninn í íslenzkri bókaútgáfu eru sagnfræðirit eða rit í snertingu við sagnfræði, svo sem mannfræði, minn- ingar og ævisögur, þjóðfræði, þættir og sagnir og því um líkt. Þessar bækur eru svo fyrirferðamiklar, að ég gæti trú- að, að þær næmu allt að þrem fjórðu af þeim bókum, er ég hér ræði um. Bækiur þessar eru mjög misjafnar að gæðum, einkum sumar sagnirnar og minningabækurnar, en um það ræði ég ekki frekar. Annar meginþáttur bókaútgáfunnar eru skáldrit, skáld- sögur og ljóðabækur, innlent eða erlent. Þessi þáttur er nokkur að vöxtunum, en sjaldan virðist mér þar mikið um góða drætti, en játað skal, að ég les svo lítið af þessum bók- um, að ég er lítt dómbær um uppskenuna í heild. f þriðja lagi eru svo þær bækur, sem ekki verða færðar í hina tvo flokkana og er hann lang fátæklegastur. Líklega ber þar mest á ferðabókum og landfræðilegum bókum, en bækur um önnur efni svo sjaldséðar, að þær drukkna alveg í mergð framantaldra bóka. Bókaútgáfan hér verður, þótt hún sé mikil að vöxtunum, að teljast tiltölulega ein-hæf og fátækleg, og það sem eink- um vekur athygli er furðuleg vöntun bóka um náttúrufræði og hagnýt efni, þnátt fyrir margháttað nýnæmi, er slíkar baakur gætu túlkað, sívaxandi þörf fyrir slíka fræðslu og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.