Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Síða 47

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Síða 47
127 sköpunarfrœði á íslenzkiu, með sérstöku tilliti til íslenzkrar jarðmótunar eða landslags. Þá mætti einnig nefna Steina- og bergfrceði. Því þótt þessi þáttur náttúrufræðinnar sé ekki sérlega fjölskrúðugur hér, vefst það fyrir flestum, án leið- beininga og leiðarvísa, að kunna viðhlítandi skil á honum. Basaltið, aðalbergtegund okkar, er líka mjög afbrigðarík og því þörf á að fá góða skilgreiningu á tilbrigðum þess. Eg þyikist hafa orðið þess var, að margir hafa áhuga á þessu efni, og er því ekki ósennilegt, að vel gerð bók um þetta efni, með handhægum lyklum, litmyndum og skyggnimynd- um, þætti góður fengur. Satt að segja er öll Lýsing Islands og náttúru þess enn í molum, þrátt fyrir ágæt undirstöðurit Þorvaldar Thoroddsens og fleiri manna og allnákvæmar lýsingar einstakra svæða. Þá má það kallast furðulegt, að hér í landi allra veðra og þar sem flestir eiga allt sitt undir veðri og vindum, skuli ekki vera rituð góð, alþýðleg Veðurfræði, því flestum mun nú þýkja bók Björlings „Um vinda“, sem Þjóðvinafélagið gaf út fyrir löngu síðan, ófidlkomin og úrelt. Ekki minnist ég þess, að rituð hafi verið á íslenzku nein Þróunarfrœði, engin Erfðafræði síðan „Ættgengi og kynbætur" Kölpin Ravns kom hér út hjá Bókmenntafélaginu, þegar þessi merkilega fræðigrein var í barnd(>mi og þannig má lengi telja. Nýjar fræðikenningar hafa orðið til, er valdið hafa bylt- ingum í afstöðu okkar og skilningi á ýmsum náttúrufyrir- bærum, efni og alheimi, án þess almenningur fái um það fræðslu, nema lauslegt og oft óskiljanlegt hrafl. Má í því sambandi nefna efni eins og Kvanta- og Afstæðiskenning- una, Atómfræðina og Stjarnfræðina. Um allt þetta og margt fleira er til fjöldi, ágætra, alþýðlegra rita á öðrum tungu- málum og því auðvelt að velja bækur til þýðingar ef henta þykir. Ekki er það þó vandalaust og veltur á miklu, að þeir fjalli þar um, er vel kunna með að fara og þekkja efnið nægilega.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.