Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Page 52

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Page 52
132 er þó líklega að íslenzka orð og hugtök hinna nýju vísinda, sem eru fjölmörg og hafa ekki enn, nema að litlu leyti, feng- ið íslenzkan búning, sem eðlilegt er, meðan íslenzkar bók- menntir um þessi efni vantar. Það var stórvirki á sínum tíma að gera íslenzkt fræðiorðakerfi fyrir Flóru Íslands, en hliðstæð verkefni bíða nú fræðimanna okkar í ýmsum öðr- um vísindagreinum, svo sem atómvísindum og kjarnafræð- um, ýmsum greinum jarðfræðinnar, stjarnfræði og mörgu fleiru. Verði þetta ekki gert, verður þar óskemmtileg eyða í íslenzku máli, og sú eyða verður ekki fyllt með nýyrða- sköpun einni saman. Hin nýju fræðiorð og hugtakasam- bönd verða að helgast tungunni með alþýðlegum bókmennt- um. - SÆÐING KÚA HJÁ S. N. E. (Framhald af hls. 105). Þegar skyggnzt er nánar í sæðingarskýrslurnar sést, að árangurinn er nokkuð misjafn frá einum bæ til annars. Til eru bæir, þar sem flestar kýrnar fá kálf við 1. sæðingu, en á öðrum bæjum sára fáar fyrr en eftir endurteknar sæðingar, en þetta er líka mjög mismunandi frá ári til árs og fer því fjarri, að frjósemi eða ófrjósemi séu landlæg fyrirbæri. Gefur þetta grun um, að einhverjar ytri ástæður ráði miklu um þetta. Vafa- laust getur bæði fóður, meðferð og afurðir valdið hér nokkru. Ekki virðast sæðingarnautin valda nokkru teljandi um þetta. Því að svo miklu leyti, sem það hefur verið rannsakað, virðist frjósemiprósenta þeirra áþekk. Til er, að naut verða að meira eða minna leyti ófrjó, en á sæðingastöð kemur það í ljós við rannsókn sæðisins og hefur því engin áhrif á sæðingu kúnna. Þrátt fyrir þetta er ekki örgrant um, að dálítið misjafnt haldi undan nautunum, en engin veruleg brögð virðast að því. Af kúm, sem teknar hafa verið til meðferðar sl. ár, hafa um 5% ekki haldið. Nokkrar þeirra færast milli ára, örfáar hafa fengið við nauti, en sumum hefur verið lógað, eftir að reynt hefur verið að sæða þær mörgum sinnum. Þessar kýr eiga því drjúgan þátt í fjölda sæðinga á kelfda kú, en reynslan sýnir, að oft fá kýr kálf eftir að hafa beitt upp mörgum sinnum. Stundum verður þetta með læknisaðgerðum, sfundum ekki. Ó. J.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.