Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Síða 54
134
sókna- og vísindastörfum landbúnaðarins. Þetta er þeim mun
auðveldara, sem til hvorugrar þessarar stofnunar hefur enn
verið lögð nokkur teljandi fjárfesting, er ekki fullnýttist
hvar sem þessum stofnunum yrði valinn staður.
Kem ég þá að þriðju spurningunni, sem ef til vill er veiga-
mest og vandmeðförnust vegna þess, að enginn skyldi halda,
að hann sé full dómbær um það hvað framtíðinni hentar, en
þó ef til vill meira vegna hins, hve háðir við erum augna-
blikinu, sem við hrærumst í, og persónulegum ástæðum og
hentugleikum. Að sjálfsögðu gæti margt komið til greina og
athugunar í þessu sambandi, en þó ætla ég að eitt verði
veigamest og örðugast úr að bæta, ef illa tekst, en það er
staðarvalið. Hvar á stofnunin að vera? Enn hefur ekkert
komið fram, er örugglega hefur skorið úr um þetta. Helzt
liafa verið til nefndir Hvanneyri og Reykjavík og má finna
báðum stöðum nokkuð til foráttu og Reykjavík þó meira.
búnaðardeildin, staðsett inn í Reykjavík, með jarðarafnot á
sniipum hér og þar, ófullkomin og óhentug, er og verður
hálfgerður óskapnaður og algerður óskapnaður, ef þar ofan
á ætti svo að klessa niður búfræðideild sem undirdeild Há-
skóla íslands. Þvílíkt kák og klastur gæti aldrei orðið til
frambúðar.
Það er afsakanlegt, þótt mennta- og rannsóknarstofnanir
landbúnaðar séu staðsettar í borgum vegna þess, að borgim-
ar hafa gleypt þær með tíð og tíma, en að setja slíkar stofn-
anir niður í borg, ef annars er kostur, virðist mér hrein fjar-
stæða.
Hvanneyri hefur verið fundið það til foráttu, að hún væri
of fjarri Reykjavík. Þetta er veigalítil ástæða, því hvort
tveggja er, að fjarlægðin getur ekki talizt mikil og hennar
mun smám saman gæta minna með batnandi samgöngum.
Hins vegar er fjarlægðin of mikil fyrir þá, sem búa eða vilja
vera búsettir í Reykjavík.
Þá hefur því verið fleygt, að jarðvegur væri óhagkvæmur
og einhæfur á Hvanneyri fyrir jarðvegs- og gróðurrannsókn-