Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1968, Síða 26
28
það frekar hér. Síðara atriðinu hefur hinsvegar verið mun
minni gaumur gefinn og er það þó engu síður forvitnilegt.
Vafalaust hafa allir heyrt talað um kýr, sem gátu torgað
ótrúlega miklu stráfóðri og afköst margra kúa frá eldri tím-
um, þótt þær fengju einvörðungu stráfóður, benda til hins
sama. I seinni tíð heyrist minna um þetta rætt, enda alls
staðar hætt að vega stráfóður handa kúm.
Sú skoðun hefur nokkuð gert vart við sig, að sunnlenzkar
kýr væru yfirleitt neyzlugrennri á stráfóður en þær norð-
lenzku. Hér í Eyjafirði hefur verið talið, að fullorðin kýr
ætti að geta nýtt það stráfóður, er nægði henni til viðhalds
og framleiðslu á tíu kg af mjólk á dag, en það svarar til að
hún verði að eta 14—15 kg af meðaltöðu á dag í innstöðu.
Á Lundi mun það reynsla, að kvígur að fyrsta kálfi eti um
10 kg af töðu á dag.
Sunnanlands hygg ég að þetta sé talið all fjarri lagi og
kýr þar torgi yfirleitt ekki svona miklu stráfóðri. Sannast að
segja veit þó enginn neitt með vissu um þetta lengur, síðan
hætt var að vega heyið í kýrnar. Stóraukin kjarnfóðurgjöf,
jafnt í tíma sem ótíma, hefur líka dregið úr stráfóðuráti
kúnna, því eigi þær um það að velja að fullnægja fóðurþörf
sinni með stráfóðri eða kjarnfóðri, taka þær flestar léttari
kostinn.
En þótt við vitum nú ógerla hvernig þetta er, þá vitum
við að nokkru hvernig þetta var, því alllengi var stráfóður
kúnna talið á kúaskýrslunum alveg eins og mjólk og kjarn-
fóður. Vera má, að fóðrið, sem fram er talið á skýrslunum,
sé ekki mjög nákvæmt vegið, en sjálfsagt ekki meira mistal-
ið í einu héraði en öðru og ætti því að gefa nokkuð trúverð-
uga mynd af ástandinu, þegar samanburður er gerður á
stærri heildum.
Á töflu þeirri, er hér fylgir, er slíkur samanburður gerð-
ur milli 15 nautgriparæktarfélaga á Suðurlandi og jafn
magra félaga á Norðurlandi árið 1931. Þetta ár er valið
vegna þess, að þá má telja að starfsemi nautgriparæktarfé-
laganna sé komin í nokkuð fast form, og þá er stráfóðrið
ennþá vigtað almennt og nokkuð örugglega.