Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1968, Síða 27
29
Vegna þess, að stráfóðrið er gefið í mismunandi formi og
hlutfallið er nokkuð ólíkt í landshlutunum, þá hef ég met-
ið það í fóðureiningar þannig, að ég hef af töðu 2 kg í fóð-
ureiningu, 2.5 kg af útheyi og 5 kg af votheyi. Þessi mæli-
kvarði er að sjálfsögðu ónákvæmur í hverju einstöku tilfelli,
en ætti að vera nothæfur fyrir heildina. Einkum kann að
vera nokkurt álitamál hvernig telja skuli útheyið. Má vera
að það sé full lítið að gera aðeins 2.5 kg í FE., en þó verður
að ætla, að yfirleitt sé valið úthey notað handa kúm, svo sem
hey af flæðiengjum og áveitum, og það í sumum tilfellum
standi töðunni lítið að baki. Annars má líka gera saman-
burðinn þannig að telja stráfóðrið aðeins í kg en sleppa fóð-
urgildinu. Þá verður þó að breyta votheyinu i þurrhey og
hef ég þá talið, að 5 kg af votheyi gefi 2 kg af þurrheyi. (Sjá
töfluna.)
Sunnlenzku nautgriparæktarfélögin eru öll á starfssvæði
Búnaðarsambands Suðurlands, en þau norðlenzku ölf í
Eyjafirði og S.-Þing. Samanburðurinn virðist ótvírætt benda
til þess, að norðlenzku kýrnar hafi þetta ár torgað mun
meira stráfóðri en þær sunnlenzku. Þó verður að gæta þess,
Stráfóðurát kúa í kg og F.E. í 15 nautgriparæktarfélögum á
Suðurlandi og jafnmörgum nautgriparæktarfélögum á
Norðurlandi 1931.
Suðurland Norðurland Mismunur
ráfóður að meðalt. í kg; 1657 kýr 2605 kg 1084 kýr 3076 kg 471 kg
ráfóður að meðalt. í F.E 1657 kýr 1227 F.E. 1084 kýr 1528 F.E. 301 F.E.
eðaltal á 15 hæstu búunum F.E. 62 kýr 1506 F.E. 26 kýr 1881 F.E. 375 F.E.
eðalt. á 15 lægstu búunum F.E. . 60 kýr 1000 F.E. 38 kýr 1244 F.E. 244 F.E.
afavikur að meðaltali 35 37 2
ðurein. á kú á viku 35.1 F.E. 41.2 F.E. 6.2 F.E.