Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1968, Page 41
43
jurtar eiga að notast bændum svo að vel sé. Áríðandi er að
slá Tímóteiið ekki of snemma, sérstaklega er áríðandi, að
það fái að vaxa lengi og vel til mikils vaxtar árið sem því er
sáð, eða allt fram að blómgun. Sé það slegið of snemma, en
það munu flestir bændur gera, er hætt við að hlutur þess í
uppskerunni fari fljótt minnkandi. Um leið er túnið orðið
viðkvæmara fyrir kali og öðrum áföllum. Er það eðlileg af-
leiðing þess er Tímóteiið, sem er mikill hluti gróðursins,
lifir við kröm og er víkjandi í sáðsléttunni.
Enn er að nefna, að Timótei polir illa beit hin fyrstu
vaxtarár. Eigi nýræktartún, þar sem Tímótei er mikill hluti
sáðgróðursins að gefa gott töðufall til lengdar, má alls ekki
beita það að hausti sáningarárið og eigi heldur næsta vor.
Hætt er við að vel flestir bændur brjóti eigi svo lítið á
móti þeim ræktunarboðorðum sem eiga að gilda um Tímó-
teiið, ef vel á að vera. Tímóteitúnin eru slegin of snemma á
fyrsta og öðru ári og beitt til ófarnaðar, jafnvel þegar að
hausti til árið sem sáð er til túnsins. Bændur munu ekki
hafa gert sér nægilega grein fyrir því hvað til góðs túnrækt-
ar-friðar heyrir, er þeir sá grasfræi sem er Tímóteifræ, að
hálfu eða jafnvel meira. Ljóst er að ekki verður hjá því
komizt að girða nýjar sáðsléttur, þar sem Tímótei er mikill
hluti gróðurs, og alfriða þær fyrir beit fyrsta og annað árið,
þótt eldri tún séu beitt, svo sem nú er títt.
Þessi umræddu frávik frá réttum og góðum ræktunarhátt-
um túna, þar sem Tímótei er mikill aðili í sáðsléttunum, er
svo alvarlegt atriði, að vel má telja, að þau geti reynzt þátt-
ur í þeirn óhöppum „að bjóða kalinu heim“. Þetta eru mis-
tök, sem auðvelt ætti að vera að bæta jafnhliða því sem upp
er tekin góð forræktun, við nýræktun túna og endurrækt-
un. En vilji menn ekki búa Tímóteiinu boðleg skilyrði og
aðbúð við ræktunina, er mikið vafamál, að réttmætt sé að
gera hlut þess eins stóran í fræblcindum eins og nú er gert.
Hér er því miður verið að rífa niður með annarri hendinni,
það sem byggt var upp með hinni.
Mikið getur borið á milli hvort vel tekst til eða illa við
ræktun Tímóteis. Bóndi sem bjó við fornræktað tún að