Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1968, Síða 54

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1968, Síða 54
5fi hvernig með þetta skyldi fara framvegis. Anzaði Guðmund- ur því, að nú mundi bezt, að dýralæknirinn sæi um fram- haldið, og fann ég á öllu, að nú þóttist hann hafa gengið helzt til langt yfir á verksvið annars manns. Þó sagði hann mér, hvenær og með hvaða hætti ég skyldi taka sauminn úr, og svo bætti hann við: „Ef þetta verður ekki í lagi, geturðu náttúrlega hringt". En ég þurfti ekki að hringja. Aðgerðin bar tilætlaðan árangur. Við hjónin buðum kaffi, en það kváðust þeir ekki mega þiggja, væru þeir boðnir í kvöldkaffi hjá Guðmundi Karli og hefðu aðeins ætlað að skreppa ofurlítið inn í fjörðinn, á meðan kaffið væri að hitna og nú mundi það heitt fyrir stundu. Já — þeir ætluðu aðeins að skreppa, en Eyjafjörður laðaði og seiddi og áfram héldu þeir í kvöldkyrrðinni, unz þjóðveginn þraut við innstu bæi. Er þeir komu að veginum, sem liggur upp í Villingadal, sveigði ökumaður og farar- stjóri, Jóhann héraðslæknir, inn á þann veg með góðu sam- þykki ferðafélaganna og hélt á brattann upp í dalinn. Þang- að hafði hann áður komið í lækniserindum og þótti dalur- inn einkennilegur og fagur. Sagði hann, að sér hefði ekki fundizt Eyjafjörður allur séður, fyrr en þangað væri komið, og taldi ekki eftir sér að aka þennan vonda veg til þess að sýna ferðafélögum sínum þetta einkennilega fyrirbæri í ís- lenzkri náttúru, sem svo mjög líkist hinum búsældarlegu útilegumannadölum, sem þjóðsögurnar segja okkur frá. En þannig stóð á ferðum landlæknis og berklayfirlæknis, að þeir höfðu tekið sér ferð á hendur með Esju umhverfis land- ið í læknisfræðilegum erindum, og nú var Esja einmitt stödd á Akureyri. Eftir nauðsynlega hreingerningu, kvöddu þeir í skyndi, hröðuðu sér upp í bifreiðina og óku af stað. En á hlaðinu stóðum við hjónin og horfðum á eftir hinum kærkomnu ferðalöngum með þakklátum huga fyrir kvöldstundina, sem þeir gáfu okkur. Eg bauð ekki borgun, því ég minntist sögunnar af ferða- manninum, sem kom með áætlunarbifreiðinni til Akureyr- ar. Efann sá nálægt afgreiðslunni mann sitjandi í bifreið og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.